Sigurður tekur viðtal við Sigurjón Helgason, Nautabúi. Líklega tekið í kringum 1969-1970. Sigurjón var fæddur a Ánastöðum og var m.a. á Gilhaga sem lausamaður. Rætt um búskap Sigurjóns og landbúnað almennt.
Listinn er handskrifaður á þrjár pappírsarkir í A4 stærð. Yfirskrift hans er "munir fyrir byggðasafn." Listaðir eru upp munir á ýmsum bæjum í Skagafirði. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, tvær skrifaðar síður. Það varðar meðmæli bréfritara með kynbótabúinu á Nautabúi, vegna styrkumsóknar þess.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5broti, tvær skrifaðar síður. Það varðar meðmæli bréfritara með kynbótabúinu á Nautabúi, vegna styrkumsóknar þess.