Byggð að rísa í Norðurmýri í Reykjavík. Fjær sést til húss Mjólkursamsölunnar við Snorrabraut og er Sundhöll Reykjavíkur þar fyrir ofan. Efst til vinstri er Austurbæjarskólinn.
Litlabrekka við Suðurgötu í Reykjavík - andspænis gatnamótunum Suðurgötu og Grímshaga. Bærinn mun hafa verið byggður laust fyrir 1890. Húsið var rifið 1981.
Viðtal við séra Eirík Albertsson, Reykjavík. Viðtalið líklega tekið í kringum 1950-1970. Eiríkur segir frá æsku sinni og uppruna, en hann ólst upp í Torfmýri og Flugumýrarhvammi í Blönduhlíð. Segir einnig frá samferðafólki í Blönduhlíð. Einnig spjallað um prestsskap Eiríks en hann var einnig bóndi á Hesti í Borgarfirði og skólastjóri á Hvítárbakka. Einnig rætt um bók Eiríks sem byggir á doktorsritgerð hans. Eiríkur segir frá tildrögum þess að hann lagði fyrir sig guðfræði og trúmál almennt.
Meðmæli með Kristjáni C. Magnússyni. B. Jónsson lýsir því yfir að hann "ber fullt traust til hans og þori óhikað að láta Filmur til þess kvikmyndahúss er hann kæmi til að veita forstöðu"
Vantar titilsíðu en nánari rannsókn var hægt að komast að því um hvaða bók ræðir. Á titilsíðu ætti því að standa: "Hugvekjur til kvöldlestra, frá veturnóttum til langaföstu, eptir Dr. P. Pjetursson. Útgefandi: Egill Jónsson í Reykjavík, 1868." Það vantar sem sagt titilsíðu og fjórar fyrstu blaðsíðurnar í meginmáli.
Úr Kristskirkju í Reykjavík. Sér yfir Vesturbæ til Seltjarnarness. Eiðisgrandi fyrir miðri mynd og Eiðistjörnin inn af honum. Stóra húsið neðst t.h. er svokallað ÍR hús.
Landbúnaðarsýningin í Rvík. 1968. Neisti 587 frá Skollagróf, Hrunamannahr. Árn. rauðstjörnóttur. (IS1959188200). AE 8,11. Eigandinn Jón Sigurðsson, Skollagróf heldur í hann.
Landbúnaðarsýningin í Rvík. 1968. Hrímnir 585 frá Vilmundarstöðum, Borg. grár. (f. brúnn). (IS1958135857). AE 8,3. Eigandinn Gísli Höskuldsson, Hofsstöðum heldur í hann.
Landbúnaðarsýningin í Reykjavík 1968. Alhliða gæðingar Frá vinstri: 1. Viðar Hjaltason, Gunnar Tryggvason 2. Blesi frá Kirkjubæ, Skúli Seinsson 3. Grani frá Munaðarnesi, Leifur Jóhannnesson 4. Sindri frá Eiríksstöðum, Guðmundur Sigfússon 5. Blakkur frá jaðir, Kolbrún Kristjánsdóttir 6. Funi frá Kanastöðum, Jón Sigurðsson.
Landbúnaðarsýningin í Reykjavík 1968. Alhliða gæðingar Frá vinstri: 1. Viðar Hjaltason, Gunnar Tryggvason 2. Blesi frá Kirkjubæ, Skúli Seinsson 3. Grani frá Munaðarnesi, Leifur Jóhannnesson 4. Sindri frá Eiríksstöðum, Guðmundur Sigfússon 5. Blakkur frá jaðir, Kolbrún Kristjánsdóttir 6. Funi frá Kanastöðum, Jón Sigurðsson.
Fundargerðir Skagfirðingafélagsins í Reykjavík frá upphafi, 6. desember 1936, til ársins 1960. Markmið félagsins í upphafi var að vinna að því að setja á stofn mennta- og menningarsetur við Reykjarhól í Seyluhreppi (Varmahlíð). Starfssemi félagsins verður fjölbreyttari þegar á líður. Nafn félagsins var fyrst "Varmahlíð" en var strax á 3ja fundi breytt í Skagfirðingafélagið í Reykjavík.
Ýmislegt úr fórum hjónanna Kristjáns Friðrikssonar Hansen og Maríu Björnsdóttur, Sauðárkróki. Heimilisbókhald, minningarbækur, bréf, ljósmyndir, ýmis skjöl og skírteini, útgefnar bækur og fleira.