Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x5,5 sm. Á henni eru tvær konur sem standa á húströppum með barn milli sín og fyrir neðan tröppurnar eru tvö börn. Fólkið á myndinni er óþekkt.
"Í afmælisveislu hjá Siddíu 1927. Auður, Anna Pála, Siddí afmælisbarnið, Sigurbjörg, Rúna á Mel, Una í Skóarabænum, Ásta Hansen, Ragna Þorsteins og Rannveig. Gunnhildur og Didda Varða."
Aftan á myndina er skrifað: Antoniette og Eurico og ég. Þetta er sama sunnudaginn. Hjónin heita Carmine og Antoniette Mezzacappa og drengirnir eru Eurico. Mig þekkið þið býst ég við." Myndin er merkt með sömu rithönd og mynd nr 98.
Herbert Marteinson og John Marrteinson. Aftan á myndina er ritaður eftirarandi texti: "Foreldrar Helgi Marteinssonn og Ingibjörg Helgadóttir. Herbert á heima í Vancouver og er háttsettur í lögreglunni.
Á öðrum stendur: Foreldrar drengjanna hétu Birgitte Brandson og Helgi Marteinson og Helgi er skyldur Andrési. Stóri Björn afi þeirra?"
Tveir óþekktir drengir og hundur. Tilgáta: Bræður Sigrúnar Mörtu Gunnarsdóttur. (Gunnar Sigurjónsson var afabróðir hennar og bjó á Ásvegi 14 á Akureyri.
Jónas Kristjánsson læknir (1870-1960) og kona hans Hansína Benediktsdóttir (1874-1948) ásamt þremur barna sinna. F.v. Guðbjörg, Ásta og Kristján. Sama mynd er einnig skráð í Hvis 908.
Á myndinni er sex strákar. Aftan á myndina er handskrifað með penna: Friðjón Hjörleifsson 2 f.v. Það á við efri röðina. Einnig er handskrifað með blýanti: "Jón á Flugumýri."
Tvö óþekkt börn með lamb. Myndin er tekin nyrst á Sauðárhæðum sunnan Sauðárkróks. Dettur í hug börn Ólafs Sveinssonar læknis og Ástu Karlsdóttur þau Guðríður og Karl.
Gunnlagur Sölvason og Guðríður kona hans. Börnin eru Björn, Stefán og Lilja. Myndin er tekin um 1901 eða 1902. Myndin er gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur á Sauðárkróki.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og fjölskylda hennar. Þorbjörg var dóttir Þorvaldar Einarssonar og Láru Sigfúsdóttur á Sauðárkróki. Aftan á myndina er ritað: "Pjettur bróðir. Jeg sendi þjer mind af okkur en vonast til að fá mind af ykkur ef þið gjettið. Þín systir Þorbjörg."
Þrjú ónafngreind ungmenni, myndin er líklega tekin í hrauninu austan við Þingvallavatn. Ármannsfell til vinstri og Skjaldbreiður með fönnum fyrir miðri mynd.
"Svaðastaðir. Tekið við jarðarför annars hvors hjónanna Önnu eða Pálma. Pálmi dó 1938. Anna dó 1939 og ekki ár á milli." Tvö ónafngreind börn fyrir utan bæinn á Svaðastöðum.
Helga Sölvadóttir, f. 1859 á Kleif á Skaga, d. 1942 á Uppsölum. Móðir Ingibjargar Sigurðardóttur á Stóru-Ökrum og Bjarna Halldórssonar á Uppsölum. Hér er Helga með tvo sonarsyni sína, Halldór Bjarnason stendur hjá henni og Jónas Bjarnason í fangi ömmu sinnar.
Hópur af óþekktu fólki. Tilgáta að maðurinn með hattin, annar frá hægri í efri röð, sé Gísli í Eyhildarholti. Tilgáta að myndin sé tekin við Hóladómkirkju.