Identity area
Reference code
Title
Date(s)
- 1994-1996 (Creation)
Level of description
Item
Extent and medium
Eitt tölvuritað skjal, 5 blaðsíður.
Context area
Name of creator
Biographical history
Friðrik Jón Jónsson fæddist á Grænhóli í Borgarsveit þann 7. ágúst 1925, sonur Jóns Eðvalds Friðrikssonar (1894-1974) og 1.k.h. Ólafíu Elísabetar Rósantsdóttur (1897-1931). Eiginkona Friðriks var Þóra Friðjónsdóttir (1922-2005) og eignuðust þau þrjú börn. Friðrik starfaði í áratugi sem trésmiður á Sauðárkróki.
Name of creator
Biographical history
Foreldrar: Guðmundur M. Björnsson bóndi í Tungu í Gönguskörðum (1894-1956) og Þórey Ólafsdóttir handavinnukennari (1895-1945). Maki: Elín Maríusdóttir, f. 1919, d. 2007. Þau eignuðust 4 börn. Bjuggu allan sinn búskap við Langagerði í Reykjavík. Fyrir átti Ólafur einn son með Jóhönnu H. Bergland. ,,Ólafur Björn ólst upp í Tungu í Gönguskörðum og á Sauðárkróki. Hann varð stúdent frá MA stærðfræðideild 1940. Fluttist þá til Reykjavíkur og lagði stund á lyfjafræði við HÍ og síðar í Kaupmannahöfn þar sem hann útskrifaðist cand. pharm. 1948 frá Lyfjafræðiháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann starfaði alla sína starfsævi í Reykjavíkurapóteki og var þar yfirlyfjafræðingur 1962-1993 þegar hann lét af störfum vegna aldurs. Ólafur gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, var m.a. formaður Lyfjafræðingafélags Íslands 1960-1962 og í stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags 1967-1971. Hann var ritari Garðyrkjufélags Íslands 1968-1997 og ritstjóri Garðyrkjuritsins, ársrits Garðyrkjufélags Íslands, 1968-2000. Ólafur hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að garðyrkjumálum 1. janúar 1991. Gulllauf Garðyrkjufélags Íslands hlaut hann fyrir störf í þágu félagsins og garðyrkjunnar almennt. Gullmerki Lyfjafræðingafélags Íslands 30. nóvember 2002."