Foreldrar: Pétur Gauti Pétursson og Gíslíana Bjarnveig Bjarnadóttir frá Grímsstöðum í Svartárdal. Bjarni var fæddur á Kvígsstöðum í Andakílshreppi í Borgarfirði, en flutti ungur að Gautlöndum í Mývatnssveit ásamt foreldrum sínum og ólst þar upp. Hann var menntaður bifvélavirki og starfaði við þá iðn alla tíð. Bjó í Hafnarfirði. Kvæntist Þórunni Kristinsdóttur, þau eignuðust þrjú börn.
Mývatnssveit
10 Authority record results for Mývatnssveit
Böðvar fæddist á Gautlöndum í Mývatnssveit 1. júlí 1925. Sonur hjónanna Jóns Gauta Péturssonar bónda á Gautlöndum og Önnu Jakobsdóttur konu hans. Böðvar kvæntist Hildi Guðnýju Ásvaldsdóttur og eignuðust þau fimm syni. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni 1941-1942 og var gagnfræðingur frá Menntaskólanum á Akureyri 1946.
Böðvar tók við búinu af föður sínum1947 og var bóndi þar til 1997, er synir hans tóku við. Böðvar var leiðandi og tók virkan þátt í félags - og menningarstarfi í Mývatnssveit. Hann sat til margra ára í stjórn Skútustaðahrepps og í rúm 60 ár vann hann að tryggingamálum og var umboðsmaður Brunabótafélags Íslands og Samvinnutrygginga, síðar Vátryggingafélags Íslands. Hann sat um tíma í stjórn Kaupfélags Þingeyinga. Umhverfis - og landgræðslumál voru Böðvari afar hugfólgin.Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir landgræðslustörf.
Gíslíana (Jana) fæddist á Nautabúi í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. Foreldrar hennar voru Bjarni Kristmundsson og Kristín Sveinsdóttir. Eiginmaður Jönu var Pétur Gauti Pétursson bóndi. Þau bjuggu á Gautlöndum í Mývatnssveit. Síðast bús. í Hafnarfirði. Börn þeirra: Sólveig, Bjarni, Kristín og Steingrímur. Jana var systir Kristmundar.
Foreldrar: Jón Sveinsson prestur á Mælifelli og k.h. Hólmfríður Jónsdóttir. Jón ólst upp með foreldrum sínum og hlaut góða menntun á heimilinu og utan þess. Um 1881 var hann við barnakennslu í Mývatnssveit en hafði áður stundað kennslu í Skagafirði. Fluttist ásamt konu sinni að Mælifelli 1882 en veiktist skömmu síðar og lést þar 1883. Maki: Kristbjörg Marteinsdóttir frá Lundarbrekku. Þau eignuðust eitt barn sem lést eftir nokkra daga.
Jón var fæddur 14. apríl 1909 á Helluvaði í Mývatnssveit og ólst þar upp. Sonur hjónanna Sigurgeirs Jónssonar bónda og konu hans Sólveigar Sigurðardóttur. Hann var kvæntur Ragnhildi Jónsdóttur frá Gautlöndum í Mývatnssveit og eignuðust þau fjögur börn. ,,Framan af ævi stundaði Jón ýmis störf í Mývatnssveit, einkum þó húsasmíðar. Árið 1940 fluttist hann til Akureyrar og starfaði þar sem lögregluþjónn næstu 13 árin. Árið 1954 gerðist Jón umsjónarmaður á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar það flutti í nýja byggingu á Eyrarlandsholtinu. Því starfi gegndi hann þar til hann fór á eftirlaun. Jón var ætíð mikill áhugamaður um ferðalög og var í hópi frumkvöðla í könnun óbyggða Íslands á öðrum fjórðungi 20. aldar. Hann lagði víða hönd á plóg við að gera fólki hálendið aðgengilegt og áhugavert, m.a. með þátttöku í skálabyggingum og vegabótum auk þess að hafa frumkvæði að könnun nýrra leiða og brúarsmíði. Vegna víðtækrar þekkingar sinnar á hálendi Norðurlands tók Jón þátt í fjölmörgum björgunarleiðöngrum. Ferðafélag Akureyrar gerði hann að heiðursfélaga sínum á 85 ára afmæli hans. Þá söng Jón í fjölmörgum kórum frá unga aldri, lék með Lúðrasveit Akureyrar og var um margra ára skeið organisti í Hríseyjarkirkju. Í hjáverkum lagði Jón stund á bókband og ýmiss konar smíðar. Eftir að Jón var sestur í helgan stein sneri hann sér æ meir að fræða- og ritstörfum. Um áttrætt eignaðist hann tölvu og eftir það dvaldi hann löngum fyrir framan skjáinn og sló inn fjölmargt er á daga hans hafði drifið og margan fróðleik um náttúrufar og mannlíf í Þingeyjarsýslu. Sumt af þessu efni hefur birst í norðlenskum og austfirskum tímaritum."
Í fóstri á Helluvaði í Mývatnssveit 1871 og 1874-75. Skólapiltur á Möðruvöllum, Möðruvallaklausturssókn, Eyj. 1880. Húsbóndi og verslunarmaður á Sauðárkróki, Sjávarborgarsókn, Skag. 1890. Mun einnig hafa verið verslunarstjóri á Hofsósi. Uppboð á eftirlátnum eigum hans var á Hofsósi 6.8.1898.
Hjá foreldrum í fyrstu en síðan í fóstri og vistum víða í S-Þing. fram um 1900, lengst í Reykjadal. Fór til Vesturheims 1910 frá Breiðumýri, Reykjadal, S-Þing. og dvaldi vestra 6 ár. Bóndi á Arnarvatni í Mývatnssveit um skamma hríð. Síðar ritstjóri Dags og alþingismaður. Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins 1930-53. Síðast bús. í Reykjavík.
Málmfríður fæddist á Arnarvatni í Mývatnssveit 30. mars 1927, dóttir hjónanna Sigurðar Jónssonar skálds og bónda þar, og konu hans Sólveigar Hólmfríðar Pétursdóttur frá Gautlöndum. Málmfríður lauk kvennaskólaprófi árið 1947 og var húsmóðir á Jaðri í Reykjadal 1948 til 1992. Á sumrum var hún ráðskona hjá Vegagerð ríkisins 1968 - 1985. Aðstoðarkona við Kristnesspítala á vetrum 1981 - 1985 og í fullu starfi frá 1985 - 1987. Málmfríður var kennari við grunnskóla Reykdæla 1967 - 1979 .Hún var bókavörður á Amtbókasafninu á Akureyri frá 1992 -2001. Málmfríður var kjörin á Alþingi fyrir Samtök kvennalista árið 1987 og sat á þingi til 1991 og var formaður þingflokksins 1990 - 1991. Var í Vestnorræna þingmannaráðinu 1989 - 1991. Málmfríður kvæntist Haraldi Jónssyni frá Einarsstöðum í Reykjadal, þau eignuðust sjö börn.
Faðir: Pétur Guðmundsson, f. 1853. Hjá foreldrum í Álftagerði í Mývatnssveit um 1882-1886 og á Árbakka í sömu sveit frá um 1899 fram yfir 1900 nema í vist í Víðikeri í Bárðardal 1899-1900. Bjó í Voladal á Tjörnesi um 1921-1922, flutti þá til Eyjafjarðar. Bóndi í Hólum í Öxnadal um 1929-1935 og 1936-1942. Klauf á Staðarbyggð 1935-1936., síðar á Hraunshöfða í Öxnadal um 1942-1947. Var á Krossastöðum á Þelamörk 1947-1955. Maki: Guðný Sigurðardóttir frá Merkigili, Saurbæjarhreppi í Eyjafirði.
Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson, skáld og bóndi á Arnarvatni og k.h. Sólveig Hólmfríður Pétursdóttir. Þóra giftist Jóni Kristjánssyni, bónda og starfsmanni Kísiliðjunnar hf. ,,Þóra var húsfreyja á stóru heimili á Arnarvatni í hálfa öld þar sem hún gekk í öll störf, innan heimilis sem utan. Þóra söng í kirkjukór Skútustaðakirkju frá 1946 og sá um bréfhirðingu á Arnarvatni í aldarþriðjung."