Pappírskópía, framkölluð í brúntónum og límd á pappaspjald. Myndin er heilleg en nokkur óhreinindi á henni. Á henni er hópur pilta, líklega skólapiltar. Staðsetning og nöfn þeirra sem á myndinni eru óþekkt.
Fundagerðin er rituð á pappírsörk í folio broti. Á fundinum voru lögð drög að stofnun félagsins og stofnuð þriggja manna nefnd. Með liggja drög að bréfi til formanns héraðsfundar í Skagafjarðarsýslu.
Veilending ved undervisning i samtidig læsning og skrivning. Höfundur: Hedevig Rosing. Kristinania. Udgiven efter offentlig Forantstaltning 1899. Bókin er 60 bls.
Bæklingur í stærðinni 19 x 11, 6 cm. Skólaminni. Sungið á Blönduósi 12. maí 1902 á 25 ára hátíð kvennaskólans. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Fjórbrotinn bæklingur. Skjalið er nokkuð skemmt af óhreindingum og sliti.
Pappírskópía límd á pappaspjald. Um er að ræða skólaspjald frá Menntaskólanum á Akureyri. Á myndinni er m.a. Stefán Stefánsson skólameistari, auk kennara og nemenda.
Kenslubók í esperantó : bygð á Th. Cart: L'Esperanto en dix leçons : ásamt orðasafni með íslenskum þýðingum / eftir Þorstein Þorsteinsson. Reykjavík : Bókaverslun Guðm. Gamalíelssonar, 1909. viii, 104 bls. ; 20 sm.
Greinargerðin er rituð á pappírsörk í foliostærð, alls tvær skrifaðar síður. Höfundur gerir greið fyrir mikilvægi unglingafræðslu sem hluta af alþýðufræðslu.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tilboð bréfritara um að selja sýslunefnd skólahúsið í Vík, ásamt öllum kennsluáhöldum.
Reikningurinn er ritaður á pappírsörk í folio stærð. Með liggur seðill sem á eru ritaðar athugasemdir vegna reikningsins. Hvort tveggja er undirritað af Jóni Sigurðssyni á Reynistað. Skjölin eru nokkuð skemmd af myglu.
Kenslubók í eðlisfræði handa barnaskólum / Vald. Valvesson. Valdemar V. Snævarr 1883-1961 höfundur. Reykjavík : Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1914. 54 bls. : myndir ; 18 sm.
Stutt kenslubók í Íslendinga sögu handa byrjendum / eptir Boga Th. Melsteð. Kaupmannahöfn : útgefanda ekki getið, 1914. 154, [2] bls. : myndir, kort ; 20 sm. 3. útg. aukin og endurbætt.
Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Magnúsi Gíslasyni á Vöglum. Aftan á það eru ritaðar með blýanti tölulegar upplýsingar um búfénað.
Skjal til undirritunar fyrir samskot í sjóðinn, undirritað af stofnendum sjóðsins. Á skjalinu eru nöfn tveggja gefenda, rituð með hendi Guðmundar Davíðssonar á Hraunum.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður. Með liggur reikningur fyrir fæði Guðmundar Jónssonar farkennara í Rípurhreppi veturinn 1920-1921.
Skýrsla í stærðinni 23,5 x 14, 5 cm. Skýrsla um Gagnfræðaskólann á Akureyri skólaárið 1922-1923. Akureyri. Prentsmiðja Odds Björnssonar 1923. Ritið er 68 bls, auk kápu og titilblaðs. Ástand þess er nokkuð gott.
Kenslubók í ensku = (English reading made easy) / Sir William A. Craigie. Reykjavík : Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, 1924-1925. 2. bindi. 276, bls.) ; 19 sm.
Stutt saga sem Gunnlaugur hefur skrifað um tófuna og snigilinn. Sagan né stílabókin er dagsett og því óljóst hvenær hún er skrifuð, en mjög líklega tilheyrir þetta grunnskólagöngu Gunnlaugs.
Jón Þ. Björnsson skólastjóri Barnaskólans á Sauðárkróki fylgdist með og skráði líkamlegan þroska skólabarna á tímabilinu 1914-1953. Í þessari bók skráir hann niður mælingar á börnum frá 1931 til 1943. Mæld var hæð, þyngd, brjóstmál (brjóstkassi), kraftur/afl og andrými.
Skrifstofa Fræðslumálastjóra sendir Jóni Þ. Björnssonar bréf, dagsettu 21. nóvember 1934, og kallar eftir upplýsingum (reikninga) varðandi seinni hluta árs 1931.
Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.
Bókin er heftuð saman og límt yfir kjölinn. Stærð hennar er 17,4 x 11,7 cm. Á titilsíðu er handskrifað "Uppdráttardæmi." Í bókinni eru skrifuð reikningsdæmi. Með liggur ljósritað blað með upplýsingum um ættir Egils ásamt minnismiða frá starfsmanni sem veitti bókinni viðtöku.
Laus blöð sem heftuð hafa verið saman og stílabókarkápu brugðið utan um. Fundargerðir fundarhalda hjá nemendum í Ungmennaskóla Sauðárkróks 1936-1944. Ástand skjalanna er gott.