Áhorfendur, hugsanlega í sundlauginni. Þekkja má Ingimar Bogason (með loðhúfu og gleraugu). T.v. við Ingimar er Árni Guðmundsson. Aftan við Árna er Friðrik Friðriksson og t.h. Hafsteinn Hannesson, Elsa Valdimarsdóttir og Jónanna Jónsdóttir. Aftan við Friðrik er Hermann Sigurjónsson frá Lóni.
Þorvaldur Ari Arason (1848-1926) var kenndur við Flugumýri og Víðimýri. Í skjalasafni hans er að finna ýmis skjöl er viðkoma búrekstri og félagsstarfi Þorvaldar en einnig eldri gögn úr fórum föður hans Ara Arasonar (1813-1881) lækni og stórbónda á Flugumýri og afa, Ara Arasonar (1763-1840) héraðslæknis og stórbónda á Flugumýri.
Skólablaðið 3. árgangur 1. tölublað. 2 eintök. 1 blað er ein örk. Myndskreytingu blaðsins sá Jóhannes Geir Jónsson um þá 11 ára. Þeir sem skrifa í blaðið eru: Guðlaug Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Þóra Jónsdóttir, Hulda Ívarsdóttir, Áslaug Sigfúsdóttir.
Skjalagögn Félags fiskvinnslustöðva Austur og Norðurlands er ein askja sem inniheldur gögn félagsins frá 1960-1964. Gögnum er skipt eftir innihaldi í fimm hluta sem innihalda, fundargerðir, lög, bókhaldsgögn, erindi og skýslur. Fundargerðabók félagsins er undir fundargerðir.
Félag Fiskvinnslustöðva á Austur og Norðurlandi F.A.N. (1961 - 1964)*
Gögnin komu frá einkasafni Harðar Jónssonar, Hofi 2, oddvita Hólahrepps 1982 - 1990, og voru afhent á Héraðsskjalasafnið á Sauðárkrók þann 10.10.2023. Hörður Jónsson fæddist á Sauðárkróki 24. maí 1952 en ólst upp á Hofi 2 í Hjaltadal þar sem hann átti heimili æ síðan. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akureyri 22. ágúst 2023. Gögnin voru óhrein og bækur hreinsaðar og gögn grisjuð af skjalamöppum, afritum og bréfaklemmum, þau eru flokkuð eftir ártali og málefnum. Tekið var úr safni þau gögn er tilheyra Hólakirkju og verða þau pökkuð sér ( Samfélag B - C )
Þunn stílabók, pappinn er með límdum kjöl þar sem hann var farinn að mestu í sundur í miðjunni. Bókin er handskrifuð og vel læsileg, blaðsíðurnar eru orðnar snjáðar, þó sérstaklega í miðjunni þar sem hefti sem héldu þeim saman voru fjarlægð því þau voru orðin ryðguð og molnuð í sundur og farin að skemma blaðsíðurnar.
Tvær fundargerðarbækur, innbundnar og handskrifaðar og hafa varðveist mjög vel, sú elsta er síðan 1908. Tölvuútprentað söguágrip í þremur heftum í A4 stærð, gert 2008.
Hreppsgögn tengd Sauðárhreppi hinum forna og Sauðárkrókshrepp. Líklega eru gögnin komin úr fórum Jóns Þ. Björnssonar þó sum þeirra séu mynduð áður en hann tekur við starfi oddvita hreppsins.
Gögn Ungmennafélags Geisli / Bindindisfélagið Tilreyndin, er ein askja sem inniheldur fimm bækur um fundargerðir, lög, og bókhaldsgögn, og ein örk með ýmsum skjölum frá félaginu.
Harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi. Kjölur rifin, blaðsíður blettótttar en að mestu fastar við kjöl, Bókin undin en var hreinsuð og öftustu blöð eru glötuð en í bóki lágu 4 laus blöð um félagaskrá og reikningar. Í bókinni er stofnfundur og aðaðfundir skráðir eins reikningar og bókakaup 1907 - 1913.
Heilleg harðspjalda bók um lög og fundargerðir félagsins. Bóki í góðu ástandi og lítið skrifað í hana. Inn í bók er ein laus opna af pappírgögnum um fundargerð, sett með bók.
Tvö pappírsgögn í safni þessu. Annað reikningur frá Viðtækjaverslun Rikisins 4.10.1033 til félagsins afgreitt af Stefáni Vagnssyni Hjaltastöðum Skagafirði. Bréf í lélegu ástandi. Hitt er handskrifða blað með ýmis kostnaður við tækjakaup.
Pappírsgögn um fiskikaup í Akrahreppi 1929.- 1930 deild II kaupendur og reikningar til Herra Stefáns Vagnssonar, greiðasölunni, Hjaltastöðum, undirritað Snæbjörn. Sendibréf var í umslagi sem hér fylgir með, merkt Stefán Vagnsson, Hjaltastöðum, skrifað af Snæbirni Sigurgeirssyni 28/7 - 29. Minnismiðar 2 stk um seldar skýrslubækur.
Gögnin innihalda, frumvarp til laga fyrir félagið það segir að tilgangur félasins er að bæta engjalönd þeira jarða sem taldar eru í gr.2 Hjaltastaði, Hjaltastaðakot, Hjaltastaðahvamm, Frostastaði, Ystu- Grund, Syðri - Brekkur, Ytri - Brekkur, með framræslu og áveitu. Vatn til áveitunnar skal tekið úr Héraðsvötnum og Þverá. Handskrifað bréf og 2 prentuð bréf til Herra Stefán Vagnssonar.frá Pálma Einarssyni Búnaðarfélag Íslands.
Gögnin innihalda hin ýmsu gögn er varða starfsemi félagsins. Reikningur um rekstur nautahaldsins, ( keypt naut á árinu, vetrarfóðrun sumarhirðing, lán og styrkir og kaup á eftirlitsmanni ). Fylgigögn frá 1929 - 1932. Lög um kynbætur nautgripa, 1.júní 1928. Sendibréf til formanns Nautgriparæktarfélags Akrahrepps ( úthluta ) Hr. Björn Sigtryggsson, Framnesi. Styrkur fyrir fullmjólkandi kýr. Tveir reikningar frá Dansk Mælketeknisk Laboratorium A- S Köbenhavn 16.03.1929 og 06.08.1929.og sendibréf því tengt til Herr Björn Sigtryggsson. Fundargerð 16.03 1930 en þau gögn eru tvö blöð illa farin og nokkuð lesanleg, þar kemur fram að Stefán Vagnsson skýrir frá starfsemi félagsinsá næst liðnu ári ,var aðalkjarni þess fóðrun og hirðing þarfanauts félagsins, (Páls ).
Bókin er harðspjalda og handskrifuð en kápan er orðin mjög léleg, rifinn og trosnuð og er bókin með límborða á kili sem heldur kili saman, en bókin er laus frá. Blaðsíðurnar eru fínar og vel læsilegar. í bók er laus lítil bók, viðskiptabók frá Sparisjóð á Sauðárkrók nr.278 um bókhald Vinagjöf frá 1904 - 1941. Ein undirrituð kvittun um úthlutun úr sjóðnum. 1939.
Þrjár bækur í góðu ástandi og pappírsgögn í viðkvæmu ástandi. Samkvæmt gögnum er talið að félagið hafi verið stofnað 1938 og sameinast svo samkvæmt lögum Búnaðarfélagi Íslands 24.04.1974 og eignum félagsins ráðstafað þannig að sjóðurinn verði í vörslu hreppsnefndar en vöxtum hans varið til að verðlauna snyrtimennsku í búskap og umgengni á félagasvæðinu.
Þrjár innbundnar og handskrifaðar bækur sem hafa varðveist misvel, tvær þeirra eru í ágætu ásigkomulagi en ein bókanna sem er frá 1913 og heldur utan um útlán safnsins er mjög illa farin. Bindingin er laus og nokkrar blaðíður hafa rifnað þvert yfir, einnig hafa öftustu blaðsíðurnar verið rifnar úr. Í safninu eru einnig pappírsgögn af ýmsu tagi, t.d. bókhaldsgögn, handskrifuð og vélrituð gögn, bæði formleg og óformleg.
Fundargjörðarbókin er innbundin og handskrifuð, hún er í A3 stærð og í góðu ástandi og vel læsileg. Í bókinni eru lög félagsins og hverjir stofnfélagar þess voru: Nokkrar blaðsíður vantar í bókina, líklega hefur þeim verið klippt út (sjá einnig í notes).
Innbundnar og handskrifaðar bækur, fundagerðabók, dagbók og lítið notuð bókhaldsbók. Í safninu er einnig vélrituð og handskrifuð pappírsgögn, reikningur og bókhaldskvittanir. Einnig var á meðal skjalanna og bókanna persónuleg gögn úr db. Egils Helgasonar. Safnið er alt vel læsilegt og ágætlega varðveitt og margt áhugavert sem hægt er að lesa í fundagerðum félagsins og í dagbókinni.
Innbundin og handskrifuð bók, með fundagerðum félagsins. Bókin er mjög illa farin, binding bókarinnar er ónýt, blaðsíður eru lausar og blettóttar, kápan er einnig laus.