- IS HSk N00257-C-1
- Item
- 1933-1965
Part of Hrólfur Þorsteinsson: Skjalasafn
Vísurnar eru skráðar á línustrikaða pappírsörk. Nokkuð er um útstrikanir og leiðréttingar.
Hallgrímur Jónasson (1894-1991)
6 results with digital objects Show results with digital objects
Part of Hrólfur Þorsteinsson: Skjalasafn
Vísurnar eru skráðar á línustrikaða pappírsörk. Nokkuð er um útstrikanir og leiðréttingar.
Hallgrímur Jónasson (1894-1991)
Ljóðabréf frá Jóhanni Ólafssyni
Bréfið er fjórar handskrifaðar pappírsarkir, undirritað af Jóhanni Ólafssyni í Miðhúsum.
Jóhann Ólafsson (1891-1972)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Handskrifuð pappírsörk, inniheldur ljóð með yfirskriftinni Nemesis. Dagsett og undirrituð af HSB. Með fylgir vélrituð örk þar sem ljóðið er skrifað upp, ásamt skýringum á tilurð þess og höfundi.
Hildur Solveig Bjarnadóttir Thorarensen (1835-1915)
Ljóðabréf til Jóhanns og Þórdísar á Skriðufelli e. Þorstein Einarsson, Tungukoti
Part of Helgi Sigurðsson: Skjalasafn
Ljóðabréf til Jóhanns og Þórdísar á Skriðufelli, eftir Þorstein Einarsson, Tungukoti.
Þorsteinn Arngrímur Einarsson (1902-1979)
Bréf Árna Þorgrímssonar til sýslunefndar
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar umsjón með sýsluhesthúsi.
Árni Þorgrímsson (1882-1924)
Séð í gegnum holt og hæðir, 23 erindi eftir Hálfdán Helga Jónasson til Guðjóns Jónssonar Tunguhálsi.
Hálfdán Helgi Jónasson (1891-1927)
Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn
Ljóð um Ísland, líklega eftir Bruno Schweizer. Á þýsku. Undir ljóðinu stendur "August 1935".
Gunnar Jóhannsson frá Mælifellsá
Part of Sigurður Egilsson: Skjalasafn
Sigurður Egilsson tekur viðtal við Gunnar Jóhannsson frá Mælifellsá.
Rætt er um kjör öryrkja en Gunnar bjó við fötlun.
Gunnar fer með frumsamda vísu.
Viðtalið er tekið í Reykjavík - nóvember 1970.
Sigurður Egilsson (1911-1975)
Bréf Magnúsar Kr Gíslasonar til Hrólfs Þorsteinssonar
Part of Hrólfur Þorsteinsson: Skjalasafn
Handskrifað bréf, ein pappírsörk í A4 stærð. Með liggur umslag, stílað á Hrólf Þorsteinsson. Í bréfinu eru eftirmæli um Ólaf Jóhannesson á Miklabæ í Blönduhlíð.
Magnús Kristján Gíslason (1897-1977)
Bréf Sveins Gunnarssonar til Sigurðar Sigurðssonar
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á 3 arkir af þunnum pappír, líklega umbúðapappír. Með fylgja þrjár arkir sem á eru rituð ljóð, með annarri rithönd. Með liggur umslag, merkt "Sveinn Gunnarsson bréflappar."
Sveinn Gunnarsson (1858-1937)
Hljómbrot: Ljóð eftir Ásmund Jónsson, Skúfstöðum
Part of Ásmundur Jónsson: Skjalasafn
Minningarljóð um Kristján Kristjánsson frá Ábæ (1919)
Minningarljóð um Kristján Kristjánsson, bónda á Ábæ í Austurdal, Skagafirði.
Ljóðmæli um Önnu Helgadóttur á Skíðastöðum
Ljóðmælin eru í vélrituðu hefti í A6 broti, alls 24 vélritaðar síður, auk ómerktrar kápu.
Þau munu vera ort árið 1955, um Önnu Helgadóttur (1913-1976) sem bjó á Skíðastöðum.
Letrið er nokkuð óskýrt en ástand skjalsins er gott.
Gunnþórunn Sveinsdóttir (1885-1970)
Bréf Sigurðar Ólafssonar til Stefáns Vagnssonar
Part of Stefán Vagnsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á 16 pappírsarkir í A4 stærð, á mjög þunnan pappír.
Þar af eru 14 arkir með kveðskap, m.a. Einvígisrímum, nafnagátum og lausavísum.
Blöðin eru orðin rifin og hafa sum krumpast.
Sigurður Ólafsson (1892-1976)
10 arkir úr skrifblokk, þéttskrifaðar. Innihalda ljóðið Skagafjörður eftir Lúðvík Kemp. Á fremsta blaðið er ritað til hliðar: "L. Kemp/ Eiríkur Kristinsson."
Part of Valdemar Guðmundsson: Skjalasafn
Óinnbundin bók.
Ljóðmæli / Hjálmar Jónsson frá Bólu ; Jónas Jónsson gaf út
Hjálmar Jónsson 1796-1875 (frá Bólu)
Reykjavík : Menningarsjóður, 1942
Íslensk úrvalsrit
xlvii, 112 bls. : teikningar ; 18 sm.
Hjálmar Jónsson (1796-1875)
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Ljóðið er handskrifað á græna pappírsörk í A5 stærð. Búið er að strika yfir og gera nokkrar leiðréttingar.
Sigurður Sigurðsson (1887-1963)
Part of Sigurður Egilsson: Skjalasafn
Hljóðupptaka af hljómplötu - Davíð Stefánsson les ljóð eftir sjálfan sig.
Mjög slæm upptaka og starfrænt afrit því ekki sett hér inn.
Erfiljóð um Ragnhildi Guðrúnu Sighvats
Erfiljóð um Ragnhildi Guðrúnu Sighvats (1912-1932) sem gekk undir nafninu Lóa. Eftir ýmsa höfunda, svo sem Gísli Ólafsson, Daníel Daníelsson, M.R., J.H., María Rögnvaldsdóttir, Hulda Gísladóttir, B.B.B.,
Franch Bertholt Michelsen (1913-2009)
Ein handskrifuð pappírsörk, samanbrotin, með handskrifuðu ljóði.
Garðar Víðir Guðjónsson (1932-2018)
Part of Sigurfinnur Jónsson: Skjalasafn
Minnisbók í stærðinni 7,5x12,8 sm.
Inniheldur minnispunkta yfir eggjatekju í Drangey, fuglaveiðar og kveðskap.
Sigurfinnur Jónsson (1930-)
Afmælisljóð um Odd Einarsson í Þverárkoti 70 ára
Part of Kolbeinn Högnason: Skjalasafn
Ljóðið er handskrifað á pappírsörk í stærðinn 11,8x 18 cm.
Það er ort í tilefni af 70 ára afmæli Odds Einarssonar (1870-1953) sem bjó í Þverárkoti á Kjalarnesi.
Ástand skjalsins er gott.
Kolbeinn Högnason (1889-1949)
Þyrnar eftir Þorstein Erlingsson
Part of Eiríkur Björnsson: Skjalasafn
Ljóðabók.
Eiríkur Björnsson (1895-1955)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Þrjú hefti af Bændavísum eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá frá árinu 1955.
Eitt hefti um bændur í Akrahrepps í Blönduhlíð.
Eitt hefti um bændur í Laxárdál og Skaga.
Eitt hefti um um bændur í Lýtingsstaðahreppi og víðar.
Gunnþórunn Sveinsdóttir (1885-1970)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Skjalið er tvær pappírsarkir límdar á stærri örk. Inniheldur tvö ljóð sem virðast vera sumarkveðjur til Jóhönnu Blöndal, annars vegar frá Siggu og Pétri og hins vegar frá Hönnu og Hannesi.
Vetur. Ljóð eftir Sigurð Sigvaldason
Ljóðið Vetur eftir Sigurð Sigvaldason á Elliheimilinu, stofu nr. 2, Reykjavík.
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Bæklingur í stærðinni 17,8 x 11,4 cm.
Jón Arason Hólabiskup. Fæddur á Grýtu í Eyjafirði 1484. Hálshöggvinn í Skálholti 7. nóv 1550.
Alls 4 bls bæklingur með ljóði eftir Pál Ólafsson.
Bæklingurinn er áritaður: "Til hr Árna Þorkelssonar. Vinsaml. frá höfundi.
Alls 12 bls., auk kápu.
Páll Ólafsson skáld
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20 x 16 cm.
Bókin inniheldur kveðskap. Höfunda er getið.
Kápan er nokkuð óhrein en annars er ástand bókarinnar gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Skjalið er tvær handskrifaðar pappírsarkir, með röthönd Árna Blöndal. Inniheldur vísur ortar um félaga í Rótarýklúbbi Sauðárkróks.
Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Útgefið rit í stærðinni 18,8 x 12,5 cm.
Minningarrit um Jórunni Ísleifsdóttur Melsteð 1816-1858. Inniheldur ljóð og ræður.
Alls 32 bls, auk kápu.
Úgáfuár óþekkt.
Páll Ólafsson skáld
Ljóðmæla-samtíningur og Um slysfarir á sjó og hrakninga
Handskrifuð stílabók sem inniheldur:
I. "Ljóðmæla-samtíningur. M. h. Jóns Sveinssonar frá Þangskála.
Nafngreindir höfundar:
Baldvin Jónsson skáldi.
Guðmundur Jónsson vinnumaður á Fossi (mun lengi hafa verið vinnumaður á Höskuldsstöðum á Skagaströnd).
Jón Gottskálksson frá Selá.
Sigurður Stefánsson, Garðshorni, Höfðaströnd.
Skúli Bergþórsson, Kálfárdal.
II. Um slysfarir á sjó og hrakninga, eftir Jón Sveinsson frá Þangskála. Ehdr.
Handskrifuð stílabók, með hendi Jóns Sveinssonar frá Þangskála, sem inniheldur ljóð og sagnaþætti eftir Jón:
I. "Saknaðar og minningar ljóð........", Útfararljóð".
I Um flutninga fólks til Ameríku úr Skefilsstaðahreppi og Sauðárhreppi á tímabilinu frá 1874-1904".
II. "Afburðamenn að afli og leikni í glímu íþróttinni".
III. Dulræn sögn viðkomandi Fljótamönnum. Um sjóslysið 6. jan. 1899 .
IV. "Sagnir viðkomandi Sölva Helgasyni förumanni".
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Skjalið er tölvuprentað og inniheldur nafnalista ásamt spakmælum og ljóðlínum, sem og skýringum. Einnig eru á blaðinu myndir af þeim sem um ræðir. Meðfylgjandi er handskrifað blað með sömu vísum og spakmælum.
Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20,3 x 16,4 cm.
Bókin inniheldur aðallega vísur.
Kápan er nokkuð óhrein en annars er ástand bókarinnar gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Árni Blöndal áttræður 30.05.2009
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Skjalið er vélritað á tvær A4 pappírsarkir og er ljóðið, sem er ort í tilefni af afmæli Árna Blöndal, merkt Jóa í Stapa.
Jóhann Pétur Guðmundsson (1924-2020)
Kvæði sundin á þjóðminningardag Húnvetninga
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Útgefið rit í stærðinni22 x 14 cm. Einblöðungur.
Kvæði sungin á þjóðminningardag Húnvetninga 9. júlí 1898.
Prentsmiðja dagskrár. Útgáfuárs ekki getið.
Ritið er óhreint og slitið.
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Ljóðið er vélritað á A4 pappírsörk. Í yfirskriftinni kemur fram að um sé að ræða afmæliskveðju frá spilafélaga, Birni Eysteini Jónssyni, til Árna Blöndal á áttræðisafmæli. Neðst er handskrifað að Jói í Stapa sé höfundur ljóðsins.
Jóhann Pétur Guðmundsson (1924-2020)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Efst er það merkt Hinrik Má Jónssyni Syðstu-Grund, með rithönd Árna Blöndal.
Hinrik Már Jónsson (1967-
Part of Sigurður Þórðarson: Skjalasafn
Bréf til Sigurðar Þórðarsonar frá Árna G. Eylands. Bréfið er sent frá Stavanger 26. janúar, 1959
Vélritað kvæði sem kallast Hestavígshamar.
Part of Guðmundur Davíðsson: Skjalasafn
Skjalið er 1 bls, líklega rifin úr bók.
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð.
Kolbjörg Katla Hinriksdóttir (1994-
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Bæklingur í stærðinni 19 x 11, 6 cm.
Skólaminni. Sungið á Blönduósi 12. maí 1902 á 25 ára hátíð kvennaskólans. Prentsmiðja Odds Björnssonar.
Fjórbrotinn bæklingur.
Skjalið er nokkuð skemmt af óhreindingum og sliti.
Skýring á minningarbréfinu um þúsund ára byggingu Íslands
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Smárit í stærðinni 22 x 13, 6 cm.
Skýring á minningarbréfinu um þúsund ára byggingu Íslands eptir Benedikt Gröndal.
Kaupmannahöfn. Prentað hjá S. Trieer.
Ritið er alls 64 bls. Kápu vantað.
Ritið er nokkuð skemmt af sliti og óhreinindum.
Benedikt Gröndal
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 21,3 x 16,9 cm.
Bókin inniheldur ljóð eftir Bólu-Hjálmar, ásamt fáeinum öðrum ljóðum, uppskrift af leikriti og uppskrift úr útvarpsþætti frá 1949.
Ástand bókarinnar er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Ljóðið er handskrifað og neðanmáls er dagsetning og Sigurður Sigurðsson frá Vigur sagður þýðandi.
Sigurður Sigurðsson
Part of Héraðsskjalasafn: Ýmis smárit
Bók sem prentuð var í Reykjavík árið 1937, eftir Magnús Gíslason og heitir Söngvar, kvæði, Stökur.
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Ljóðið er fjölritað á spjald og myndskreytt.
Part of Guðmundur Davíðsson: Skjalasafn
Fjölritað ljóð, brotið í bækling.
P.V.G.Kolka
Tímarit Friðarboðinn og vinarkveðjur XIII
Rit sem inniheldur Ástarbréf, vígsluljóð, morðviðvörunarbréf og fleira.
Part of Hrólfur Þorsteinsson: Skjalasafn
Vísurnar eru skráðar á línustrikaða pappírsörk. Nokkuð er um útstrikanir og leiðréttingar.
Hallgrímur Jónasson (1894-1991)
Geisladiskurinn inniheldur ljóð eftir Ólaf Áka, lesin af Sigmundi Baldvinssyni.
Sigmundur Baldvinsson (1900-1983)
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm.
Hún inniheldur kveðskap, m.a. eftirmæli eftir Fljótamenn.
Kápan er nokkuð óhrein, en annars er ástand bókarinnar gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Þú munt brosa eftir Ísleif Gíslason
Ljóðabók eftir Ísleif Gíslason. Titillinn: Þú munt brosa. Gamanstökur og stef. Áritað af höfundi.
Franch Bertholt Michelsen (1913-2009)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Skjalið er tvær vélritaðar síður og inniheldur kveðskap.
Sigurjón Jónasson (1877-1959)
Bréf Árna Þorgrímssonar til sýslunefndar
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broit, alls 2 skrifaðar síður. Það varðar umsókn um að gerast starfsmaður í sýsluhesthúsi.
Árni Þorgrímsson (1882-1924)
Ljóðabók Gunnþórunnar Sveinsdóttur
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Bókin er 72 vélritaðar síður, saumaðar saman með kápu. Á kápuna er límdur umbúðarpappír. Einnig er vélritaður texti innan á kápuna.
Sigurður Sigurðsson (1887-1963)
Kvæðabók eftir Baldvin Bergvinsson
Part of Fjóla B. Bárðdal: Skjalasafn
Titill bókar: Harpa
Bréf Hannesar Péturssonar til Stefáns Vagnssonar
Part of Stefán Vagnsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á 3 pappírsarkir í A4 stærð.
Það varðar m.a. kveðskap.
Blekið hefur runnið til á nokkrum stöðum.
Hannes Pétursson (1931-)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Frúarrímur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá.
Ekki er ljóst hvort rímurnar eiga við frúr í einhverjum tilteknum hreppi eða byggðarlagi.
Gunnþórunn Sveinsdóttir (1885-1970)
Bréf Gísla Ólafssonar til Pálínu Þorfinnsdóttur
Vélritað hefti með 17 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í framsveitum Skagafjarðar.
Garðar Víðir Guðjónsson (1932-2018)
Jón Eðvald Guðmundsson Sauðárkróki
Part of Sigurður Egilsson: Skjalasafn
Sigurður Egilsson tekur viðtal við Jón Eðvald Guðmundsson frá Sauðárkróki.
Jón segir frá æsku og uppvexti á Hryggjum í Gönguskörðum og Sauðá.
Einnig rætt um sjósókn, m.a. vertíð á Drangeyjarfjöru og sigi í Drangey.
Fer með vísur eftir sjálfan sig, Friðrik Jónsson og Friðrik Hansen og segir frá samferðafólki sínu á Sauðárkróki.
Rætt um Jón Pálma og seðlafölsunarmálið.
Viðtalið tekið í Reykjavík - nóvember 1970.
Sigurður Egilsson (1911-1975)
"Til Kristjáns tíunda", kvæði eftir Ásmund Jónsson frá Skúfsstöðum
Part of Sigurður Jónsson: Skjalasafn
"Til Kristjáns tíunda". Kvæði eftir Ásmund Jónsson frá Skúfsstöðum í tilefni af afmæli Kristjáns konungs. Úrklippa úr Morgunblaðinu frá 27. apríl 1947.
Sigurður Jónsson (1882-1965)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Skjalið er handskrifað á A4 pappírsörk.
Kristín Jakobína Guðmundsdóttir (1894-1983)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Hefti í stærðinni 25,5 x 13, 6 cm.
Stephan G. Stephansson.
Heftið er með kápu sem skreytt er gylltu skrauti og bundin á með satínborða.
Útgáfuár og útgefanda ekki getið, en ef til vill gefið út í tilefni af afmæli Stephans eða ártíð.
Inniheldur ljóð eftir skáldið.
Stephan G. Stephansson (1853-1927)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Ljóðið er handskrifað á miða sem límdur hefur verið á A4 pappírsörk, ásamt mynd af Jóhönnu Blöndal. Aftan á örkina er límdur minnismiði þar sem listuð er upp tónlist flutt við jarðarför Jóhönnu 19. júlí 1988.
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20 x 16,4 cm.
Bókin inniheldur eingöngu kveðskap.
Kápu vantar á bókina og síðurnar eru upplitaðar.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20,1 x 16,2 cm.
Bókin inniheldur ýmis ljóð, einkum erfiljóð eftir Fljótamenn.
Kápan er laus frá bókinni og síðurnar eru upplitaðar.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Frá Hilmari Jónssyni á Sauðárkróki
Landafræði (skrifuð), kennd í skólanum í Vík.
Ljóð eftir Gunnar Einarsson, Bergskála.
Nokkrar vísur eftir Jón Tómasson "dagbók".
Kvæði sungin á þjóðminningarhátið Skagafjarðar
Part of Héraðsskjalasafn: Ýmis smárit
Kvæði sungin á Þjóðminningarhátíð Skagafjarðar 2. júlí 1898. Kvæði: Hjeraðshátíð Skagafjarðar 1898, Minni Íslands, Minni konungs, Minni Skagafjarðar, Minni kvenna.
Kvæði til sýningar í Skagafirði
Part of Héraðsskjalasafn: Ýmis smárit
Kvæðin til sýningarinnar í Skagafirði 28. maí 1881. Kvæði heita; Byrjunarljóð, Skagafjörður, Kvenna minni, Sönglistin, Vínið, Skilnaðarvísur. Prentað á Akureyri í prentsmiðju Fróða.
Stendur fremst til Jórunnar Jónsdóttur Rauðnesi.
Innbundin bók með handskrifuðum kveðskap. Á forsíður stendur: "Eitt æfintýri er kallast Jóhönnu raunir á þýsku útlagt og á ljóðmæli snúið af Snorra Björnssyni presti að Húsafelli."
Snorri Björnsson (1710-1803)
Part of Sigurður Sigurðsson: Skjalasafn
Ljóðið er handskrifað á blað í A4 stærð og virðist vera þýðing Sigurðar á finnsku ljóði.
Sigurður Sigurðsson (1887-1963)
Part of Páll Sigurðsson: Skjalasafn
Rauð kápa með blómum. Á fremstu blaðsíðu er stimplað Gjöf Páls Sigurðssonar bókavarðar. Á næst fremstu blaðsíðu er skrifað með penna: Til Láru frá mömmu, 11 júní 1907. Í bókinni er skrifaðar kveðjur og ljóð frá vinum og vandamönnum
Bréf Hannesar Péturssonar til Stefáns Vagnssonar
Part of Stefán Vagnsson: Skjalasafn
Bréfið er handskrifað á 4 pappírsarkir í A4 stærð.
Það varðar m.a. kveðskap.
Blekið hefur runnið til á nokkrum stöðum.
Hannes Pétursson (1931-)
Afmælisvísur, kvæði, vísur og ljóð
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Vélritað hefti með 8 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í Laxárdal og á Skaga.
Garðar Víðir Guðjónsson (1932-2018)
Part of Árni Blöndal: Skjalasafn
Ljóðið er handskrifað á pappírsörk. Um uppkast er að ræða og eru ýmsar leiðréttingar og endurbætur færðar inn á það. Dagsett neðst en höfundur ókunnur.
Part of Kristján C. Magnússon og Sigrún M. Jónsdóttir: Skjalasafn
Stílabók í A5 stærð sem í eru handskrifuð ljóð.
Ástand skjalsins er gott.
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 14,8 cm.
Bókin inniheldur einkum ljóð eftir þjóðskáldin og a.m.k. eina vísa er eftir Björn Pétursson frá Sléttu.
Með liggur minnisblað um skuldi bænda í Fljótum við Samvinnufélag Fljótamanna.
Ástand skjalanna er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Stílabókin er í stærðinni 20,3 x 16,2 cm.
Bókin inniheldur einkum ljóð, m.a. "Þið þekkið Fljót með ís og snjóinn..."
Kápu vantar á bókina og hún er óhrein.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Innbundin stílabók sem inniheldur handskrifaðar vísur og kvæði eftir ýmsa höfunda, m.a. marga Skagfirðinga.
Sigmundur Baldvinsson (1900-1983)
Úr fórum Arngríms Sigurðssonar. 1 Stílabók og 1 blað sem var inni í bókinni. Á blaði stendur Fjallskilaniðurjöfnun sumarið 1923.
Í stílabók er ýmist handskrifað efni:
Vor í Skagafirði - tileinkað félaginu í "Varmahlíð"
Vor í Skagafirði (tileinkað félaginu „Varmahlíð“)
Nú er vor yfir jörð.
Yfir fjall, yfir fjörð
Hellast fossar af skínandi, blikandi ljóma.
Hér er unaður nýr,
Þegar árdagsblær hlýr
Leysir allt, sem að lifir úr kveljandi dróma.
Hið „ónýta“ og visna að hauðrinu hnígur,
Til himinsins ilmur frá jörðinni stígur.
Yfir bjartsýna þjóð,
Með sín blíðustu ljóð,
Vorsins brosandi herskari ástfanginn, syngjandi flýgur.
Nú ber Mælihnjúk hátt.
Upp í heiðloftið blátt
yfir héraðið rís hann í konungstign sinni.
Eins og vörður í kring
raðar hamranna hring.
Hvílík tign, hvílík dýrð yfir sveitinni minni.
Um Kaldbak og Tindastól tíbráin glitrar.
Niður tignfríða Blönduhlíð berglindin sitrar.
Út við eyjar og sund
sefu8r Ægir sinn blund.
Yfir öll´ eru ríkjandi blessaðar listdísir virtar.
Ó, þú sólvermda land;
Ó, þú sagnauðga land;
Þú ert sólarbros Guðs, á hans albesta degi.
Þú ert allt, sem er hlýtt,
sem er fagurt og frítt,
sem er framsækið, ljósþyrst, á betrunarvegi.
Þú er máttugt, sem Hólastóll goðborins siðar.
Yfir Skaga og Fljót,
yfir fald þinn og fót,
breiðist friðarblær vorsins, sem skjókróna allaufgaðs viðar.
Hér þarf frjálshuga þjóð.
Hér þarf framsækna þjóð.
Hér skal forystumenning frá grundvelli rísa.
Hér þarf listelska lund,
Þó að lúin sé mund.
Hér skal ljóssækin æska á brautina vísa.
Í ljóselskar sálir skal guðtraustið grafið,
sem glampandi breiður á sólarþyrst hafið.
Hér þarf raunsterka sál.
Hér þarf rammíslenskt mál.
Þá er ramminn og myndin í samræmdri einingu vafið.
Tryggvi Guttormur Hjörleifsson Kvaran (1892-1940)