Showing 1192 results

Archival descriptions
Series
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

2 results with digital objects Show results with digital objects

Aðalreikningabók

Aðalreikningabók er um tekjur og gjöld félagsins Vöku og inn í bók eru 6 laus blöð um ýmsar greiðslur sem eru sett í eina örk.

Ungmennafélagið Vaka

Reikningabók

Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Bókhald félagssins með rekstrarreikningum, efnahagsreikningum, fylgiskjölum, skrá yfir útborganir og skrá yfir síldarmjölskaup svo eitthvað sé nefnt.

Fundagerðabók

Harðspjalda handskrifuð bók í nokkuð góðu ástandi en fremsta bókakápa er laus frá kili og hangir með á límmiða sem er á kjöl.

Fóðurbirgðafélag Skefilsstaðahrepps (1936-)

Gögn Guðrúnar Jónasdóttur

Gögn Guðrúnar Jónasdóttur frá Hátúni sem móðir hennar, Steinunn Sigurjónsdóttir hélt til haga. Gögnin eru reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga og eitt einkunnablað frá árinu 1936.

Guðrún Jónasdóttir (1927-2019)

Reikningar

Handskrifuð blöð um bókhald félagsins . Rekstursreikningur frá 1935 ein opna. Skýrslur, pappírsgögn, um viðskipti við bændur, nöfn þeirra og heimili og þeirra bókhaldsfærslur við félagið árið 1935 og 1937.

Nautgriparæktarfélag Lýtingsstaðahrepps (1928 - 1945)

Gögn Ólafs Jónassonar

Skjöl Ólafs Jónassonar sem móðir hans Steinunn Sigurjónsdóttir hafði haldið til haga á heimili þeirra í Hátúni á Langholti í Skagafirði. Skjölin eru meðal annars frá grunnskólagöngu Ólafs ásamt nokkrum reikningum og nótum.

Ólafur Jónasson (1926-2014)

Gögn Sigurðar Jónassonar

Gögn Sigurðar Jónassonar sem móðir hans Steinunn hafði safnað saman og haldið til haga eftir að Sigurður flutti að heiman. Í safninu eru bréf, námsgögn, bókhaldsgögn og minnisblöð.

Sigurður Jónasson (1913-1989)

Reikningabók

Harðpsjalda handskrifuð bók um bókhald, félagsmannaskrá, árgjöld og efnahagsreinkninga félagsins. Bókin er í þokkalegu ástandi en brot er á aftari kápu og los er á kili en blaðsíður eru heilar og vel læsilegar.

Ungmennafélagið Eining

Ýmis gögn

Ýmis skjöl er varða félagið, mjólkurskýrslur, ríkisssjóðsstyrkur og skýrsla um kynferði nyt og fóðrun kúa ásamt erindum og reikningskvittanir. Gögnin eru látin halda sér í ártalaröð eins og þau voru fyrir í safni. Gögnin eru í þokkalegur ástandi en hreinsuð af bréfaklemmum og einstaka blöð blettótt og rifin.

Prófbækur

Í þessu safni eru innbundnar bækur sem halda utan um skráningu á skátaprófum, einnig eru pappírsgögn með staðfestingu á skátaprófi sem Franc Michelsen þreytti 1929. Safnið er í góðu ásigkomulagi og vel læsileg.

Skátafélagið Andvarar (1929-)

Lög og nafnaskrá

Kápulaus stílabók um lög félagsins byrjar á 5. grein. Félagaskrá og fundargerð 11. des. 1932 til 29. okt. 1933.
Bókin er föst saman á heftum sem eru látin halda sér og klippt hefur verið bls úr bókinni.

Kvenfélag Seyluhrepps

Viðtakandi Sigurbjörg

Í safni þessu eru fjölmörg sendibréf og meðylgjandi umslög er bárust til Sigurbjargar á þessu tímabili. Bréfin eru frá hinum ýmsu samferðamönnum Sigurbjargar, frá Akranesi, Siglufirði, Vífilstöðum, Máná, Wiad og Sauðárkróki. Þau eru öll vel læsileg og í góðu ástandi. Í safni þessu liggja líka 3 myndir er fylgdu bréfsefni og eru látnar halda sér hjá því sendibréfi vegna uppruna.

Viðtakandi Magnús

Sendibréf og umslög er bárust til Magnúsar, bróður Sigurbjargar, frá hinum ýmsu samferðamönnum Magnúsar frá ýmsum stöðum s.s Reykjavík, Siglufirði og Viborg. Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi.

Sigurbjörg Gunnarsdóttir (1888-1964)

Fundagerðabók

Ein handskrifuð stílabók laus frá kili en vel læsileg um stofnfund, félagaskrá og aðalfundi félagsins

Kvenfélag Seyluhrepps

Ljósmyndir

Í safninu eru tvær innrammaðar ljósmyndir, bekkjarmynd Sigurbjargar (Boggu) úr Ungmennaskóla Sauðárkróks og hópmynd nemenda í bekkjarferðalagi sumarið 1932.

Margrét Nýbjörg Guðmundsdóttir

Skýrslubók

Harðspjalda handskrifuð bók skýrslur um kynferði, nyt og fóðrun kúnna í félaginu. Fram koma nöfn bæja, kúa, fæðingaár, litur ,faðir/móðir o.s.fr.

Nautgriparæktarfélag Lýtingsstaðahrepps (1928 - 1945)

Bréf

Bréf til Steinunnar, bæði persónuleg bréfaskipti en einnig bréfaskipti er varða skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar og deilumál sem reis við þau skipti.

Dráttarvélagögn

Gögnin innihalda þá starfsemi er var í kringum dráttavél félagsins, traktors vinnustundir, viðgerðir og reikningar. Listi yfir kaupendur Freyr, erindi og bréf o.fr. Gögnin eru í misgóðu ástandi bæði ryðblettir og blöð trosnuð og annað heillegt en gögnin eru vel læsileg.

Búnaðarfélag Akrahrepps

Ýmis skjöl

Blönduð gögn frá félaginu, fundargerðir, húsaleigusamningur, félagaskrá, sendibréf og Neistinn fréttabréf, handskrifuð og prentuð.

Ungmennafélagið Geisli (Tilreyndin)

Reikningar

Pappísrgögn um bókhald. Gögnin eru í góðu ástandi, og innihalda reikningar og félagatal og eru látin halda sér í þeirri röð er þau komu.

Lestrarfélag Seyluhrepps

Bókhaldsskjöl, skýrslur og erindi

Handskrifuð og vélrituð pappírsgögn, einnig formleg og óformleg. Félagatal, skrár yfir bókatitla og bókhaldsgögn. Gögnin eru í misgóðu ástandi en hafa varðveist ágætlega.

Lestrarfélag Miklabæjarsóknar

Reikningabók

Aðalreikningabók harðspjalda handskrifuð með númeraðar blaðsíður, skráðar eru tekjur, styrkir, eignir og gjöld félagsins. Bókin í góðu ástandi og skráð er í bókin heim að blaðsíðu 49 /298. Inn í bók liggur blár pappír Ásetningaskýrsla frá 1944 sem sett er með D-a reikningum frá 1938 - 1950.

Fóðurbirgðafélag Hofshrepps

Bréf og erindi

Í þessu safni er mikið af handskrifuðum og vélrituðum, formlegum og óformlegum bréfum, erindum, skýrslum og fundagerðum. Skjölin eru vel varðveitt og sum hafa rifnað. Gögn eru röðuð í ártalsröð til einföldunar, þau voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum.

Búnaðarfélag Hofshrepps

Ljóðakver

Lítil handskrifuð, kápulaus kver í mjög viðkvæmu ástandi blöð laus, gulnuð og rifin en nokkuð vel læsileg en í kverið hafa verið rituð ljóð frá mörgum aðillum, því hér er ýmis skriftarform í gangi og ekki nöfn undir. Einnig er ritað í hana á hvolfi og allkonar upplýsingar, nöfn og tölur.

Ljósmyndir

Farið var eftir skráningu afhendingaraðila Örlygs Hálfdánarsonar.
Fleiri ljósmyndir ásamt vinnugögnum er að finna hjá safninu.

Ýmis gögn

Hér er að finna ýmis gögn úr búi Steinunnar. Happdrættismiða fyrir sundlaug í Varmahlíð, skömmtunarmiða, jólakort, erfiljóð um Sigurð Jónsson frá Brautarholti, dagskrá frá söngskemmtunar Sigurðar Skagfield, ljóð og fleiri blaðsnepplar sem ekki er ljóst hver skrifaði. Einnig ýmislegt útgefið efni, t.d. Barnablaðið, tímaritið Landvörn, tímaritið Ægir, tímaritið Dýraverndarinn, bókaslitrur og auglýsingar.

Reikningar

Pappírsgögn handskrifuð um rekstrarreikninga félagsins, gögnin eru látin halda sér í uppruna eftir ártali en eru í misgóðu ástandi sum rifinn en vel læsileg. Hreinsuð af bréfaklemmum.

Fundagerðabækur

9 fundagerðabækur úr safni A-1. Elsta bókin sem er frá 1930 inniheldur heimild um stofnun félagsins.

Verkakvennafélagið Aldan (1930-2001)

Results 511 to 595 of 1192