company

Elements area

Taxonomy

Code

Scope note(s)

    Source note(s)

      Display note(s)

        Hierarchical terms

        company

          Equivalent terms

          company

            Associated terms

            company

              16 Archival descriptions results for company

              16 results directly related Exclude narrower terms
              Boðun vegna fjárnáms
              IS HSk N00264-B-4 · Item · 17.05.1999
              Part of Loðskinn hf: Skjalasafn

              Skjalið er 1 síða í A4 stærð, stimplað af sýslumanni. Með fylgir afrit af aðfararbeiðni.

              Búnaðarbanki Íslands (1930-2003)
              IS HSk E00016 · Fonds · 1960 - 1964

              Skjalagögn Félags fiskvinnslustöðva Austur og Norðurlands er ein askja sem inniheldur gögn félagsins frá 1960-1964. Gögnum er skipt eftir innihaldi í fimm hluta sem innihalda, fundargerðir, lög, bókhaldsgögn, erindi og skýslur.
              Skráning var valin eftir umfangi safnsins og einhver flokkun átti sér stað.

              Félag Fiskvinnslustöðva á Austur og Norðurlandi F.A.N. (1961 - 1964)*
              IS HSk N00502 · Fonds · 1925-1998

              Safn sem inniheldur nokkrar afhendingar sem allar tengjast starfsemi Félagsheimilisins Bifrastar og Sauðárkróksbíós h/f, allt frá stofnun þeirra 1925 til 1998. Ekki er vitað nákvæmlega hverjir afhenda skjölin en vitað er að Sigurbjörn Björnsson afhenti tvær öskjur sem í voru fylgiskjöl bókhalds 1992-1996, 21.09.1998. Ein afhendingin, skjöl frá árinu 1966-1969 voru frá U.M.F.T. samkvæmt miða sem fannst meðal skjalanna.

              Afhendingarnar voru allar óskráðar. Byrjað var að gróf flokka öll skjölin, búið var að gróf flokka fylgigögn bókhalds - sérstaklega nýjustu skjölin þar sem þau höfðu verið í möppum og þau látin halda sér að mestu.
              Meiri tími fór í að flokka önnur skjöl, þeirra á meðal voru kjörbréf, fundargerðir, skýrslur um rekstur bíósins og félagsheimilisins, samningar um veitingarekstur, gjaldskrár, fundarboð, einnig bréf og formleg erindi. Í safninu eru áhugaverðar heimildir um sögu Bifrastar, umræður um stækkun og breytingum á félagsheimilinu, einnig skjöl og teikningar því til staðfestingar. Skjölin voru aðgreind og þeim raðað eftir ártölum inn í arkirnar.
              Safnið er allt ágætlega varðveitt og vel læsilegt. Í safninu eru margar pappírsgerðir og þykktir. Skjölin voru í misgóðu ástandi, pappírinn að mestu gulnaður, snjáður og rifinn. Hefti og bréfaklemmur voru hreinsaðar úr elstu skjölunum.

              Talsvert miklu af skjölum var grisjað úr safninu - sérstaklega ef það voru fleiri en eitt eintak til - reynt var að halda betra eintakinu eftir. Mest af því sem var grisjað úr voru vélritaðar fundargerðir og skýrslur sem voru til í 2-3 eintökum. Það sama á við um efnahagsreikninga, gjaldskrár, óútfyllt hlutabréf í Sauðárkróksbíó h/f. Haldið var eftir árituðum hlutabréfum auk óútfylltra eintaka af hvorri upphæð 500.- og 1000 kr.
              Hlutabréf í Félagsheimilinu Bifröst frá 1954 sem voru í eigu Iðnaðamannafélags Sauðárkróks voru afhent af Ingimari Jóhannssyni 29.05.2024. Bréfin voru í hans vörslu eftir að þau voru fjarlægð úr bankahólfi sem Iðnaðarmannafélag Sauðárkróks hafði til afnota hjá Arion Banka - áður Búnaðarbanka Íslands, bréfunum var bætt við í skjalasafnið.

              Á meðal bókhaldsgagna fannst áhugavert skjal, það er leigusamningur sem gerður var við breska setuliðið á Félagsheimilinu Bifröst sem kom til Sauðárkróks og dvaldi hér í um tvö ár, frá 1940 til 1942. Skjal þetta er undirritað af Eysteini Bjarnasyni framkvæmdastjóra og foringja bresku hermannanna.
              Byrjað var að á að flokka bókhaldsgögnin, það kom fljótt í ljós að það yrði lang auðveldast að fara í gegnum þau skjöl. Á meðal bókhaldsgagnanna eru ársreikningar, hlutabréf í Bifröst og Sauðárkróksbíói, afrit kvittana, tékkhefti, færslubækur og skilagreinar. Einnig eru bækur með færslum fyrir happadrættimiðasölu, yfirlit yfir bíósýningar og tekjur vegna þeirra og bók með yfirliti yfir lánadrottna. Hefti í fylgiskjalasafninu voru látin haldast þar sem safnið var mjög umfangsmikið og mikið af skjölunum heftuð saman en bréfaklemmur voru fjarlægðar.
              Í fylgigögnum bókhalds er mikið safn af launaseðlum og skilagreinum launa auk greiðslukortakvittana viðskiptavina félagsheimilisins. Allt þetta eru PERSÓNUGREINANLEG TRÚNAÐARGÖGN.

              Úr safninu var grisjuð ein ljósmynd af togara - líklega norskum, sem fylgdi safninu. Tilgáta er að hann hafi verið keyptur af útgerðarfyrirtækjum á Sauðárkróki en fékkst ekki staðfest um að svo hafi verið.
              Saman við eina afhendinguna voru skjöl sem ekki var greinilegt hvernig tengdust Bifrastarafhendingunum. Með þeim var miði sem á var skrifað "Þröstur Erlingsson afhendir, 10.12.1999". Í safninu var jarbótarskýrsla fyrir Staðarhrepp, almanök frá árinu 1946-1950 og 1 kvittun frá Mjólkursamlagi KS stíluð á Þorstein Jóhannsson Stóru-Gröf, einnig var önnur kvittun sem hann skrifar undir fyrir hönd Sjúkrasamlag Staðarhrepps. Þessi skjöl voru grisjuð úr safninu og skráð sérstaklega.

              Bifröst hf. (1947-
              Fréttatilkynning
              IS HSk N00264-B-8 · Item · 14.10.1999
              Part of Loðskinn hf: Skjalasafn

              Skjalið er 1 síða í A4 stærð. Það er stílað á Útvarp Norðurlands og prentað á bréfsefni Loðskinns.

              Búnaðarbanki Íslands (1930-2003)
              IS HSk N00090 · Fonds · 1945-2016

              Ljósmyndir og skjal um fyrirtæki bræðrana Jóhannes og Kristjáns.

              Jóhannes Friðrik Hansen (1925-2023)
              Loðskinn hf: Skjalasafn
              IS HSk N00264 · Fonds · 1997-1999

              Gögn er varða gjaldþrot félagsins og starfslok framkvæmdastjóra. Með liggur bréfsefni og umslag.

              Loðskinn hf (1969-)
              Stefna
              IS HSk N00264-B-5 · Item · 24.06.1999
              Part of Loðskinn hf: Skjalasafn

              Skjalið er 2 síður í A4 stærð. Á það er skrifaðar tölulegar athugasemdir með blýanti.

              Búnaðarbanki Íslands (1930-2003)
              Umslög
              IS HSk N00264-C-2 · Item · 1997
              Part of Loðskinn hf: Skjalasafn

              Umslög með kennimerki og heimilisfangi Loðskinns hf í 4 eintökum.

              Loðskinn hf (1969-)
              Verðmat á hlutabréfum
              IS HSk N00264-B-1 · Item · 1997
              Part of Loðskinn hf: Skjalasafn

              Skjalið er 6 síður í A4 stærð (þar af forsíða og ein auð síða). Það er gefið út af Búnaðarbankanum og er ljósrit af verðmati á hlutabréfum í Loðskinni hf í júlí 1997.

              Búnaðarbanki Íslands (1930-2003)