- IS HSk N00331-B-A
- Skjalaflokkar
- 1916
Sýnir 30 niðurstöður
Lýsing á skjalasafniUppboðsskrá ásamt upplýsingum um kaupendur og uppboðsverð
- IS HSk N00331-A-D-A
- Málaflokkur
- 1857-1875
Uppboðsskrá ásamt upplýsingum um kaupendur og uppboðsverð. Nafngreindur kaupendur koma úr Seylu- og Staðarhreppi. Af nöfnunum má marka að uppboðið hafi átt sér stað á tímabilinu 1857-1875. Mögulega er þetta uppboðið á dánarbúi Guðmundar Þorvaldssonar (sjá uppboðsskilmála í sama safni).
Uppboðsskilmálar vegna uppboði á dánarbúi Guðmundar Þorvaldssonar
- IS HSk N00331-A-C-B
- Málaflokkur
- 1875
"Skilmálar. Eptir hverjum seldir verða í Auðnum nokkrir fjemunir tilheyrandi að nokkruleiti danarbúi Guðmundar sál. Þorvaldssonar, en að nokkru fátækraeigum hjer í hrepp". Undir plaggið ritar Jón Stefánsson "innheimtumaður" en skjalið er ritað í Holtsmúla, 19. október 1875.
Jón Stefánsson (1836-1906)
Umboð Jóns Jónssonar vegna uppboðs að Hóli í Svartárdal
- IS HSk N00331-B-C-A
- Málaflokkur
- 01.03.1900
"Jeg undirritaður fel hérmeð herra hreppstjóra Jóni Jónssyni á Hafsteinsstöðum í hendur, að meta fyrir mína hönd í uppboðinu að Hóli í Svartárdal laugardaginn þ. 3. marz n.k., til þess að gæta þar hagsmuna minna sem og að ákveða söluskilmála. Skal allt sem tilnefndur herra hreppstjóri Jón Jónsson gjörir fyrir mína hönd á léðu uppboði jafngilt vera og ég gjörði það sjálfur." Þetta er ritað Sauðárkróki 1. mars árið 1900. Vottar eru Ólafur Jónsson og Magnús Benediktsson. Undir plaggið ritar Popp sem hlýtur þá að vera Christian Popp kaupmaður í Skagafirði.
Um arf eftir Árna Helgason á Fjalli
- IS HSk N00331-A-C-A
- Málaflokkur
- 1817
Innihald skjalsins fjallar um það að Árni Helgason á Fjalli í Sæmundarhlíð viðurkenni að eiga "launsoninn" Jón og verið er að tryggja honum arf eftir daga Árna. Undir skjalið rita Árni og Margrét Björnsdóttir kona hans, vitnin eða vottar Jón Sturluson og Bjarni Jónsson. Einnig ritar undir skjalið Ólafur Björnsson og síðan eru nöfn barna Árna tilgreind.
Tilkynning um fátækraútsvar Jóns í Siglunesi
- IS HSk N00331-A-B-C
- Málaflokkur
- 08.10.1877
Á miðanum stendur: "Fátækraútsvar Sgnr. Jóns í Siglunesi er í ár 240 ... sem lagðir eru með ómagnum Guðbjörgu Kristjánsd. samastaðar. Hvanneyrarhrepp 8/10 77. Hreppsnefndin." Ekki fylgja með upplýsingar hvers vegna þessi skjöl eru í þessu skjalasafni.
Á umslaginu stendur: "S.F. Herra Óðals bóndi Jón Jónsson á Siglunesi. áríðandi að berist fljótt og skilvíslega." Ekki sama rithönd og á miðanum.
- IS HSk N00331-A-D
- Skjalaflokkar
- 1857-1875
- IS HSk N00331-A-C
- Skjalaflokkar
- 1817-1875
- IS HSk N00331-B-C
- Skjalaflokkar
- 1900
- IS HSk N00331-A-A-C
- Málaflokkur
- 1862-1872
Fjögur sendibréf sem Þórarinn Magnússon sendir mági sínum, Jóni Jónssyni á Hóli í Sæmundarhlíð. Í bréfunum er mest fjallað um búskap, búrekstur og fjölskyldumál.
Þórarinn Magnússon (1819-1878)
- IS HSk N00331-A-A-A
- Málaflokkur
- 1872
Bréf til Jóns Jónssonar "óðalsbónda" á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði frá Sigurði Kortssyni. Ritað á Bakkakoti 1. mars 1872. Eini maðurinn sem kemur til greina út frá Íslendingabók er Sigurður Kortsson fæddur 10.12.1825 - deyr 14.12.1902. Af bréfinu að dæma þá er hann vinnumaður eða húsmaður á Bakkakoti. Efni bréfsins fjallar um skuld sem Sigurður telur sig eiga inni hjá Jóni.
Sigurður Kortsson (1825-1902)
- IS HSk N00331-A-A-B
- Málaflokkur
- 1862
Metúsalem er að segja mági sínum, Jóni Jónssyni frá Hóli, frá því sem á daga hans drífur. Meðal þess er núningur við tengdafjölskyldu á Bakka, skipsstrand við Finnafjörð, rán á góssi og búskapurinn á Bakka.
Metúsalem Magnússon (1832-1905)
Reikningur Jóns Jónssonar Hóli
- IS HSk N00331-A-E-A
- Málaflokkur
- 1882-1883
Undir reikninginn ritar V. Claessen sem er þá líklega Jean Valgard Claessen sem stýrði verslun Lud. Popp á Sauðárkróki frá 1878 til 1885. Á reikningnum má sjá að Jón hefur verið að versla blek, kaffi, hveiti og fleiri en lagt inn kjöt, gærur og ull.
- IS HSk N00331-A-E
- Skjalaflokkar
- 1882-1883
- IS HSk N00331-B-B
- Skjalaflokkar
- 1870-1920
Kæra til sáttanefndar í Viðvíkursáttaumdæmi ásamt niðurstöðum
- IS HSk N00331-B-D-A
- Málaflokkur
- 1903
Jón Jónsson, hreppstjóri á Hafsteinsstöðum, leitar til sáttanefndar Viðvíkurssáttumdæmi varðandi skuld Þorgils Hjálmarssonar, Hólum, hjá verslun Á. Ásgeirssonar á Ísafirði en Jón hafði umboð verslunarinnar til að innheima þessa skuld. Plaggið inniheldur erindi Jóns (nefnd kæra seinna í plagginu) ásamt viðbrögðum og niðurstöðu. Hefst 5. janúar 1903 og lýkur 13. janúar 1903.
Jón Jónsson Hafsteinsstöðum: Skjalasafn
- IS HSk N00331
- Safn
- 1817-1916
Gögn, opinber og einkagögn, úr fórum Jóns Jónssonar (1850-1939) á Hafsteinsstöðum og föður hans Jóns Jónssonar (1820-1904) á Hóli í Sæmundarhlíð. Um er að ræða bréf, reikninga, leiðbeiningar, skjöl, erindi og tilkynningar.
Jón Jónsson (1820-1904)
Innlagsnóta Jóns Jónssonar hjá Hinum sameinuðu íslensku verslunum, Sauðárkróki
- IS HSk N00331-B-A-A
- Málaflokkur
- 20.09.1916
Innlagsnóta Jóns Jónssonar hjá Hinum sameinuðu íslensku verslunum, Sauðárkróki. Jón leggur inn dilka, ærkjöt og gærur.
- IS HSk N00331-A
- Undirsafn
- 1817-1904
Jón Jónsson (1820-1904)
- IS HSk N00331-B
- Undirsafn
- 1817-1916
Erindi Ólafs Bjarnasonar í Ríp varðandi fjölda gagnamanna
- IS HSk N00331-A-B-B
- Málaflokkur
- 15.09.1877
Erindið fjallar um fjölda gagnamanna sem Hegranesingar þurfi að legga til smölunar í "Laxárdalsfjöllin" og "Útfjöllin". Erindið er að öllum líkendum til hreppsnefndar Staðarhrepps.
- IS HSk N00331-A-B
- Skjalaflokkar
- 1863-1877
- IS HSk N00331-A-B-A
- Málaflokkur
- 09.01.1863
Bréfið er ritað í Eyhildarholti 9. janúar 1863 og er stílað á hreppstjóra. Undir bréfið ritar A. Gíslason sem er að öllum líkendum Árni Gísli Gíslason frá Ketu í Hegranesi en hann fluttist til Suðurnesja upp úr 1860. Árni er að biðja Jón um að innheimta eða taka við fjármunum sem Jón á Kimbastöðum skuldaði honum því hann verði fyrir sunnan um veturinn.
- IS HSk N00331-B-D
- Skjalaflokkar
- 1903
- IS HSk N00331-A-A-C-3
- Eining
- 27.03.1866
- IS HSk N00331-A-A-C-4
- Eining
- 02.12.1872
- IS HSk N00331-A-A-C-1
- Eining
- 18.05.1862
- IS HSk N00331-A-A-C-2
- Eining
- 15.12.1862
- IS HSk N00331-A-A
- Skjalaflokkar
- 1862-1872
Sendibréf til Jóns Jónssonar á Hóli í Sæmundarhlíð
- IS HSk N00331-B-B-A
- Málaflokkur
- 1870 - 1917
Leiðbeiningar og reglur um stafsetningu. Handskrifaðar nótur. Erfitt að aldursgreina en er líklega frá seinni hluta 19. aldar eða fyrri hluta 20. aldar.