Ljóðið er vélritað á A4 pappírsörk. Í yfirskriftinni kemur fram að um sé að ræða afmæliskveðju frá spilafélaga, Birni Eysteini Jónssyni, til Árna Blöndal á áttræðisafmæli. Neðst er handskrifað að Jói í Stapa sé höfundur ljóðsins.
Skjalið er tölvuprentað og inniheldur nafnalista ásamt spakmælum og ljóðlínum, sem og skýringum. Einnig eru á blaðinu myndir af þeim sem um ræðir. Meðfylgjandi er handskrifað blað með sömu vísum og spakmælum.
Þrjú hefti af Bændavísum eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá frá árinu 1955. Eitt hefti um bændur í Akrahrepps í Blönduhlíð. Eitt hefti um bændur í Laxárdál og Skaga. Eitt hefti um um bændur í Lýtingsstaðahreppi og víðar.
Vélritað hefti með 8 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í Laxárdal og á Skaga.
Vélritað hefti með 17 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í framsveitum Skagafjarðar.
Handskrifað bréf, ein pappírsörk í A4 stærð. Með liggur umslag, stílað á Hrólf Þorsteinsson. Í bréfinu eru eftirmæli um Ólaf Jóhannesson á Miklabæ í Blönduhlíð.
Bréfið er handskrifað á 16 pappírsarkir í A4 stærð, á mjög þunnan pappír. Þar af eru 14 arkir með kveðskap, m.a. Einvígisrímum, nafnagátum og lausavísum. Blöðin eru orðin rifin og hafa sum krumpast.
18 línustrikuð blöð með handskrifuðum kveðskap. Mörg ljóðanna eru ort í tilefni af afmælum eða virðast ætluð til flutnings við þorrablót eða slíkar samkomur. Á sumum blaðanna er búið að strika yfir og breyta einstaka orðum. Ritað með rithönd Péturs sjálfs.
Handskrifuð stílabók sem inniheldur: I. "Ljóðmæla-samtíningur. M. h. Jóns Sveinssonar frá Þangskála. Nafngreindir höfundar: Baldvin Jónsson skáldi. Guðmundur Jónsson vinnumaður á Fossi (mun lengi hafa verið vinnumaður á Höskuldsstöðum á Skagaströnd). Jón Gottskálksson frá Selá. Sigurður Stefánsson, Garðshorni, Höfðaströnd. Skúli Bergþórsson, Kálfárdal. II. Um slysfarir á sjó og hrakninga, eftir Jón Sveinsson frá Þangskála. Ehdr.
Ljóðmælin eru í vélrituðu hefti í A6 broti, alls 24 vélritaðar síður, auk ómerktrar kápu. Þau munu vera ort árið 1955, um Önnu Helgadóttur (1913-1976) sem bjó á Skíðastöðum. Letrið er nokkuð óskýrt en ástand skjalsins er gott.
Handskrifuð pappírsörk, inniheldur ljóð með yfirskriftinni Nemesis. Dagsett og undirrituð af HSB. Með fylgir vélrituð örk þar sem ljóðið er skrifað upp, ásamt skýringum á tilurð þess og höfundi.
Þrjú vélrituð blöð með Hellulandsbrag eftir Ólaf Áka Vigfússon. Ólafur lést árið 1961 en þetta skjal hefur mjög líklega verið vélritað og ljósritað nokkuð eftir lát hans. 5 vélirtuð blöð með Útreiða - Túrinn, 38 vísur á 5. bls sem hafa verið vélritaðar og ljósritaðar. 01.02.2024. LVJ
Handskrifuð stílabók, með hendi Jóns Sveinssonar frá Þangskála, sem inniheldur ljóð og sagnaþætti eftir Jón: I. "Saknaðar og minningar ljóð........", Útfararljóð". I Um flutninga fólks til Ameríku úr Skefilsstaðahreppi og Sauðárhreppi á tímabilinu frá 1874-1904". II. "Afburðamenn að afli og leikni í glímu íþróttinni". III. Dulræn sögn viðkomandi Fljótamönnum. Um sjóslysið 6. jan. 1899 . IV. "Sagnir viðkomandi Sölva Helgasyni förumanni".
Ljóðið er ein handskrifuð pappírsörk, undirrituð af Guðrúnu og Páli, Vestmannaeyjum. Um er að ræða eftirmæli um systur Páls, Sigríði Árnadóttur frá Geitaskarði.
10 arkir úr skrifblokk, þéttskrifaðar. Innihalda ljóðið Skagafjörður eftir Lúðvík Kemp. Á fremsta blaðið er ritað til hliðar: "L. Kemp/ Eiríkur Kristinsson."
Skjalið er tvær pappírsarkir límdar á stærri örk. Inniheldur tvö ljóð sem virðast vera sumarkveðjur til Jóhönnu Blöndal, annars vegar frá Siggu og Pétri og hins vegar frá Hönnu og Hannesi.
Ljóðið er handskrifað á á pappírsörk með rithönd Árna. Efst á blaðið er búið að skrifa athugasemd: "Alli í Grímsey sendi mér svartfuglsegg, og mun það vera tilefni ljóðsins.
Ljóðið er handskrifað á miða sem límdur hefur verið á A4 pappírsörk, ásamt mynd af Jóhönnu Blöndal. Aftan á örkina er límdur minnismiði þar sem listuð er upp tónlist flutt við jarðarför Jóhönnu 19. júlí 1988.
"Til Kristjáns tíunda". Kvæði eftir Ásmund Jónsson frá Skúfsstöðum í tilefni af afmæli Kristjáns konungs. Úrklippa úr Morgunblaðinu frá 27. apríl 1947.
Ljóðið er handskrifað á pappírsörk. Um uppkast er að ræða og eru ýmsar leiðréttingar og endurbætur færðar inn á það. Dagsett neðst en höfundur ókunnur.