Safn úr eigu Árna Blöndals og Maríu Gísladóttur konu hans. Einkaskjalasafnið var forflokkað af skjalamyndara áður en það var afhent, í því safni er talsvert af persónulegum gögnum, sendibréf, jólakort, DVD diskar auk ljósmynda frá fjölskyldum þeirra bæði á Íslandi og erlendis. Í safninu eru einnig skjöl sem tengjast félögum sem Árni starfaði og kom að í gegnum tíðina. Safnið var að miklu leyti flokkað og voru skjölin geymd í plastvösum sem voru í plastmöppu. Safnið var yfirfarið og sumt flokkað á ný og því skipt í tvennt, það sem tengist byggingu Sauðármýrar 3 á Sauðárkróki og einkaskjöl. Allt plast var grisjað úr safninu, einnig ljósrit af fundargerðum úr fundargerðabókinni, afrit af ljósmyndum sem teknar voru á stjórnarfundum húsfélagsins að Sauðármýri 3. Hefti voru fjarlægð. Ljósmyndirnar voru settar í sýrufría plastvasa fyrir betri varðveislu, öll pappírsgögn voru sett í arkir. Safnið var í tveimur öskjum.
Gögn er varðar Barnaskólann á Sauðárkróki frá 1914 til 1951, flest með hendi Jóns Þ. Björnssonar skólastjóra. Einnig gögn er varðar "Ungmennaskóla Sauðárkróks".
Persónuleg gögn Björns Jónssonar, Sauðárkróki. Ljósmyndir, ljósritaðar vísur eftir ýmsa höfunda og heillaóskaskeyti. Í safninu eru einnig skjöl foreldra hans, Jóns Björnssonar og Unnar Magnúsdóttur.
Innbundnar og handskrifaðar bækur, fundagerðabók, dagbók og lítið notuð bókhaldsbók. Í safninu er einnig vélrituð og handskrifuð pappírsgögn, reikningur og bókhaldskvittanir. Einnig var á meðal skjalanna og bókanna persónuleg gögn úr db. Egils Helgasonar. Safnið er alt vel læsilegt og ágætlega varðveitt og margt áhugavert sem hægt er að lesa í fundagerðum félagsins og í dagbókinni.
A. Skjöl frá tímabilinu 1880-2012. Hér kennir ýmsa grasa, bæði gögn frá starfi hans sem framkvæmdastjóri prjónastofunnar Vöku, frá þátttöku hans í bæjarpólitík á Sauðárkróki, kveðskapur og tónlist. Þá sankaði hann að sér ýmsum fróðleik um ýmsa söguþætti, svo sem um Miklabæjar-Skottu og loðdýrarækt á Íslandi. B. Ljósmyndir frá tímabilinu 1850-2012. Elstu myndirnar koma líklega frá ættingjum Erlendar en ekki er unnt að greina hvað kemur frá t.d. foreldrum hans og hvað kemur frá Erlendi. Fyrir vikið var allt ljósmyndasafnið fært í hans skjalasafn.
Skjalasafnið inniheldur: Ljósmyndir, bréf, greinargerð, fréttabréf, ferðaþjónustu bækling og umslög. Myndirnar eru teknar í tíð Friðriks sem Félagsmálastjóri Sauðárkróksbæjar á árunum 1979-1982.
9 eintök af fréttabréfum sem voru gefin út á Sauðárkróki á árunum 1970-1984. Blöðin eru Krókstíðindi, Krókur á móti bragði og Bæjarfréttir. Blöðin eiga öll sameiginlegt að fjalla um málefni líðandi stundar í bæjarfélaginu.
Raddir heiðursfélaga Kvenfélags Sauðárkróks, upptaka gerð 2. febrúar að Ásvallagötu 9, Rvk. af Hannesi Péturssyni. Heiðursfélagar kvenfélagsins eru: Elínborg Jónsdóttir, Jórunn Hannesdóttir og Sigríður Sigtryggsdóttir
Fremsta röð talið frá vinstri: Lárus Blöndal, Haraldur Sigurðsson, Jóhannes Hallgrímsson. Miðröð, talið frá vinstri: Haraldur Júlíusson, Guðmundur Björnsson, Hermann Jónsson. Aftasta röð: Gunnar Sigurðsson, Árni Magnússon, Gísli Guðmundsson.
Sjö harðspjalda handskrifaðar fundabækur í misgóðu ástandi en allar nema ein eru með límmiða á kili. Stofnun félagsins og starfsemi er rituð hér og gaman að lesa.
Ljósrit af bréfi frá Rúnari Kristjánssyni til Harðar Ingimarssonar, inniheldur mynd Stefáni Kemp í forgrunni þar sem horft er í norðaustur til Illugastaða. Orð út frá meðfylgjandi mynd eru svo aftan við þar sem ort hefur verið vísur um myndina.
Safn sem Jóhanna Lárentsínusdóttir afhenti safninu og voru í eigu Erlendar Hansen, í safninu voru pappírsgögn og 19 videóspólur. Á videospólunum er efni sem Erlendur tók upp á hinum ýmsu ferðalögum, viðburðum og hátíðum tengdum Skagafirði skagfirðingum á tímabilinu 1997-1999. Í safninu eru líka málgögn stjórnmálaflokkanna á Sauðárkróki vegna sveitastjórnarkosninga sem voru 1994. Auk þeirra eru kynningarbæklingar frá Alþýðuflokknum vegna alþingiskosninga og eru þau gögn mun eldri og án ártals. Í safninu er einnig sérrit um aðalskipulag Sauðárkróks - sérprentun úr sveitarstjórnarmálum 4. tbl. 1970. Ákveðið var að grisja úr safninu 3 VHS spólur sem innihalda upptökur úr sjónvarpsþáttum á RÚV og Stöð 2. Erlendur skráði á spólurnar hvert innihald þeirra er og númeraði þær.
Ýmislegt úr fórum hjónanna Kristjáns Friðrikssonar Hansen og Maríu Björnsdóttur, Sauðárkróki. Heimilisbókhald, minningarbækur, bréf, ljósmyndir, ýmis skjöl og skírteini, útgefnar bækur og fleira.
Skólablaðið 3. árgangur 1. tölublað. 2 eintök. 1 blað er ein örk. Myndskreytingu blaðsins sá Jóhannes Geir Jónsson um þá 11 ára. Þeir sem skrifa í blaðið eru: Guðlaug Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Þóra Jónsdóttir, Hulda Ívarsdóttir, Áslaug Sigfúsdóttir.
Bréfa og ljósmyndasafn úr eigu Guðjóns Sigurðssonar bakara og Ólínu Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans, safnið samanstendur af sendibréfum og erindum m.a til þáverandi sjávarútvegsráðherra Emils Jónssonar (1963). Í safninu eru auk þess 280 pappírskópíur og ljósmyndir, hluti af þeim er úr eigu Björns (Haraldar) Björnssonar, bróður Ólínu. Safn Björns var í litlu tréboxi (gömlu vindlaboxi). Þess má geta að í tréboxinu voru tvær litlar myndamöppur með ljósmyndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar. Ákveðið var að halda söfnunum aðskildum og skrá myndirnar og myndamöppurnar sérstaklega. Þegar byrjað var að fara yfir myndinar komu í ljós nokkrar myndir sem eru úr eigu Björns Björnssonar sem var tengdasonur Ólínu og Guðjóns, nokkrar af myndunum eru merktar honum og hafa liklega verið birtar í Morgunblaðinu (Björn var lengi fréttaritari blaðsins).
Uppdráttur teiknaður af Pétri Sighvatssyni af vatnsveitukerfi fyrir Sauðárkrók 1912. Á kortinu má sjá hvernig vatnsveitan var í upphafi lögð í norðurenda bæjarins. Pétur Sighvatsson var skipaður í nefnd um framkvæmd vatnvsveitu á Sauðárkróki og hefur hann því líklega gert uppdráttinn í tengslum við þá vinnu.
Í safninu eru svart hvítar litmyndir - fjölskyldumyndir og myndir teknar á Sauðárkróki og nokkrum öðrum kennileitum í Skagafirði. Tvær skólamyndir frá Húsmæðrakólanum á Löngumýri. Tvær myndir voru innrammaðar, önnur þeirra er máluð ljósmynd af Suðurgötu 18 og lítil mynd af Rósu og foreldrum hennar. Rammar og umslög utan um myndirnar var grisjað úr safninu. Í safninu eru einnig nokkrar handskrifaðar blaðsíður með lista yfir jólagjafir og jólakortasendingar. Í öskjunni er bréf frá Ingibjörgu, dóttur Rósu um afhendinguna til Héraðsskjalasafnsins.
Bréfasafn Sigurðar, ásamt nokkrum bréfum til eiginkonu hans og foreldra. Einnig ýmis persónuleg gögn og gögn sem varða opinber störf Sigurðar á Sauðárkróki.
Úrklippubókin er samanteknar upplýsingar um Danslagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks. Ýmis efni á hljóðböndunum, m.a. upptökur af útvarpsefni ruv og æfing hjá kirkjukór.
Safn sem inniheldur ýmisleg smáprent, sem dæmi; auglýsingabæklingar, einblöðungar, dagskrár, yfirlit yfir viðburði og kynningarefni er tengjast viðburðum og söfnum í Skagafirði. Úr safninu var grisjaðir kynningarbæklingar og mánaðaritið "Heima er bezt" 10, 1985, auglýsinga- og dagskráritið Sjónhornið og kynningarefni þar sem voru tvö eintök. Einnig var fjarlægt allt efni sem tengdist Skagafirði ekki beint. Í sumum tilvikum voru bæklingar og rit merkt skjalamyndara ásamt dagsetningu og ártali. Hefti voru fjarlægð úr einstökum ritum að undanskyldum þykkri ritum sem var leyft að halda sér óbreyttu. Safnið er vel varðveitt.
Ljósmyndasafn úr eigu Sigurlaugar Jónsdóttur og Gunnars Helgasonar. Í safninu eru 20 litmyndir, í því eru auk þess þrjár filmur og 9 svart hvítar ljósmyndir. Flestar ljósmyndirnar eru teknar í 75 ára afmæli Jóns Nikodemussonar þann 7. apríl 1980. Einnig eru nokkrar myndir sem teknar eru á Tyrfingsstöðum og Gilsbakka á Kjálka. Allar litmyndirnar eru merktar á bakhliðinni en minna er um það með pappírskópíurnar.
Gjafabréf Eyþórs Stefánssonar til Tónlistarskóla Sauðárkróks. Eyþór gefur 1.000.000 króna til sjóðsstofnunar sem átti að "þjóna því markmiði að styrkja þá nemendur skólans, er hyggja á framhaldsnám í hljóðfæraleik eða söng, eftir að hafa lokið tilskyldum prófum við skólann."