Print preview Close

Showing 841 results

Archival descriptions
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** Subseries
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

Gjaldskrár fyrir Bifröst

8 skjöl sem innihalda gjaldskrár fyrir Félagsheimilið Bifröst - ekki er um samfellt tímabil að ræða, það vantar eflaust nokkrar inn í. Elsta skjalið (1954) sem er í þessu safni inniheldur bæði reglugerð og gjaldskrá fyrir félagsheimilið.

Gjaldskrá 1927-1954

Innbundin bók og handskrifuð. Í bókinni eru skráð nöfn félaga U.M.F.T. og rukkuð árs- og inntökugjöld frá árinu 1927-1954. Bókin heldur einnig gott yfirlit yfir félagatal og félagagjald U.M.F.T. á þessu tímabili.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Gísli Ólafsson og Jakobína Þorleifsdóttir

Ýmis símskeyti og minningarkort úr fórum Gísla Ólafssonar, skálds frá Eiríksstöðum og konu hans Jakobínu Þorleifsdóttur. Símskeytin bárust í tilefni stórafmælis þeirra en minningar og samúðarkortin eftir andlát þeirra beggja.

Gísli Ólafsson (1885-1967)

Fyrirspurn Berglindar Rósu Bjarnadóttur

Erindi frá Berglindi Rós vegna lokaverkefnis hennar til B.Ed - prófs á grunnskólabraut í KHÍ sem fjallar um tónlistarskóla í Skagafirði frá 1965-2005. Um er að ræða spurningar Berglindar og svör frá Önnu Kristínu um stofnun tónlistarskólans og starfsemi hans á umræddu tímabili.

Fylgiskjöl

Bókhaldsgögn sem komum með einkasafni Harðar Jónssonar,hreinsuð en umfang er mikið og gögnin eru að mestu í áratalsröð til einföldunar og rekjanleik. Gögnin eru hreinsuð af möppum, plasti, bréfaklemmum, tvíritum og heftum en einhver hefti látin halda sér. Gögnin eru í nokkuð góðu ásigkomulagi og læsileg.

Sparisjóður Hólahrepps

Fylgigögn bókhalds 1970-1978

Fylgigögn bókhalds, framkvæmdalán- skuldabréf vegna framkvæmda á Vindheimamelum (1970), efnahags- og rekstrarreikningur, kvittanir og sölureikningar. Einnig er teikning Halldórs Einarssyni af lógó-i Ungmennafélagsins Glóðafeykis á bréfsefni frá sportfatnaðar framleiðandanum Henson. Eyðublað frá Landssíma Íslands með handskrifuðum texta (ódagsett og án ártals).

Fylgigögn bókhalds 1950-1959

Fylgigögn bókhalds, forprentaðar og handskrifaðar kvittanir og sölureikningar, efnahags- og rekstrarreikningar. 1 þunn stílabók (viðskiptabók) merkt Brodda Björnssyni Framnesi, í bókinni er tekju- og gjaldaliðir fyrir 1958 færðir inn, aðeins ein blaðíða er nýtt í bókinni.

Fylgigögn bókhalds 1937-1998

Mikið safn af bókhaldsgögnum frá Sauðárkróksbíói og sérstaklega frá Félagsheimilinu Biröst. Í safninu eru fylgiskjöl bókhalds - sérstaklega 1996-1998, lánadrottnabók, kvittanir, tékkhefti, launaseðlar, skilagreinar og ársreikningar.

Fylgigögn bókhalds 1934-1949

Fylgigögn bókhalds, forprentuð og handskrifuð pappírsgögn. Kvittanir og sölureikningar, efnahagsreikningar og tvö skuldabréfalán Hafnarsjóðs Sauðárkrókskaupsstaðar (1947) upp á 100 kr. hvort. Bréfin voru gefin út til að standast kostnað við hafnarbætur á Sauðárkróki. Lánið var tryggt með ábyrgð ríkissjóðs.

Fundir og samþykktir

Gögnin hafa að geyma hluthafasamkomulag, vinnureglur, aðalfundi og samþykktir. Einnig undirskriftarlistar með rithandarsýnum bankastjóra og starfsmanna ( 1982 - 1997) 5 rit og laus blöð rithandarsýnishorn viskiptamanna ( 1976 ) Gögn í góðu ástandi

Fundargerðir og erindi Samtaka Tónlistarskólastjórnenda 1983-1999

Fundagerðir, fundarboð, lög og reglugerðir og erindi sem varða Samtök Tónlistarskólastjóra (STS) einnig rekstrar- og efnahagsreikningar samtakanna og félagatal. Fundarboð á fundi Kennarasambands Norðurlands vestra og skólastjórnenda tónlistarskóla á Norðurlandi vestra. Í safninu er einnig handskrifaðir minnispunktar Önnu Kristínar af fundi sem haldinn var 3. nóvember 1987.

Fundargerð stofnfundar Steinullarverksmiðjunnar

2 skjöl sem tengjast stofnun Steinullarverksmiðjunnar hf (1979), annars vegar er skjal um stofnun hlutafélags um reksturinn og hins vegar er skjal með lögum og reglum félagsins. Bæði skjölin eru óundirrituð, en handskrifað var á annað skjalið heiti félagsins og upphæð hlutafjárins.

Fundagerðir vegna Miðgarðs 2001-2006

Í þessu safni eru fundagerðir húsnefndar og eigenda Félagsheimilisins Miðgarðs. Í fundagerðunum er skráðar upplýsingar um rekstur félagsheimilins og fyrirhugaðar breytingar sem gera átti á Miðgarði. Í fundargerð sem dagsett er 16.05.2001 er rekstarafkoma hússins rædd, fundargerð og ársreikningurinn eru heftuð saman.

Fundagerðir körfuknattleiksdeildar UMFT

Innbundin og handskrifuð fundargerðabók fyrir stofnfund körfuknattleiksdeildar Umf. Tindastóls ásamt lista yfir stofnendurm deildarinnar dags. 14. des.1969. Bókin er vel varðveitt og í góðu ásigkomulagi og læsileg. Aðeins sex fundagerðir eru skráðar í bókina, sú síðasta var skráð 14.2.1971.

Ungmennafélag Tindastóls

Fundagerðir körfuknattleiksdeildar UMFT

Innbundin og handskrifuð bók, án kjöls og að öðru leyti í ágætu ásigkomulagi, Bókin er vel læsileg. Í bókinni eru laus pappírsgögn sem tengjast fundagerðunum. Á öðru blaðinu er handskrifuð fundagerð fyrir foreldrafund, dags.22.11.1993 og tölvuútprentuð fundargerð frá Formannafundi KKÍ, dags. 8. jan.1994.

Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )

Fundagerðabók 1982-1994

Handskrifaðar fundagerðir frá 27.02.1982 - 22.02.1994. Fyrsta blaðsíða bókarinnar er áberandi skreytt. Í bókinni eru nokkrir litlir línustrikaðir minnismiðar, á einum miðanum eru nöfn 17 kvenfélagskvenna og á hinum er textinn; "Fórum 11 kvenf.konur á leik(rit) í Miðgarði 14.jan.1989. Uppreisnin á Ísafirði. Kaffi á Hótel Varmahlíð". Einnig er listi á rúðustrikuðu blaði þar sem talið er upp útgjöld til hinna ýmissa málefna sem kvenfélagið styrkti á tímabilinu 1942-1983. Tveir miðar með nöfnum og heimilisföngum félagskvenna sem voru á námskeiði í pennasaumi sem haldið var 12.01.1985 í Hlíðarhúsinu og taumálunarnámskeiði sem haldið var í Hlíðarhúsinu 1984. Auk þessa eru handskrifaðar kveðjur til kvenfélagskvenna frá Ellu Halldórsdóttur og Sigurlaugu Ólafsdóttur (Hólum). Í bókinni var einnig ferðasaga í bundnu máli eftir Rósu Bergsdóttur sem sett var í örk með öðrum kveðskap.

Fundagerðabók 1945-1981

Í bókina eru skráðar fundagerðir félagsins frá 04.03.1944 - 12.11.1981. Í bókinni voru ýmis pappírsgögn, þar á meðal jólakveðja til kvenfélagskvenna frá Þóreyju og Þórði Eyjólfssyni, handskrifað uppkast að lögum Kvenfélagsins Óskar, ódagsett og erindi frá U.M.F. Geisla í Óslandshlíð dagsett 20.08.1962, kvæði eftir Emmu Hansen sem tileinkað er Sambandi Skagfirskra kvenna í tilefni afmælis sambandsins. Ennig var handskrifað sendibréf frá Rannveigu Líndal til Sigurbjargar Halldórsdóttur, dagsett 28. mars 1941 það bréf var sett í örk með öðrum bréfum frá Rannveigu sem fundust í safninu.

Results 426 to 510 of 841