Skagfirzka Söngsveitin. Samsöngur í Miðgarði föstudaginn 2. júlí 1971 kl 08.30 Söngstjóri Snæbjörg Snæbjarnardóttir Einsöngvarar: Guðrún Snæbjarnardóttir og Friðbjörn G. Jónsson Við hljóðfærið: Sigríður Auðuns.
1x skýrsla miðstjórnar Framsóknarflokksins , mars 1934. 1x tillögur til breytinga á lögum Framsóknarflokksins samþ. á aðalfundi miðstjórnarinnar - 10.feb., 1945. 1x bréf merkt "trúnaðarmál" - 20. febrúar 1945. 1x lög Framsóknarflokksins- 15. marz 1941. 1 x Bréf frá miðstjórn Framsóknarflokksins. - 20. apríl 1945.
4 teiknaðar myndir. Teikning 1: Mynd af blómum í blómavasa Teikning 2: Mynd af hesti. Teikning 3: Mynd af blómi. Teikning 4: Mynd af hesti og tveimur hundum.
Teikningar eru pakkaðar í sér öskju/umbúðir vegna stærðar. Merkt H-24
2 bréf frá Ingunni Árnadóttir. Fyrra bréfið er skrifað í Dúki 22. febrúar 1927 og er til Þorbjargar Árnadóttur systur hennar. Seinna bréfið er skrifað í Dúki 26. mars 1929 og er til "litla frænda".
5 handskrifuð bréf frá Elsu Þuríði til Guðlaugar. 1 úrklippa úr blaðinu "Laugarnesskólinn" sem sýnir sýnishorn úr ritsmíðum og teikningum nemenda skólans. Þar er lítil grein eftir Elsu.
Á miðanum stendur: "Fátækraútsvar Sgnr. Jóns í Siglunesi er í ár 240 ... sem lagðir eru með ómagnum Guðbjörgu Kristjánsd. samastaðar. Hvanneyrarhrepp 8/10 77. Hreppsnefndin." Ekki fylgja með upplýsingar hvers vegna þessi skjöl eru í þessu skjalasafni. Á umslaginu stendur: "S.F. Herra Óðals bóndi Jón Jónsson á Siglunesi. áríðandi að berist fljótt og skilvíslega." Ekki sama rithönd og á miðanum.
"Jeg undirritaður fel hérmeð herra hreppstjóra Jóni Jónssyni á Hafsteinsstöðum í hendur, að meta fyrir mína hönd í uppboðinu að Hóli í Svartárdal laugardaginn þ. 3. marz n.k., til þess að gæta þar hagsmuna minna sem og að ákveða söluskilmála. Skal allt sem tilnefndur herra hreppstjóri Jón Jónsson gjörir fyrir mína hönd á léðu uppboði jafngilt vera og ég gjörði það sjálfur." Þetta er ritað Sauðárkróki 1. mars árið 1900. Vottar eru Ólafur Jónsson og Magnús Benediktsson. Undir plaggið ritar Popp sem hlýtur þá að vera Christian Popp kaupmaður í Skagafirði.
Gögn varðandi minnisblöð og reikninga, frá sýslufundi 1932. Í örkinni eru 15 reikningar og minnisblöð af ýmsu tagi, minnislappar, umslög og reikningseyðublöð. Ástand skjalanna er gott.
Þykk innbundin bók sem er merkt á kili; Fjárbók. Bókin er með forprentuðum blaðsíðum og handskrifuðum upplýsingum um ær og hrúta í Fellshreppi frá 1950-1964. Bókin hefur varðveist vel og er ekki handskrifað í hana nema að hluta til, eða um helming blaða.
Forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum upplýsingum um hrútadóma, skrár yfir ásett hrútlömb, yfirlitsskýrslur yfir fjölda áa ofl. Talsvert af skýrslunum voru í tví- og þríriti eða ljósrituð, afritin voru fjarlægð úr safninu - þar sem því var við komið en annað fékk að vera áfram. Öll gögnin voru í möppu og eru vel læsileg og vel með farin. Millispjöld úr plasti og hefti fjarlægð.
Myndir úr leikritum: Músagildran, Gullna hliðið, sem sýnt var árið 1965. Júnó og páfuglinn sýnt árið 1962. Þjófar, lík og falar konur sýnt árið 1967. Fædd í gær sýnt 1964.
Lög t.d. Sameignafélagsins Hofsósi, Ungmennasamband Skagafjarðar. Þetta eru vélritu blöð í misjöfnu ástandi og nokkur blöð orðið fyrir vatnsskaða. Ártöl eru ekki á öllum gögnum og má gera ráð fyrir að gögn geti verið eldri.
Litlar bækur frá ÍSÍ um lög annarra s.s knattspyrnulög, glímulög og lög íþróttasambands Íslands. Bækurnar eru óbundnar og vantar kápu á nokkrar annars heillegar.
Starfsskýrslur og Árskýrslur U.M.F.Í og ÍSÍ. Innbundinn árskýrsla UMSS og litlar árskýrslur frá U.M.F.H. 1947 - 1966. Gögn í góðu ástandi nokkuð heilleg blöð.
Ýmis bréfasamskipta gögn frá félagastarfi U.M.F.H og eyðublöð og auglýsingar. Gögnin eru í ýmsu ástandi, rifin blöð, gulnuð og blettótt ( vökvi og ryð) en læsileg.
Jón Sveinsson frá Þangskála. Sagnaþættir. Ehdr. I. "Sagnaþáttur af Heiðar og Veðramóts ættar fjölskyldunni". II. "Formenn í Skefilsstaðahreppi" (um 1890). III. "Slysfarir í Skagaheiði".