Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Kristjáni Blöndal. Lóðin liggur 4 metrum austan við akbrautina norðan við 12 metra breitt vegastæði austan frá brautinni. 75 metar á lengd frá norðri til suðurs. 26 metrar á breidd frá vestri til austurs. samtals 1950 fermetra.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Haraldi Siguðrssyni. Lóðin liggur vestanvert við alfaraveginn norðan við lóð Þorsteins Jónssonar. 20 álnir á lengd frá norðri til suðurs 50 álnir á breidd frá austri til vesturs. samtals 1000 ferhyrningsálnir.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Jónasi Sveinssyni.Lóðin er kennd við húsið Grund og liggur vestanvert við alfaraveginn sunnan við lóð snikkara Þorsteins Sigurssonar. 35 álnir á lengd frá norðri til suðurs. 50 álnir á breidd frá austri til vesturs. Samtals 1750 ferhyrningsálnir.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Kristjáni Sveinssyni. Lóðin liggur vestan við gamla lestaveginn norðan við lóð Ólafs Jóhannssonar. 18,8 metrar frá suðri til norðurs. 25 metrar frá austri til vesturs. Samtals 470 fermetrar.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa húseiganda Þorvaldi Einarssyni. Lóðin liggur norðan við lóð Jónasar Kristjánssonar vestan við lóðir þeirra Haralds Sigurðssonar og Daníels Davíðssonar. 15.2 metrar frá suðri til norðurs 14.2 metrar frá austri til vesturs samtals 246 fermetrar.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa snikkara Þorsteini Sigurðssyni. Lóð liggur vestanvert við alfaraveginn 100 álnum fyrir sunnan kauptúnssstæðið á Sauðárkrók 50 álnir á lengd frá norðri til suðurs. 80 álnir á breidd frá austir til vesturs. Samtals 4000 ferhyrningsálnir.
Útmæld lóð í landi þjóðjarðarinnar Sauðá handa Pétri Eiriksen. Lóðin liggur vestanvert við alfaraveginn frá því 5 álnum norðan við Hallgrímshús og 1 álin vestan við húsið. 60 álnir á lengd frá norðri til suðurs. 30 álnir á breidd frá vestri til austurs samtals 1800 ferhyrningsálnir.
Bókin er óinnbundin og línustrikuð og hefur verið nýtt til að skrá útlán og skil á bókum, fyrstu færslurnar eru frá 1913-1926. Binding bókarinnar er í slæmu ástandi að öðru leyti hefur hún varðveist ágætlega. Í bókinni er laus blöð með lögum félagsins ódagsett og óundirrituð.
Bókin er innbundin stílabók í stærðinni 22,5 x 18 sm. Í hana eru færð útlán félagsins á árunum 1939-1953. Búið er að klippa nokkrar blaðsíður fremst úr bókinni.
Stór blá stílabók, handskrifuð í góðu ástandi. Segir frá útleigu bóka félagsins. En aftast er skráð fundagerð frá 1978, þar segir meðal annars: Lögð hefur verið fram tillaga stjórnar um að afhenda hreppnum bókasafn félagsins. Safnið er nú nær eingöngu fjármagnað af hreppsfé fyrir liggur að ráða bót á húsakynnum safnsins og því þykir stjórn eðlilegt að safnið verði í eign og umsjón Sveitafélagsins.
Erlend nótnahefti, merkt Stefáni Guðmundssyni. Ítalía um 30 eintök sum í tvíriti. Einnig eru eintök þar sem mynd af Stefáni kemur fram á forsíðu nótnabókar.
Útdráttur úr Jarðabók Árna Magnússonar - Vaglir og Þverá. Skjalið er ódagsett en undir það ritar "Björn m ólsen". Björn hefur einnig sett stimpil sinn á skjalið: "Björn Magnússon Ólsen. Dr, phil. Reykjavík". Björn deyr 1919 svo það má leiða líkum að því að hann hafi unnið þetta verkefni á tímabilinu 1904-1919.
Útdrátturinn er ritaður á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar lán úr Landssjóði til stofnunar kornforðabús í Fellshreppi. Skjalið er nokkuð óhreint og snjáð.
Útdrátturinn er handskrifað4r á pappírsörk í A4 broti. Hann varða ályktanir á almennum hreppsfundi í Fellshreppi í aðdraganda sýslufundar. Ástand skjalsins er gott.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árið 1967. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árið 1965-1967. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árið 1963. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árin 1962-1963. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árin 1961-1962. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árið 1961. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árin 1960-1961. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árin 1959-1960. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Útboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur samhljóða afrit, ásamt fjórum pappírsörkum í A4 stærð sem innihalda tilboð. Varðar grjótflutning vegna Vesturósbrúar. Ástand skjalsins er gott.
Útboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar malarkeyrslu í sýsluveginn í Blönduhlíð. Ástand skjalsins er gott.
Útvarpsþáttur í umsjón Agnars Guðnasonar sem heitir Út um hvippinn og hvappinn, viðtöl við Guðjón Hallgrímsson b. Norðurmýri í Vatnsdal og Magnús Guðmundsson í Dalbæ Hrunamannahreppi.
Úrskurðurinn er fjölritaður á tvær pappírsarkir í folio stærð. Hann varðar reikninga bæjarins. Með liggur umsögn bæjarstjóra um úrskurðinn, einnig tvær pappírsarkir í folio stærð. Ástand skjalsins er gott.
15 pappírsarkir í ýmsum stærðum ásamt einni heftaðri bókhaldsbók. Úrlausnir verkefna frá bréfaskóla SÍS. Sum hafa verið yfirfarin, önnur eru uppköst. Ástand skjalanna er gott.