Afsal þar sem Nikodemus Jónsson á Fyrstabóli selur og afsalar húseign sinni Fyrstabóli / Lindargötu 7 til Jóns sonar síns. Afsalið nær til húseignarinnar ásamt lóðinni Hjaltastað á Sauðárkróki og var umsamið kaupverð 3000 kr. Í afsalinu var skilyrði fyrir því að Nikodemus fengi afnotarétt af norðurstofu í húsinu á meðan hann lifði. Bréfið er dagsett 7. janúar 1930, undirritað og stimplað til þinglýsingar af Sýslumanninum í Skagafjarðarsýslu.
Afsal Arngríms Sigurðssonar til Þóris og Guðlaugar. Með þessu bréfi afsalar hann til Þóris 1/3 hluta úr eignarjörð Litlu-Gröf í Staðarhreppi og 1/3 hluta úr eignarjörðinni Litlu-Gröf í Staðarhreppi til Guðlaugar. Undir skjalið skrifa tveir vottar og sýslumaðurinn sem er Stefán Sigurðsson.
Bréf þar sem Jón S Nikódemusson afsalar Magnúsi Jónssyni, Brekkugötu 3 Sauðárkróki lóð er honum var mæld út vegna byggingar ofan við íbúðarhúsið Lindargötu 7, Sauðárkróki. Engin dagetning er á bréfinu.
Afsalið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar afsal erfingja Guðlaugs Bergsson (föður Tryggva Guðlaugssonar) á húseigninni Grunargötu 11 (Pólstjörnunni) á Dalvík. Skjalið er nokkuð upplitað af óhreinindum og krumpað.
Innbundið hefti þar sem fjallað er um ágreining innan bæjarstjórnar Sauðárkróks um bæjarreikningana 1959-1960. Fyrir útgáfu heftisins stóðu frambjóðendur I-listans þeir Skafti Magnússon og Erlendur Hansen.
Samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar, sem var í formi 220 stóla á áhorfendasvæði sundlaugarinnar.
Gögnin innihalda skýrslur Hólahrepps um daglegan akstur og helgarakstur Grunnskóla að Hólum ásamt skýrslum ökumanna, akstursleiðum og kort, nemendur, bæir og einkavegir. Einnig eru tilgreindir bílstjórar og bílakostur þeirra.
Efni bréfs: Varðar söngmót, styrkbeiðnir o.fl. Meðfylgjandi er fundargerð aðalfundar Heklu, sambands norðlenskra karlakóra. Undir bréfið skrifa Áskell Jónsson, formaður og Árni Jóhannesson, gjaldkeri.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Varðar ákvörðun nefndarinnar um að skipa húsráðaendum að bera ösku, sorp og önnur óhreindingi í sjó út, að viðlögðum sektum. Skjalið er óhreint.
8 litprentaðar síður á tímaritapappír í stærðinni 22x32 cm. Fylgirit með tímaritinu Vikunni sem fjallar um framboð Alberts Guðmundsson til forseta árið 1980. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er vélritað á pappírsörk í folio broti. Með liggur samhljóða afrit, gert með kalkipappír. Varðar löggjöf um sveitarstjórnakosningar. Ástand skjalsins er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar héraðshátíð í Garði í Hegranesi 1930. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Áltið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fjallskilamál í Sauðárkrókshreppi. Með liggur minnismiði um fjallskilamál. Ástand skjalanna er gott.