Showing 3 results

Archival descriptions
IS HSk E00026 · Fonds · 1905 - 1991

Safnið inniheldur sjö innbundnar og handskrifaðar bækur, sú elsta er frá 1905 Einnig eru lausagögn sem tengjast reikningsskil félagsins og boðun á ársþing U.M.S.S. ásamt kjörbréfi og kosningu innan ungmennafélagsins.
Gögnin hafa öll varðveist mjög vel og eru í góðu ásigkomulagi.

Ungmennafélagið Æskan (1905-)
IS HSk N00237 · Fonds · 1797-1998

Staðarhreppur
Um er að ræða nokkrar afhendingar sem hafa verið skráðar í eitt safn og samanstendur af fundagerða-, bréfa- og reikningabókum. Einnig sveitabækur, virðingabækur, búnaðarskýrslur, uppskrifta- og uppboðsbækur. Skattskýrslur, tryggingabækur og fylgiskjöl bókhalds. Fundagerðir hrepps-, skóla- og búnaðarnefnda svo einhver dæmi séu nefnd. Í safninu eru skjöl er varða lagningu hitaveitu, áveitufélag, félagsheimilið Melsgil og aðkoma hreppsins að gæsluvelli fyrir börn, grunnskólanum í Varmahlíð auk kaup- og afsalssamningum á jörðum. Elstu gögn sem fundust í safninu er bréfabók Staðarhrepps frá 1797.

Um er að ræða nokkrar afhendingar sem búið var að skrá að hluta til, en talsvert af gögnum sem voru enn óskráð. Byrjað á að fara yfir allt safnið og það flokkað eins og kostur var og grisjað úr því allt lauslegt plast. Tvítökur, gögn sem voru í safninu í fleiri en einu eintaki var grisjað úr, þar á meðal voru ársreikningar (1981, 1983, 1989, 1990 og 1994 - sundurliðun ársreiknings 1995).
Ljósrit af tímaritsgreinum sem eru aðgengilegar á vefnum (Reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra), fundagerðum og "hreppspóstinum" sem til voru í fleiri en einu eintaki var grisjað úr.
Mikið var af pappír og umslögum sem notað var til sundurgreina gögn sem var grisjað úr safninu. Plastvasar, millispjöld bæði úr plasti og pappír og þunnar plastmöppur voru grisjaðar úr. Ryðguð hefti og allar bréfaklemmur voru fjarlægðar.

Elstu skjölin voru sett hvert og eitt í sýrufríar arkir til frekari varðveislu. Mikið af elstu bókunum sem eru mjög viðkvæmar fyrir allri meðhöndlun voru myndaðar til að varðveita þær betur og auðvelda aðgengi að þeim.

Ljósrit af blaðagreinum var grisjað úr þar sem þær eru aðgengilegar á vefnum. Lög og reglugerðir frá Alþingi, dreifibréf, tvítekningar, útfyllingaform vegna kosninga (að undanskyldu 1 eintaki var haldið eftir sem sýnishorn), öll umslög grisjuð úr. Röðun innan flokka er í tímaröð en sumstaðar eru eyður þar sem gögn hafa glatast m.a. í bókhaldinu.

Staðarhreppur (1700-1998)
IS HSk N00542 · Fonds · 1961-2000

Gögn er varða Félagsheimilið Melsgil, Staðarhreppi frá 1961-2000. Ekki er vitað hver skjalamyndari var. Í safninu er afsöl og lóðarleigusamningur frá óðalsbændum á Reynistað um lóðina undir félagsheimilið. Einnig eru skuldabréf og veðbandslausnir fyrir umrædda lóð. Ýmis skjöl, bréf, teikningar og erindi er varða rekstur og eignarhluta í félagsheimilinu auk fylgigögnum bókhalds og skoðanakönnun á meðal hreppsbúa um viðbyggingu við húsið.

Félagsheimilið Melsgil