Showing 63186 results

Archival descriptions
Print preview Hierarchy View:

38488 results with digital objects Show results with digital objects

Fundagerðabók 1945-1955

Ein stílabók með línustrikuðum blaðsíðum sem á eru handskrifaðar fundagerðir Lýtingsstaðadeild Kaupfélags Skagfirðinga 1945-1955. Aðeins helmingur bókarinnar er nýttur, restin eru auðar blaðsíður. Límborði er á kjöl bókarinnar, bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt. Fjarlægja þurfti heftin innan úr bókinni þar sem þau voru farin að skemma út frá sér. Aftast í bókinni var komið fyrir mikið magn af lausum pappírsgögnum í A5 og A4 stærð, bæði línustrikuð og rúðustrikuð með handrituðum fundagerðum. Þetta mikla magn af pappír aflagaði bókina.
Fremst í bókinni var komið fyrir blaði þar sem staðfest er fyrir móttöku á bókinni og skjölunum á Héraðsskjalasafninu 24.2.1974.

Bókaskrá

Lítil harðspjalda handskrifuð bók um bókaskráningu númeruð 1. Snorra Edda til 1682. Húnvetningaljóð. Bókin er í lélegu ástandi. Ekkert ártal er við þessa skráningu.

Lestrarfélag Goðdalasóknar

Aðalreikningar

Ýmis konar gögn lestrarfélagsins, flokkuð hér eins og þau voru afhent í umslögum, eftir ártölum og það látið halda sér en hreinsuð af heftum, bréfaklemmum og umslögum sem þau lágu í. Í gögnum eru m. a. kvittanir, reikningar, skrár og skýrslur í ártalaröð.

Lestrarfélag Goðdalasóknar

ssk1

Formenn kvenfélaga og stjórn SSK - formannafundur í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki 1977. Fremri röð frá vinstri: Pála Pálsdóttir - Hofsósi, Ragnheiður Ólafsdóttir - Glaumbæ, Selma Magnúsdóttir - Sauðárkróki - gjaldkeri SSK, Helga Kristjánsdóttir - Silfrastöðum - formaður SSK, Solveig Arnórsdóttir - Útvík - ritari SSK, Guðrún Steinsdóttir - Reynisstað, Halldóra Ólafsdóttir - Skálá - Fellshreppi. Aftari röð frá vinstri: Ingibjörg Jóhannesdóttir - Miðgrund, Guðlaug Márusdóttir - Haganesvík, Fjóla Þorleifsdóttir - Sauðárkróki, Sigrún Hróbjartsdóttir - Hamri, Guðrún L. Ásgeirsdóttir - Mælifelli, Sigrún Aadnegard - Bergsstöðum, Hólmfríður Pálsdóttir - Sauðárkróki - orlofsnefndarkona, Friðfríður Jóhannsdóttir - Hlíð Hólahreppi, Anna Jónsdóttir - Laufhóli, Þóra Kristjánsdóttir - Óslandi.

Akureyri 02.12.1967

Efni bréfs: Varðar söngmót, styrkbeiðnir o.fl. Meðfylgjandi er fundargerð aðalfundar Heklu, sambands norðlenskra karlakóra.
Undir bréfið skrifa Áskell Jónsson, formaður og Árni Jóhannesson, gjaldkeri.

Fundarbók fyrir félagið Fram ( Fundagerðabók )

Harðspjalda handskrifuð bók í viðkvæmu ástandi og með laus blöð. Kjölur er með límbandsborða og heldur bók saman.
Bókin byrjar á framhald fundagerðar 1913.
Tvö handskrifuð blöð frá aðalfundi 1908 26. jan til vor 1914. Þar sem gerð er grein fyrir hvenær fundir eru haldnir og hverjir ganga í og úr félaginu. í lok bréfs segir þá er ekki hægt að rekja útdrátt úr gjörðum fél lengra því findargjörðir eru ekki fyrir hendi um störf 14.09.1914 - 16.01.1929

Ungmennafélagið Fram (1907-)

Mynd 1

Við brú yfir Affallann. Í forgrunni eru tveir vegavinnumenn með verkfæri, Felix Jósafatsson t.v. og Björn Gíslason. Glóðafeykir í baksýn t.v. Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

Pappírsgögn 1984-1994

Handskrifuð, vélrituð tölvuprentuð og ljósrituð skjöl. Í safninu eru félagaskrá, erindi frá Skógræktarfélagi Íslands, endurrit úr fundargerðum skógræktarfélagsins, teikningar og áætlanir fyrir gróðursetningu á Hólum og minnisblöð.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbók 1989

Gormastílabók með handskrifuðum dagbókarfærslum fyrir skógræktina á Hólum í Hjaltadal. 1989

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Kópavogur

Helgi Tryggvason skrifar Magnúsi Kr. Gíslasyni. Á haus bréfsins stendur: Kársnesbraut 17, Kópavogi, 1. des. 1972.

Jólakort

Jólakort í umslagi, stílað á Sig. Ein., til Margrétar og Sigurðar, frá fjölskyldunni Bankastræti 14 B. Án ártals.

Mávahlíð 8

Bréfið hefst svona: Kæru gömlu vinir og félagar... og má því ætla að það sé til þeirra systkina beggja, Magnúsar og Sigurbjargar. Umslagið er stílað á Magnús.

Jólin

Á umslaginu er stimpluð dagsetningin 22.12.52. Stimplað í Reykjavík.
Texti kortins er ætlaður þeim báðum, Magnúsi og Sigurbjörgu en umslagið stílað á Magnús. Þórir var kaupamaður hjá þeim.

Sendendur: Margrét og Hrólfur

Kortið er frá Margréti og Hrólfi og til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar (Beggu og Manga).
Mjög líklega er um að ræða hjónin Hrólf Sigurðsson (1922-2002) og konu hans, Margréti Árnadóttur (1926-2007), en þau eru bæði listmálarar.

Results 766 to 850 of 63186