Bréfið er handskrifað með bleki á línustrikaðan pappír í stærðinni 28x22,5 cm. Með liggur umslag, stílað á Sigurð Sigurðsson. Búið er að klippa frímerki af umslaginu en annars er ástand skjalanna gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk. Það varðar lóðarsaminging í Haganesvík, yfirlýsingu um skipti á dánarbúi Þorsteins Þorsteinssonar og samning um jörðina Neðra-Haganes.
Bréf til Steinunnar, bæði persónuleg bréfaskipti en einnig bréfaskipti er varða skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar og deilumál sem reis við þau skipti.
Bréf til og frá Akraskóla. Flokkun gagnanna þegar þau bárust safninu var með þeim hætti að möppur merktar einstaka skólaárum innihéldu bréf og var sú flokkun látin halda sér. Því er flest bréf frá tímabilinu 1996-2006 að finna í flokki D-Skólastarf.
7 albúm, nokkur umslög, leikfélagsmyndir frá Kára Jónssyni, Bréf frá Stefáni Jónssyni arkitekt, uppdráttur af húsaskipan bændaskólans á Hólum. 80 ljósmyndir og 104 filmur úr dánarbúi bakarahjónanna Guðjóns og Ólínu.
Bréfið er afrit af bréfi sem sent er til þingmanna Norðurlands vestra og aðila innan Menntamálaráðuneytisins. Með liggur greinargerð um Skólaheimilið. Hvort tveggja ljósrit í A4 stærð.
Bréfið er handskrifað á 3 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar eignahlut Þórunnar í Ártúni í Hofshreppi. Með liggur skrá yfir muni Þórunnar úr búinu.