Ósk um að byggja lítið frystihús brekkumegin við hús Sölva Jónssonar, Skógargötu 8. Telja þetta frystihús geti orðið til mikils gagns fyrir íbúa þessa staðar.
Bókin er innbundin og er 17,9 x 21,7 sm að stærð. Hún er 288 tölusettar síður og þar af eru 267 auðar síður. Með liggur á lausu blaði reikningur um störf nefndarinnar.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð. Útdráttur úr fundargerð almenns hreppsfundar í aðdraganda sýslufundar. Með liggur merkt örk sem slegið hefur verið utan um skjalið. Ástand skjalsins er gott.
Stílabókin er í stærðinni 20,9 x 16,9 cm. Innbundin í harðspjalda kápu. Í bókinni eru uppskriftir af fundargjörðum UMF Holtshrepps frá 1919-1926, fróðleikur um blaðið Vísi sem félagið gaf út. kafli úr sveitarlýsingu Holtshrepps árið 1900 eftir Hannes Hannesson, annáll 1937-1950 og fleiri frásagnir og ljóð úr Fljótum. M.a. eftir Hannes Hannesson. Ástand bókarinnar er gott.
Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggðasamlags um rekstur skólaskrifstofu Skagfirðinga, fulltrúaráð. Fundir frá 2. maí 1996-25. febrúar 1997 (2 fundir). Bls. 1-10 eru útfylltar. Með liggur undirskriftablað frá 27. mars 1998 en engin fundargerð frá þeim fundi.
Innbundin fundargerðarbók. Fundargerðir Byggingarnefndar Grunnskóla Sauðárkróks 14.01.1998-03.10.2001. Bls. 1-31 útfylltar. Með liggja fundargerðir á lausum, prentuðum blöðum, nr. 25-30.
3 fundargerðir Landsambands Iðnaðarmanna. Ræða Ólafs Pálssonar á Sambandsstjórnarfundi 15. febrúar 1975. 1 spurningalisti frá Landssambandi Iðnaðarmanna ásamt svörum Iðnskóla Sauðárkróks. Það vantar seinni hluta svarblaðsins.
Fundargerð. Kemur ekki fram heiti félagsins en tilgangur þess er að vinna að undirbúningi að byggingu steinullarverksmiðju á Sauðárkróki og að undirbúnngi loknum að stofna hlutafélag.
1 fundargerð um skólamál, vegna fundar á Hofsósi sem boðaður var af námstjóranum á Norðurlandi. 3 bls. í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Ástand skjalanna er gott.
Tillagan er handskrifuð á pappírsörk í folio broti, alls fjórar síður. Hún varðar fjáröflun fyrir bókakaupum á Vífilsstaði. Nöfn sjúklinga eru rituð á örkina og aftan við þau niðurstaða atkvæðagreiðslu. Nafn Kristjáns C. kemur fyrir, en hann var á Vífilstöðum á árunum 1923-1926. Skjalið er farið að rifna í brotum en annars er ástand þess gott.
Bréf frá U.M.F.S og U.M.F.Í, símskeyti, ársreikningur og aðalreikningur Í.S.Í, Ýmsar skrár frá Í.S.Í með metaskrám, löggiltum íþróttabúningum og fleira. Skjöl vegna afmælisfagnaðar, Aðalfundargjörð sambands ungmennafélaga Skagafjarðar og fleira.
Fundargerðin er ljósrituð á tvær pappírsarkir A4 stærð. Hún varðar aðalfund félagsins 1999. Neðst á seinna blaðið er ljósritað fundarboð. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á eina pappírsörk í A5 stærð. Með liggur ljósrit af fundargerð 4. mars 1998, tvær pappírsarkir í A5 stærð. Það varðar ýmis málefni veiðifélagsins. Ástand skjalsins er gott.
Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.