Sýnir 38685 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
With digital objects
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

JG-1081

Útskýringarteikning á hvernig á að gróðursetja tré - sýnd í fjórum hlutum. Teikningarnar eru líklega gerðar fyrir bókina Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1082

Útskýringarteikning á hvernig á að gróðursetja tré með haka - sýnd í fjórum hlutum. Teikningarnar eru líklega gerðar fyrir bókina Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1083

Útskýringarteikning sýnd í þremur hlutum. Maður og drengur reka niður tvo staura og á milli þeirra er tréð sett niður - svo er tréð bundið við staurana. Teikningarnar eru líklega gerðar fyrir bókina Æskan og skógurinn : leiðbeiningar í skógrækt fyrir unglinga eftir Jón Jósep Jóhannesson var gefin út árið 1964 og er myndin því líklega frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1084

Teikning af krökkum á leik í grónum garði við hús. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1085

Teikning af krökkum á leik í grónum garði við hús. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1086

Teikning af tveimur fullorðnum manneskjum á gangi með barn - í bakgrunni má sjá í turna Háteigskirkju. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1087

Teikning af tveimur fullorðnum manneskjum á gangi með barn - í bakgrunni má sjá í turna Háteigskirkju. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1088

Teikning af fólki á gangi með barnavagn - í forgrunni eru tré en í bakgrunni virðast vera fólk í fótbolta. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1089

Teikning af tveimur manneskju sem sitja á bekk og við fætur þeirra situr barn - í forgrunni má sjá tré. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-109

Skissa af bátum á landi - óvíst hvar. Í bakgrunni eru hús. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Mynd 109

Fjórir drengir á Hólum í Hjaltadal. Hóladómkirkja í baksýn.
Tilgáta: Jón Norðmann Jónsson lengst til vinstri og Sigurgeir Snæbjörnsson lengst til hægri.

Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)

JG-1090

Teikning af grónum alþingisgarðinum - í bakgrunni má sjá turn Dómkirkjunnar. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1091

Teikning af tveimur manneskjum í grónum alþingisgarðinum - í bakgrunni má sjá turn Dómkirkjunnar. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1092

Teikning af tré. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1093

Teikning af tré. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1094

Teikning af fólki við ýmiskonar athafnir. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1095

Teikning af trjálundi. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1096

Uppstilling á flösku öðrum hlutum á samankuðluðum dúk á borði. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1097

Tvær skissur af uppstillingum á flöskum - ávöxtum og öðrum hlutum á samankuðluðum dúkum á borði. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1098

Uppstilling á flösku öðrum hlutum á samankuðluðum dúk á borði. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1099

Tvær skissur af uppstillingum á gítörum - ávöxtum og öðrum hlutum á samankuðluðum dúkum á borði. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Skjal 2, opna 3

Á þessum síðum er umfjöllunarefnið samband siðferðis og trúarfræði eins og á fyrri síðum þessa kafla, jafnframt er fjallað um andstæðupari sannleika og lygi. Höfundurinn notar ritninguna sér til stuðning og vitnar jaframt í kenningar heimspekinga, sérstaklega Kant og Fichte.

ssk11

Frá vinstri: Guðrún L. Ásgeirsdóttir Ása Helgadóttir Árdís Maggý Björnsdóttir Ingibjörg Jóhannesdóttir

Mynd 11

Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka 1927. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir, vinnukona, óþekkt kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja, börn hjóna Sigurður og Lilja fremst. Héraðsvötn að baki.

Egill Jónasson (1901-1932)

Blað 13

Sveitablaðið Viljinn sem Lestrarfélagið í Miklabæjarsókn gaf út. Ritstjóri: Baldvin Bergvinsson. Ýmsir greinarhöfundar.

Mynd 11

Sporöskjulaga ljósmynd á 8,8x13,7 cm bréfspjaldi (póstkorti). Á myndinni eru tvær ungar konur í peysufötum. T.h. er Valborg Hjálmarsdóttir á Tunguhálsi.

Garðar Víðir Guðjónsson (1932-2018)

Mynd 11

Ljósmynd í stærðinni 6 x 6,2 sm. Á myndinni eru níu ungmenni sem standa við húsvegg. Myndin er hreyfð en líklega er þetta sama fólk og á mynd nr 10.

Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson (1941-

JG-SO-12

Mynd af tvennum húsum við veg - óljóst hvar. Landslag umhverfis með fjöll í baksýn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Skjal 5, bakhlið

Sölvi heldur áfram að fjalla um óheiðarleika Norðra og ber blaðið saman við Þjóðólf og Ingólf sem segja satt ólíkt því fyrst nefnda.

Fjallfari 4. árgangur, blað nr. 11

Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Steini, 02.04.1904. Í ritnefnd voru: Einar Gíslason, Björn Guðmundsson, Halldór Jónsson.

Mynd 11

Brúntóna mynd, visit kort, merkt Jóni Árnasyni á Þórshöfn. Á myndinni er ung kona peysufötum. Nafn hennar er óþekkt.

Björn Jóhann Jóhannesson (1905-1970)

Síða 4, bakhlið

„Þannig úir og grúir vesalings Ísland allt, af blóðsugum, níðingum og afglöpum, sem gera hvert ódæðaverkið hinu verra“
Þessi tilvitnun er efst á síðunni og er lýsandi fyrir það sem á eftir fer en sögumaður segir að þessar blóðsugur, sem sagt höfðingjarnir landsins hafi sett sig í Guðs stað. Hann gerir greinarmun á höfðingjunum og þrælum þeirra sem fylgja þeim í blindni en til er þriðju flokkur manna að mati sögumanns sem reyndar er býsna fámennur eða 50 manns en þeir eru öllu skárri en aðrir Íslendingar. Þeir taka sér kenningar Sölva til fyrirmyndar og reyna að hafa þær að leiðarljósi í lífi sínu. En það fer hratt fækkandi í þessum hóp en þegar mest var taldi hann nokkur hundruð manns.
Þegar sögumaður hefur dregið upp þessa mynd af ægivaldi höfðingjanna tilgreinir hann þann hóp manna sem eru hvað verstir og að sama skapi ýmsa staði, sýslur og bæi þar sem ástandið er hvað verst að hans mati. En þar má greina helstu fjandmenn Sölva og staði tengda honum með einum eða öðrum hætti.
Húnavatns, Skagafjarðar og Þingeyjarsýslur fá ekki góða einkunn. Það fær heldur ekki fólkið á Akureyri, Húsavíkurbakka, Laxamýri, Breiðumýri, Ljósavatni, Skálá og Ystafelli.
Helstu fjandmenn og örlagavaldar í lífi Sölva er nefndir sérstaklega, þeir sýslumenn Eggert Briem og Sigfús Skúlason. Aðrir sem sögumanni finnst vert að nefna í þessu sambandi eru Jakob Þórarinsson johnsen (Gæti verið verslunarstj. á Húsavík) og Jakob Pétursson hreppstjóri á Breiðumýri. Ari Sæmundsen. Hafstein (Pétur Havsteen) og Björn á Skálá og Önnu hans.

Mynd 11

Anna Kristín Jónsdóttir, f. 1865, d. 1941. Húsfreyja á Völlum í Hólmi. Flutti að Uppsölum 1926 og átti heima þar til dauðadags.
Mynd 1928.

Egill Jónasson (1901-1932)

22.05.1850

Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi þann 22.05.1850 á búi Stephans Kristjánssonar á Miðmói.

Mynd 11

Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif.
Á myndinni eru, f.v.: Sigurlaug Einarsdóttir, Kristín S. Björnsdóttir, Guðrún Hulda Pálmadóttir og Þórunn Snorradóttir.

Guðni Sigurður Óskarsson (1950-)

Mynd 11

Fólkið á myndinni er óþekkt, en aftan á myndina eru skrifaðar eftirfarandi upplýsingar:
"Victor, bróðir okkar, kona hans, ég, Lauranne, dóttir Victor og Nettie."

Mynd 11

Tveir bátar með farþegum við bryggju. Fjöldi fólks stendur á bryggjunni, nokkrir með reiðhjól. Sennilega Akureyri frekar en Húsavík. Á húsinu fyrir miðri mynd stendur "Maskinverksted."

Egill Jónasson (1901-1932)

JG-SO-110

Skissa af borg eða bæ þar sem horft er yfir húsaþök. Staðsetning ókunn - líklega Reykjavík. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-1100

Tvær skissur af uppstillingum á flöskum og öðrum hlutum á borði. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Niðurstöður 511 to 595 of 38685