Bréf Lárusar Thorarensen sýslumanns til hreppstjóranna í Akrahreppi varðandi bréf er hann hafði fengið frá sýslumanni Húnavatnssýslu. Bréfið varðar framfærslu.
Fundargerðabók prófasta í firðinum. Fjallað um störf presta. Fagraneskirkju og Sjávarborgarkirkju var verið að leggja niður á þessum tíma. Bygging Sauðárkrókskirkju í bígerð. Prestar að koma bólusetningu yfir í læknastarfið. Margar góðar heimildir.
Fundargerðir Skagafjarðapresta um málefni kirkjunnar á þessum tíma. Bygging Sauðárkrókskirkju, aflögn Sjávarborgar- og Fagraneskirkju. Barnafræðsla og hvernig henni skuli háttað. Bólusetning færist frá prestum til lækna á þessum tíma. Laun presta þessa tíma.
Eftirrit. Nefndarálit aukanefndarinnar í útsvarskærumálunum. Undirritað á Sauðárkróki 22. febrúar 1912. Rétt eftirrit staðfestir Skrifstofa Skagafjarðarsýslu 16. mars 1912.
Hjónavígslubréf Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Gefið út í umboði Kristjáni 10. Innsigli í bréfi hefur fests með tímanum á blaðsíðunni á móti.
Heiðarbúinn - Blað vegavinnu- og varðmanna var gefið út af Kristmundi Bjarnasyni og Steingrími Bernharðssyni. Í inngangsorðum segir að blaðið sé gefið út á Öxnadalsheiði þar sem útgefendur unnu við vegavinnu. Tekið er fram að bréf til Heiðarbúans sé best að senda með langferðabifreiðum B. S. A. eða Steindórs en þær bifreiðar stöldruðu við daglega.
Markaskrá Strandasýslu 1915 Markaskrá Strandasýslu 1925 Slitur af tveimur skrám án ártals Markaskrá 1895 í tveimur eintökum Viðauki við markaskrá 1900 Markaskrá 1905 Markaskrá 1910 Markaskrá 1915 í þremur eintökum Markaskrá 1925 í tveimur eintökum Markaskrá 1930 í tveimur eintökum Fjallskilagjörð 1935 í tveimur eintökum Markaskrá 1935 í tveimur eintökum Markaskrá 1940 í tveimur eintökum Markaskrá 1945 í tveimur eintökum
Gögn sem komu úr fórum Rögnvaldar Jónssonar: Fjallskilareglugjörð fyrir Skagafjarðarsýslu frá 1906. Verðlagsskrá fyrir Skagafjarðarsýslu frá 16. maí 1935 - jafnlengdar 1936. Félagsmannatal Kaupfélags Skagfirðinga frá 1950. Bréf frá innlánsdeild Kaupfélags Skagfiðinga - e.d.
Rafveita Sauðárkróks gaf út innbundið rit um endurskoðað virkjunarmat á Reykjafossi í Svartá í Skagafirði. Ritið skrifuði Theodór Árnason og Ágúst Sæmundsson í febrúar árið 1965.
Kjörskrá Skagarfjarðarsýslu. Skráin er prentuð á gatapappír með þykkri kápu utan um. Skráin er án ártals en líklega frá árabilinu 1954-1966, þar sem flestar skrár í safninu eru frá því árabili. Ástand skjalsins er gott.
Kjörskrá Skagarfjarðarsýslu. Skráin er prentuð á gatapappír með þykkri kápu utan um. Skráin er án ártals en líklega frá árabilinu 1954-1966, þar sem flestar skrár í safninu eru frá því árabili. Ástand skjalsins er gott.
Skjalasafn Jóns Sigurðssonar frá Reynistað. Safnið innheldur bæði hans eigin einkaskjöl og einnig nokkur opinber skjöl frá tíð hans sem hreppstjóri í Staðarhreppi í Skagafjarðarsýslu.