Gögn Ungmennafélags Holtshrepps, Fljótum í Skagafirði, frá 1919 til 1971. Í safninu eru alls sex bækur, fjórar fundagerðabækur, frá 1919 - 1964, ein bók með efnahagsreikningum félagsins, fyrir tímabilið 1935-1948 og bók með félagatali og lögum félagsins, dags.1919 - 1949.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin hefur varðveist ágætlega og mikið af blaðsíðum bókarinnar eru óskrifaðar. Í bókinni eru laus blöð, línustrikuð með handskrifuðum fundagerðum, dags, 4.1.1962 og 1.1.1971.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin vel læsileg og inniheldur lög og nafnaskrá yfir félagsmenn og konur. Bókin hefur varðveist sæmilega.
Innbundin og handskrifðuð bók með línustrikuðum síðum, í bókinni eru bókhaldsfærslur frá 1935-1948, ekki nema hluti af bókinni er nýttur fyrir reikningshalds, mikið er af auðum blaðsíðum. Bókin er með límborða á kjölnum og er ágætlega varðveitt.
Þunn stílabók, pappinn er með límdum kjöl þar sem hann var farinn að mestu í sundur í miðjunni. Bókin er handskrifuð og vel læsileg, blaðsíðurnar eru orðnar snjáðar, þó sérstaklega í miðjunni þar sem hefti sem héldu þeim saman voru fjarlægð því þau voru orðin ryðguð og molnuð í sundur og farin að skemma blaðsíðurnar.
Harðspjalda handskrifaðar bækur í góðu ástandi um starfsemi félagsins og ein handskrifuð fundagerð 1977. Í örk Item 3, er líka settur handskrifður miði er fylgdi safni og segir að Sigmundur Jónssson Vestara Hóli afhenti 4. 10. 1998.
Uppskrift og virðing hreppstjórans í Holtshreppi þann 11.04.1854 á eignum Guðmundar Tómassonar og Þorbjargar Jónsdóttur (tilg. á Laugalandi í Fljótum).
Uppskriftir og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eignum Guðmundar Jónssonar á Melbreið og seinni virðingin á eignum Sólveigar Sveinsdóttur á Móskógum.
Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á dánarbúi Engilráðar Jónsdóttur (tilg. Melbreið út frá texta - samkv. íslendingabók er hún vinnukona á Fyrir-Barði)
Vélritað bréf, undirritað af starfsmanni Búnaðarfélags Íslands, ásamt vélrituðum lista yfir ríkisframlög til jarðræktar og húsabóta 1957, þar sem bændur hafa kvittað eigin hendi fyrir sitt framlag.
Vélritað bréf, undirritað af starfsmanni Búnaðarfélags Íslands. Bréfinu fylgja listar yfir greiðslur jarðræktarframlaga, kvittun fyrir móttöku og reikningur vegna kostnaðar.
Vélritað bréf, undirritað af starfsmanni tímaritsins Freys. Framan á bréfið og á bakhlið þess er búið að handskrifa svör við ýmsum spurningum sem í bréfinu eru.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir, sem hver um sig er opna úr bók. Efst á fyrstu örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1835 til Fardag 1836." Á hinar tvær arkirnar eru færðar athugasemdir um yfirlitið. Þær hanga saman með bandi.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir, sem hver um sig er opna úr bók. Efst á fyrstu örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1836 til Fardag 1837." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið. Þær hanga saman með bandi.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir, tvær þeirra eru opna úr bók en sú þriðja síða úr bók. Efst á fyrstu örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1837 til Fardag 1838." Á hinar arkirnar eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir, sem hver um sig er opna úr bók. Efst á fyrstu örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1838 til Fardag 1839." Á hinar tvær arkirnar eru færðar athugasemdir um yfirlitið. Þær hanga saman með bandi.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Önnur er opna úr bók en hin síða úr bók. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1839 til Fardag 1840." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Sú stærri er í 2xfolio stærð en sú minni í A5 stærð. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1840 til Fardag 1841." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Sú stærri er í 2xfolio stærð en sú minni í A5 stærð. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1841 til Fardag 1842." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1842 til Fardag 1843." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1843 til Fardag 1844." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1844 til Fardag 1845." Á hina örkina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjal með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Efst á blaðinu stendur: "Fattigvæsenets Tilfrand í Skagefjords Sysjel for Aret 1827."
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir. Efst á fyrri örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1845 til Fardag 1846." Á hinar arkirnar eru færðar athugasemdir um yfirlitið.