Identity area
Reference code
IS HSk N00279-A-D-GI335
Title
GI 335
Date(s)
- 1990 (Creation)
Level of description
Item
Extent and medium
1 ljósmynd. Stafrænt afrit í tiff.
Context area
Name of creator
(12. janúar 1915 - 15. mars 2004)
Repository
Archival history
Úr dánarbúi Guðjóns Ingimundarsonar og Ingibjörgu Kristjánsdóttur. Afhent 3. ágúst 2010.
Immediate source of acquisition or transfer
Content and structure area
Scope and content
- Landsmót UMFÍ í Mosfellsbæ 12. – 15. júlí 1990 Ungmennasamband Kjalarnesþings sá um undirbúning og framkvæmd mótsins en það fór fram dagana 12. – 15. júlí. Að þessu sinni brugðust veðurguðirnir gjörsamlega er þeir skelltu á mannskapinn veðri sem aldrei hafði sést á Landsmóti fyrr. Fyrsta mótsdaginn var veður hið besta en á föstudaginn byrjaði að hvessa og á laugardaginn gerði ofsarok - allt lauslegt fauk - tjöld losnuðu upp og fuku af stað svo að til vandræða varð. Af þessu leiddi að áætlanir um aðsókn brugðust og voru mótsgestir aðeins 5000 talsins. Mótið hófst formlega með hátíðlegri athöfn á fimmtudagsmorgni að viðstöddum forseta Íslands - Vigdísi Finnbogadóttur. Hún ávarpaði mótið og gróðursetti síðan birkiplöntur - með aðstoð mótsgesta - í nýjum skrúðgarði við Varmárvöll. Sjálf setningarathöfnin fór svo fram á föstudagskvöldinu. Þar fluttu ávörp Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og Svavar Gestsson menntamálaráðherra. F.h. íþróttamanna talaði hlaupastelpan Fríða Rún Þórðardóttir. Fimleikaflokkur frá UMSK og Danmörku sýndu - sýningarleikur var í ruðningsbolta og söngfuglar af ýmsu tagi skemmtu. Heiðursgestur mótsins var Hafsteinn Þorvaldsson fyrrum formaður UMFÍ. Keppendur voru 1466 frá 28 samböndum. Keppt var í frjálsum íþróttum - sundi - borðtennis - glímu - júdó - starfsíþróttum - blaki - bridds - fimleikum - handknattleik - knattspyrnu - körfuknattleik og skák. Meðal sýningargreina sem keppt var í voru golf - íþróttir fatlaðra - karate - siglingar og hestaíþróttir. Sýningarmenn voru 573. UMSK sigraði í heildarstigakeppni að þessu sinni - hlaut 335 stig - HSK varð í öðru sæti með 284 stig og í þriðja sæti varð UMSE með 215 stig. Stigahæstu einstaklingar í frjálsum íþróttum voru Guðrún Arnardóttir - UMSK með 18 stig - Ólafur Guðmundsson HSK og Unnar Vilhjálmsson HSÞ voru með 13 stig hvor. Í sundi voru stigahæst systkinin úr Þorlákshöfn - Magnús Már - Arnar Freyr og Bryndís Ólafsbörn. Þau kepptu öll fyrir HSK og hlutu 18 stig hvert.
Appraisal, destruction and scheduling
Accruals
System of arrangement
Conditions of access and use area
Conditions governing access
https://creativecommons.org/licenses/by-nc-nd/4.0/ . Ljósmyndir má ekki nota nema að vísa í Héraðsskjalasafn Skagfirðinga.
Conditions governing reproduction
Hafið samband við Héraðsskjalasafn Skagfirðinga ef þið óskið eftir myndunum í góðum gæðum.
Language of material
- Icelandic
Script of material
Language and script notes
Physical characteristics and technical requirements
Finding aids
Allied materials area
Existence and location of originals
Existence and location of copies
Related units of description
Notes area
Alternative identifier(s)
Access points
Subject access points
Place access points
Name access points
Genre access points
Description control area
Description identifier
Institution identifier
Rules and/or conventions used
Status
Level of detail
Dates of creation revision deletion
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
Digital object metadata
Filename
GI_335.tif
Latitude
Longitude
Media type
Image
Mime-type
image/tiff
Filesize
17.5 MiB
Uploaded
June 2, 2020 3:41 AM