Safn N00435 - Pétur Jónasson: Skjalasafn

Auðkenni

Tilvísunarkóði

IS HSk N00435

Titill

Pétur Jónasson: Skjalasafn

Dagsetning(ar)

  • 1930-1971 (Creation)

Þrep lýsingar

Safn

Umfang og efnisform

Pappírsskjöl.

Samhengi

Nafn skjalamyndara

(15.12.1883-17.01.1972)

Lífshlaup og æviatriði

Pétur Jóhann Jónasson, f. í Minni-Brekku í Fljótum 15.12.1883, d. á Sauðárkróki 17.01.1972. Foreldrar: Jónas Stefánsson bóndi í Minni-Brekku og kona hans Anna Sigríður Jónsdóttir. Pétur ólst upp hjá foreldrum sínum í Minni-Brekku fram að níu ára aldri, að þau fluttust burt en Pétur varð eftir hjá föðurbróður sínum, Guðmundi Stefánssyni og konu hans Ólöfu Pétursdóttur. Var hann hjá þeim í 13 ár. Fyrstu búskaparárin var hann leiguliði hjá fóstra sínum og Pétri Jónssyni sem áttu Minni-Brekku til helminga hvor en smám saman eignaðist hann jörðina. Þegar hann seldi hana 1946 fékk hann að vera í skjóli Bendikts Stefánssonar og Kristínar konu hans, sem keyptu jörðina.
Pétur var bóndi í Minni-Brekku 1910-1915, í Stóru-Brekku 1915-1917, í Minni-Brekku 1917-1918, á Minni-Þverá 1918-1919, í Minni-Brekku 1919-1920 og loks 1927-1946. Árin 1920-1927 var hann í húsmennsku hjá Guðmundi Benediktssyni í Minni-Brekku.
Maki: Margrét Stefanía Jónsdóttir (23.10.1882-02.10.1945). Þau einguðust tvö börn sem bæði fæddust andvana. Auk þess ólu þau upp fóstursoninn Pétur Jón Stefánsson frá Sléttu og Margréti Petreu Jóhannsdóttur.

Varðveislusaga

Um er að ræða tvær afhendingar
I) Afhending 2020:14, sem Hjalti Pálsson afhenti safninu og Benedikt Stefánsson í Minni-Brekku hafði áður afhent honum.
II) Öskjur 22-24 í aðfangaskrá.

Með liggja upplýsingar frá Hjalta Pálssyni um afhendingarnar.

Um aðföng eða flutning á safn

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Gögn úr fórum Péturs Jónassonar, sem lengst bjó í Minni-Brekku í Fljótum.
Flest stílabækur sem hann hefur ritað í ýmsan fróðleik og kveðskap, ýmist hefðbundnar stílabækur eða innbundnar.
Margt af því er skrifað upp úr bókum og útvarpsþáttum.
Einnig er að finna fróðleik tengdan Fljótunum sem hann virðist hafa ritað sjálfur, en ljóst er af bréfaskiptum við Hannes Hannesson frá Melbreið að hann hefur oft haft annála hans til hliðsjónar.
Safnið inniheldur mikið af kveðskap og er stór hluti hans eftir Guðmund Stefánsson í Minni-Brekku.
Þá eru í safninu bréf og fjöldi dagbóka Péturs frá tímabilinu 1950-1970.

Grisjun, eyðing og áætlun

Viðbætur

Skipulag röðunar

Skilyrði um aðgengi og not

Skilyrði er ráða aðgengi

Skilyrði er ráða endurgerð

Tungumál efnis

  • íslenska

Leturgerð efnis

Athugasemdir um tungumál og letur

Umfang og tæknilegar þarfir

Leiðarvísir

Tengd gögn

Staðsetning frumrita

Staðsetning afrita

Tengdar einingar

Related descriptions

Athugasemdir

Annað auðkenni

Aðgangsleiðir

Staðir

Nöfn

Genre access points

Um lýsinguna

Lýsinganúmer

KSE

Kennimark stofnunar

IS-HSk

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Final

Skráningarstaða

Hlutaskráning

Dates of creation revision deletion

Frumskráning í Atóm 28.09.2022 KSE.

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Heimildir

Aðföng

Related subjects

Tengdir einstaklingar og stofnanir

Related genres

Tengdir staðir