Reykjavík

Elements area

Taxonomy

Code

Scope note(s)

  • Reykjavík er höfuðborg Íslands, fjölmennasta sveitarfélag þess og eina borgin.

Display note(s)

    Hierarchical terms

    Reykjavík

      Equivalent terms

      Reykjavík

        Associated terms

        Reykjavík

          866 Archival descriptions results for Reykjavík

          866 results directly related Exclude narrower terms
          Anna Claessen - Reykjavík
          IS HSk N00583-A-A2 · File · 1905
          Part of Óli Blöndal: Skjalasafn

          Eitt bréf, dagsett 03.01.1905. Undir bréfið ritar "Anna Claessen". Að öllum líkendum hálf-systir Ole.

          Anna Valgerða Claessen Briem (1889-1966)
          Anna Möller - Reykjavík
          IS HSk N00583-A-A1 · File · 1905
          Part of Óli Blöndal: Skjalasafn

          Bréf dagsett 24.01.1905. Undir bréfið ritar "Anna" sem er að öllum líkendum Anna Möller, móðir Ole.

          Anna Margrét Þuríður Kristjánsdóttir Möller (1846-1918)
          IS HSk N00316-A-A-18 · Item · 29.12.1940
          Part of Steinunn Sigurjónsdóttir: Skjalasafn

          Bréf frá Jónasi Jónassyni til móður sinnar. Skrifað frá Reykjavík þann 29.12.1940.
          Jónas þakkar móður sinni fyrir bréfið og skrifar hann um mæðuveikina sem herjar á féð. Hann leggur til að Steinunn komi suður næsta sumar og fái sér gleraugu. Jónas talar einnig um að nóg sé af atvinnu í Reykjavík tengt bretunum.

          IS HSk N00583-A-A27 · File · 04.12.1908
          Part of Óli Blöndal: Skjalasafn

          Eitt bréf, nokkuð stutt, meira í ætt við orðsendingu. Ritað í Reykjavík 4. desember 1908. Ekki reyndist mögulegt að greina hver ritar undir bréfið. Er að biðja Ole um yfirlit. Líklega tengist þetta bréf vinnu Ole en ekki einkamálum.

          Bréf frá ýmsum
          IS HSk N00602-A-M · File · 1948-1960
          Part of Haukur Stefánsson: Skjalasafn

          Bréfritarar:
          Ásgeir J. Sigurgeirsson, Rvk. (1948)
          Gunnar Björnsson, Rvk. (1952)
          Rögnvaldur Jónsson, Flugumýrarhvammi (1952) ásamt auglýsingu um dansskemmtun að Stóru-Ökrum.
          J. M. Fussell Ozona, Texas USA (1952) vegna frímerkja.
          Hörður Jónsson, Edinburgh (1953).
          Nikulás Jónsson, Victoria Canada (1954). 2 bréf
          "Valla" frænka, Winnipeg (1957).
          1 póstkort, undirskrift tilgáta: Bibbi.

          IS HSk N00003-B-C-B-7 · Item · 21.06.1836
          Part of Akrahreppur: Skjalasafn

          Bréf Lárusar Stefánssonar Thorarensen sýslumanns Skagfirðinga til hreppstjóranna í Akrahreppi. Efni bréfsins varðar að segja frá innihaldi bréf sem hann hafði fengið frá Bjarna Thorarensen amtmanni. Fjallar bréfið að mestu um bólusótt og viðbrögð við henni.

          Lárus Stefánsson Thorarensen (1799-1864)
          IS HSk N00148-A-A-2 · Item · 1959
          Part of Árni G. Eylands: Skjalasafn

          Bréf Árna G. Eydals til SJG. Afar líklegt að hér sé um Sigurð J. Gíslason að ræða. Bréfið varðar yfirlestur og leiðréttingar á handriti Árna G. Eydals meðal annars um tækniframfarar í landbúnaði. Bréfið er ódagsett en efni bréfsins gefur til kynn að það sé ritað í nóvember 1959.

          IS HSk N00574-B-D-43 · File · 1952
          Part of Sigurður Sigurðsson: skjalasafn

          Tvö bréfanna varða fyrirhugaðar forsetakosningar árið 1952, þar sem Gísli Sveinsson leitar til Sigurðar með að útvega meðmælendum fyrir framboðinu og sjálfboðaliða til að vinna við framboðið á norðurlandi. Eitt bréf þar sem Gísli spyr um Jón á Reynistað, Lárus á Miklabæ ofl. nafnkunna menn.

          IS HSk N00574-B-D-21 · File · 1932
          Part of Sigurður Sigurðsson: skjalasafn

          Bréf frá Magnúsi þar sem hann tekur fram að hann sé að taka við dómsmálaráðherrastarfinu aftur og svarar Sigurði með framkvæmdakostnað við húsið hans og lán úr Bjargráðasjóði.

          BS2013
          IS HSk N00028-D-B-BS2013 · Item · 1936
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Danska konungsskipið við Sprengisand í Reykjavíkurhöfn. Konungur á leið um borð í snekkju sína eftir veislu á Hótel borg. Bryggjan er skreytt í tilefni konungskomunar.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2014
          IS HSk N00028-D-B-BS2014 · Item · 1936
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Fjórar prúðbúnar konur virða fyrir sér danskt herskip - sem kom í fylgd konungsskipsins Dannebrog við opinbera heimssókn til Íslands 1936. Konurnar eru f.v. Lára Guðmundsdóttir (1891-1967) - Ragnheiður Björg Guðmundsdóttir (1875-1952) - Elín Guðmundsdóttir (1887-1962) og Þórunn Guðbrandsdóttir (1885-1974).

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2016
          IS HSk N00028-D-B-BS2016 · Item · 1936
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Borgin að vakna. Blaðsöludrengur á horni Lækjargötu og Bankastrætis og peysufatakonur komnar á stjá. Ríkisfáninn blaktir við hún á stjórnarráðinu en í fjaska sést í söluturninn á Arnarhóli og Sænska frystihúsið.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2018
          IS HSk N00028-D-B-BS2018 · Item · 1936
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Vatnsmýri og Skerjafjörður í Reykjavík.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2713
          IS HSk N00028-D-C-BS2713 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Úr Kristskirkju í Reykjavík. Sér yfir Vesturbæ til Seltjarnarness. Eiðisgrandi fyrir miðri mynd og Eiðistjörnin inn af honum. Stóra húsið neðst t.h. er svokallað ÍR hús.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2715
          IS HSk N00028-D-C-BS2715 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Brúðkaupsmynd. Bruno Schwiezer og Þorbjörg Jónsdóttir. Tekin að Laufásvegi 18 Reykjavík á heimili Elíasar Bjarnasonar og Pálínu Elíasdóttur í ágúst 1938.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2718
          IS HSk N00028-D-C-BS2718 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Brúðkaupsveisla Brunos Schweizer og Þorbjargar Jónsdóttur.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2724
          IS HSk N00028-D-C-BS2724 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Brúðkaupsmynd. Þorbjörg Jónsdóttir Schweizer og Bruno Schweizer.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2822
          IS HSk N00028-D-C-BS2822 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Kýr á beit í Vatnsmýrinni í Reykjavík.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2826
          IS HSk N00028-D-C-BS2826 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Byggð að rísa í Norðurmýri í Reykjavík. Fjær sést til húss Mjólkursamsölunnar við Snorrabraut og er Sundhöll Reykjavíkur þar fyrir ofan. Efst til vinstri er Austurbæjarskólinn.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2828
          IS HSk N00028-D-C-BS2828 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Norðurmýri í Reykjavík. Sér til húsa við Egilsgötu og Eiríksgötu og efst th. Hnitbjörg Einars Jónssonar.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS2829
          IS HSk N00028-D-C-BS2829 · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Gæti verið við Ásvallagötu í Reykjavík

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS42b
          IS HSk N00028-D-C-BS42b · Item · 1938
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Landsýn í Reykjavík. Lóðsbátur með hafnsögumanni.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS43
          IS HSk N00028-D-A-BS43 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Landsýn í Reykjavík. Tollbátur fer frá skipi.
          Um 1918 fékk tollgæslan sem var þá hluti af lögreglunni í Reykjavík bát til umráða sem að var jafnan nefndur "Tollbáturinn" þetta var lítill yfirbyggður mótorbátur sem seinna fékk gælunafnið "Gamli báturinn" hjá tollvörðum. Hann var mannaður tveimur til þremur tollvörðum og var geymdur við gömlu Steinbryggjuna. Báturinn var fremur hægfara og lítill. Því voru oft fengnir lóðsbátar eða aðrir bátar þegar að það þurfti að fara eitthvað lengra eða veður var óhagstætt. Hann var nýttur daglega til þess að flytja tollverði á milli lands og skipa á ytri höfninni í Reykjavík og var fyrsti eiginlegi eftirlitsbátur tollgæslunnar á millistríðsárunum.

          Báturinn var í notkun hjá tollgæslunni frá 1918 - 1939

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS45
          IS HSk N00028-D-A-BS45 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Þúfnakargi í borginni. Sér til syðstu húsa við Framnesveg. Nýi Vesturbæjarskólinn stendur nú á opna svæðinu fremst á myndinni.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS46
          IS HSk N00028-D-A-BS46 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Hús við Kaplaskjólsveg í Reykjavík.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS47
          IS HSk N00028-D-A-BS47 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Séð yfir Kaplaskjól í Reykjavík. Kaplaskjósvegur liggur í brekkunni á miðri mynd. Fremsta húsið er Skáli og í fjaska aftan við það er Blátún - hús Jóns Þorleifssonar listmálara.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS48
          IS HSk N00028-D-A-BS48 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Fiskverkafólk í Reykjavík á leið til vinnu.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS50
          IS HSk N00028-D-A-BS50 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Vörugeymslur við Geirsgötu á hafnarbakkanum í Reykjavík. Í baksýn eru Nordalshús - Safnahúsið - Þjóðleikhúsið og Arnarhváll.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS51
          IS HSk N00028-D-A-BS51 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Karlmaður í Hressingarskálagarðinum í Reykjavík

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS52
          IS HSk N00028-D-A-BS52 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Fólk í Hressingarskálagarðinum í Reykjavík.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS56
          IS HSk N00028-D-A-BS56 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Matjurtargarður milli Suðurgötu - Tjarnargötu og Vonarstrætis. Steinhúsið t.h. er Tjarnargata 10 - en tvílyfta timburhúsið Suðurgata 7 - Hjaltstedshús. Húsið var síðar flutt í Árbæ og gert upp.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS560
          IS HSk N00028-D-A-BS560 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Reykjavík 1935. Tjörnin og miðbærinn.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS561
          IS HSk N00028-D-A-BS561 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Reykjavík. Kona í fjörunni við Selsvör eða í Ánanaustum.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS562
          IS HSk N00028-D-A-BS562 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Vesturbærinn í Reykjavík úr turni Kristskirkju. Sér til Örfyriseyjar - sem þarna er nánast ósnortin og til Engeyjar.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS563
          IS HSk N00028-D-A-BS563 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Reykjavík úr turni Kristskirkju. Ægissíða - sér til gamal St. Jósefsspítala í vinstra horni. Sér yfir Hávalla- - Sólvalla- - go Ásvallagötu - gamla kirkjugarðinn og Loftskeytastöðina.

          Bruno Scweizer (1897-1958)
          BS57
          IS HSk N00028-D-A-BS57 · Item · 1935
          Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn

          Maður við slátt á Landakotstúni. Sér til húsa við Öldugötu því að byggð við Túngötu hefur ekki teigt sig svo langt upp í brekkuna.

          Bruno Scweizer (1897-1958)