Skagafjörður

Taxonomy

Code

Scope note(s)

    Source note(s)

      Display note(s)

        Hierarchical terms

        Skagafjörður

        Equivalent terms

        Skagafjörður

          Associated terms

          Skagafjörður

            1979 Authority record results for Skagafjörður

            1971 results directly related Exclude narrower terms
            S07305 · Person · 07.11.1877 - 09.10.1933

            Var í Ártúni, Hofssókn, Skag. 1880. Húsfreyja á Siglufirði 1930. Þau Pétur voru barnlaus en ólu upp tvö fósturbörn.

            S06928 · Person · 21.11.1951 - 28.10.2020

            Starfaði við sjúkrahúsið á Sauðárkróki og síðar við álverið á Reyðarfirði.

            S07592 · Person · 07.05.1906 - 18.07.1987

            Frá Brekkukoti í Blönduhlíð. Var á Bræðraborgarstíg 14, Reykjavík 1930. Verkakona í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.

            S07382 · Person · 11.03.1907 - 03.09.1992

            Fæddur á Brúnastöðum í Tungusveit. Bóndi á Breið í Tungusveit, í Litladalskoti í Dalsplássi, í Héraðsdal í Dalsplássi, á Skíðastöðum á Neðribyggð, á Litla-Vatnsskarði á Laxárdal fremri, Hún., á Refsstöðum, Hún og loks á Heiði. Lausamaður í Kolgröf, Goðdalasókn, Skag. 1930. Bóndi á Heiði í Gönguskörðum, Skarðshr., Skag., síðar á Sauðárkróki.

            Ágúst Guðmundsson (1955-
            S07253 · Person · 23.11.1955 -

            Fæddur í París. Búsettur á Sauðárkróki. Fasteignasali.

            Ágúst Kárason (1964-
            S06992 · Person · 09.08.1964 -

            Frá Sauðárkróki. Hafnarvörður hjá Sauðárkrókshöfn.

            Áhugamannafélagið Drangey
            S03743 · Association · 1959 - 1966

            Sunnudaginn 5, júní 1966 voru nokkrir flekaveiðimenn við Drangey samankomnir á Sauðárkróki til þess að ræða þá hagsmunaskerðingu sem þeir telja sig hafa orðið fyrir vegna lagasetningar um fuglaveiðar og fuglafriðun. Þau lög banna með öllu flekaveiðar við Drangey, þótti heldur anda köldu til sín frá hinu háa Alþingi er það samþykkti að afnema þennan aldargamla atvinnuveg Skagfirðinga.
            Tilgangur félagsins sem er áhugamannafélag er að fá aflétt banni sem sett var á á Alþingi varðandi nytjar af Drangey nr.33/ 1966.
            Á fundinn mættu 16 mannsog var kosin stjórn. Kosningu hlutu Jón Eiríksson frá Fagranesi, Gunnar Þórðarson og Sævar Einarsson.

            S03795 · Person · 05.11.1895 - 02.03.1984

            Var í Ketu, Ketusókn, Skag. 1901. Bóndi á Selá, Hvammssókn, Skag. 1930. Bóndi á Keldulandi í Skagahreppi.

            S06026 · Person · 07.09.1929 - 03.04.1993

            Fæddur í Norðfirði. Var í Miðhúsi, Nessókn, S-Múl. 1930. Formaður Sjálfsbjargarfélags Sauðárkróks Síðast bús. í Hafnarfirði. Kjörsonur: Tómas Albertsson f. 22.1.1960.

            Albert Sölvason (1903-1971)
            S00975 · Person · 01.07.1903 - 05.11.1971

            Fæddur á Páfastöðum, Skag. Sonur Sölva Jónssonar járnsmiðs og vélgæslumanns á Sauðárkróki og k.h. Stefaníu Marínar Ferdinandsdóttur húsfreyju. Bátsformaður og vélamaður á Sauðárkróki 1930. Ketil- og plötusmiður, verkstjóri, vélsmiður og vélstjóri, síðast framkvæmdastjóri á Akureyri. Kvæntur Karólínu Gísladóttur.

            S06897 · Person · 13.05.1926 - 01.10.2024

            Fékkst við ýmis störf, lengst af saumakona á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Var í Holtsmúla á Langholti, Skag. 1930.

            S03991 · Person · 04.01.1931 - 23.04.2017

            Fékkst við ýmis störf til sjós og lands. Starfaði hjá Loðskinni á Sauðárkróki. Bús. á Sauðárkróki.

            S07255 · Person · 27.05.1954 -

            Frá Tungu í Gönguskörðum. Bóndi í Tungu. Bóndi og varafjallskilastjóri.

            S05316 · Person · 19.08.1930 - 23.01.2015

            Var á Reykjavöllum, Mælifellssókn, Skag. 1930. Bóndi á Reykjavöllum í Lýtingsstaðahreppi.

            S05732 · Person · 03.01.1942 - 24.09.2024

            Vélvirkjameistari, bóndi og veðurathugunarmaður á Bergsstöðum í Borgarsveit. Einn af stofnendum Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, formaður Ungmennafélagsins Grettis um árabil og gegndi ýmsum félagsstörfum.

            S05839 · Person · 10.08.1910 - 23.09.1982

            Iðnverkamaður á Akureyri. Var í Ási, Lögmannshlíðarsókn, Eyj. 1930. Síðast bús. á Sauðárkróki.

            S06696 · Person · 30.03.1953 -

            Fædd í Reykjavík. Bjó á Sauðárkóki með foreldrum og fluttist með þeim suður. Leikskólakennari.

            S05994 · Person · 09.09.1907 - 19.02.1990

            Fædd í Þrastastaðagerði á Höfðaströnd, foreldrar Jónína Margrét Gísladóttir (1878-1965) og Hjörtur Ólafsson (1871-1960) bóndi í Þrastastaðagerði. Anna ólst upp í foreldrahúsum fram á fermingaraldur en fór síðan að vinna fyrir sér í vistum og starfaði víða uns hún giftist þann 31.10.1931 Valtý Sigurðssyni, þau hófu fyrst búskap í Húsey en eftir eitt ár þar fluttust þau að Geirmundarstöðum og keyptu síðan býlið 1946. Þau eignuðust tvo drengi, Gunnlaug og Geirmund.

            S05562 · Person · 25.06.1925-01.03.1999

            Anna Jónsdóttir fæddist að Skógum í Fnjóskadal. Foreldrar hennar voru hjónin Hólmfríður Jónsdóttir (1892-1973) og Jón Ferdinandsson húsasmiður (1892-1952) frá Birningsstöðum í Ljósavatnsskarði.
            Anna ólst upp á Birningsstöðum, eftir fullnaðarpróf fór hún í Alþýðuskólann og Laugum og þaðan í Húsmæðrakennaraskóla Íslands í Reykjavík. Á þeim tíma kynntist hún Sigurði Hólm Jóelssyni frá Stóru-Ökrum, þau giftust 21. maí 1949.
            Eftir að hafa búið á Birningsstöðum í eitt ár fluttu Anna og Sigurður í Víkurkot í Skagafirði árið 1950 sem þau leigðu fyrst en keyptu síðan fjórum árum síðar. Árið 1956 fluttu þau í Stóru-Akra og bjuggu þar alla tíð síðan.  
            Anna kenndi í tvo áratugi við barnaskólann í Akrahreppi og var prófdómari Húsmæðraskólans á Löngumýri ásamt því að sinna bústörfum á Stóru-Ökrum ásamt manni sínum.
            Börn Önnu og Sigurðar: Hólmfríður Birna, Ingibjörg, Sólveig, Jón, Ragna og Katrín Elín.

            S06009 · Person · 1950 -

            Anna Kristín starfaði sem kennari hjá Tónlistarskóla Skagafjarðar frá stofnun hans 1976 til ársins 1984 er hún tók við sem skólastjóri tónlistarskólans og stýrði honum til ársins 1999 þegar Tónlistarskóli Sauðárkróks og Tónlistarskóli Skagafjarðar voru sameinaðir.

            S07455 · Person · 21.06.1967 -

            Frá Sauðárkróki. Leik- og grunnskólakennari frá KHÍ. Kennari við Leikskólann Ársali.

            S07301 · Person · 08.04.1935 - 03.06.2020

            Fædd í húsinu Rússlandi á Sauðárkróki. Búsett á Sauðárkróki. Formaður Sjálfsbjargar í Skagafirði um árabil. Maki: Þórhallur Filippusson f. 21.07.1930 í Rvk, d. 17.10.2010 í Rvk. Listmálari á Skr.

            S04987 · Person · 27.05.1822 - 08.07.1914

            Húsfreyja í Skógum, Saurbæ og síðan á Silfrastöðum í Blönduhlíð, Skag. og á Hrauni í Öxnadal, Eyj.

            S06823 · Person · 18.12.1950 -

            Frá Stóru-Seylu. Búsett á Sauðárkróki. Starfaði við umönnun á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks.

            S05966 · Person · 07.04.1884 - 18.08.1966

            Húsfreyja á Ytra-Ósi á Höfðaströnd, Skag. Húsfreyja þar 1930. Hjú í Tjörnum, Fellssókn, Skag. 1901. Síðast bús. í Hofsóshreppi. F. 5.4.1883 skv. kirkjubók.

            S06678 · Person · 20.06.1955 - 14.08.2024

            „Anna Sigurlaug ólst upp á Sauðárkróki og gekk þar í barnaskóla og síðar gagnfræðaskóla. Um tvítugt flutti hún til Reykjavíkur og vann þar í skóversluninni Torginu í Austurstræti. Í Reykjavík kynntist Anna Sigurlaug Erni, en þegar hann lauk námi í vélskólanum fluttu þau austur á Breiðdalsvík. Þar bjuggu þau í um tvö ár og fluttu þá á Stöðvarfjörð þar sem þau hafa búið síðan.
            Anna vann ýmis störf, bæði við afgreiðslu, í fiskvinnslu, á skrifstofu, í leikskóla og síðast í álverinu á Reyðarfirði. Hún var formaður verkalýðsfélagsins á Stöðvarfirði um tíma og tók að auki að sér ýmis trúnaðarstörf og var virkur félagi í Rauða krossi Íslands. Hún hafði mikinn áhuga á söng og hannyrðum og stundaði þau áhugamál af miklum krafti, söng m.a. í Kirkjukór Heydala- og Stöðvarfjarðarkirkju og tók þátt í stofnun Salthúsmarkaðarins á Stöðvarfirði, sem selur ferðafólki hannyrðavörur á sumrin.“ mbl.is

            S06057 · Person · 31.08.1944 - 24.11.2011

            Frá Hvítárholti, Hrunamannahreppi. Húsfreyja að Ísabakka í Hrunamannahreppi, síðast bús. á Flúðum. Gekk í Húsmæðraskólann á Löngumýri og lauk þaðan prófi.

            S03415 · Person · 05.09.1854-24.01.1939

            Anna Vigdís Steingrímsdóttir, f. 05.09.1854, d. 24.01.1939. Foreldrar: Steingrímur Jónsson bóndi í Saurbæ í Myrkárdal og kona hans Rósa Egilsdóttir.
            Anna Vigdís og Þorvaldur Ari bjuggu á Flugumýri 1882-1896 og á Víðimýri 1896-1921.
            Maki: Þorvaldur Ari Arason (1849-1926). Þau eignuðust sex börn sem náðu fullorðinsaldri.

            S05841 · Person · 25.06.1940 -

            Fæddist á Akureyri. Ólst upp á Sauðárkróki. Verslunarmaður, ökukennari og bílstjóri á Dalvík.

            S03422 · Person · 18.03.1892-15.07.1967

            Ari Þorvaldsson Árason, f. 18.03.1892, d. 15.07.1967. Foreldrar: Þorvaldur Ari Arason (1849-1926) og Anna Vigdís Steingrímsdóttir. Ari ólst upp á Víðimýri í Skagafirði.
            Hann hóf störf hjá Landsbankanum 1929 og starfaði þar til starfsloka.
            Maki: Karítas Jónsdóttir. Þau eignuðust tvær dætur.

            S07247 · Person · 01.01.1914 - 27.11.1987

            Fæddur í Hamarsgerði í Lýtingsstaðahreppi. Var í Kjartansstaðakoti, Glaumbæjarsókn, Skag. 1930. Bóndi á Kjartansstöðum í Langholti. Síðast bús. á Sauðárkróki.

            S05542 · Person · 30.09.1919 - 10.03.1948

            Var á Sauðárkróki 1930. Heimili: Steinsstaðir, Lýtingsstaðahr. Blaðamaður í Reykjavík.

            S04352 · Person · 06.01.1928 - 12.08.2004

            Ljósmóðir á Hofsósi og síðar deildarstjóri á Elliheimilinu Grund, síðast bús. í Reykjavík. Var í Nesi, Barðssókn, Skag. 1930.

            S05532 · Person · 1854 - 19. júlí 1909

            Fædd í Litluhlíð, Goðdalasókn og ólst þar upp. Foreldrar; Þórey Ólafsdóttir og Ólafur Guðmundsson bóndi í Litluhlíð og síðar Giljum í Vesturdal.
            Arnbjörg Margrét var húskona á Þorsteinsstöðum, Mælifellssókn, Skag. 1890 en fluttist fulltíða austur á land og gifist Páli Sigumundssyni bónda að Mýnesi í Eiðaþinghá þau voru barnlaus. Húsfreyja í Mýnesi í Eiðaþinghá 1893. Arnbjörg tók að sér tvö systrabörn sín: Þóreyju (1887-1953), dóttir Ingibjargar, fluttist ung austur að Mýnesi ólst þar upp, síðar húsfreyja að Klyppstað. Zóphónías Stefánsson (1884-1968), sonur Sigurlaugar fór í fóstur til Arnbjargar.

            S05763 · Person · um 1600 - 01.11.1676

            Prestur í Víðimýrarkirkju og Miklabæjarkirkju í Blönduhlíð frá 1630 til 1652 og á Ríp í Hegranesi frá 1652 til 1674. Hyllti konung á Hegranesþingi, Skag. 1649.

            S04978 · Person · 20.12.1850 - 29.05.1893

            Bóndi á Stafnshóli í Deildardal, Skag. Var á Skeiði í Holtssókn, Skag. 1860. Bóndi í Svínavallakoti 1884-86.

            Árni Bjarnason (1931-
            S05295 · Person · 08.11.1931 -

            Árni fæddist 8. nóvember 1931. Foreldrar hans voru Sigurlaug Jónasdóttir (1892-1982) og Bjarni Halldórsson (1898-1987) bóndi á Völlum og í Uppsölum. Árni var fjárríkur og öflugur bóndi. Hann starfaði lengi í sveitastjórn Akrahrepps. Hann starfaði lengi með karlakórnum Heimi og sömuleiðis í Rökkurkórnum.
            Árni var kvæntur Sólveigu Árnadóttur frá Skógarseli í Reykjadal í S-Þing. Sólveig fæddist 13. mars 1925, hún lést 18. febrúar 2015. Börn þeirra eru:
            Eyþór, Elín Sigurlaug, Drífa og Anna Sólveig.

            Árni Egilsson 1959 -
            S03962 · Person · 01.09.1959 -

            Skrifstofustjóri hjá Skagafjarðarveitum.

            S05037 · Person · 16.12.1827 - 27.02.1910

            Fyrsti ábúandi á Sauðárkróki. Lærði járnsmíði í Danmörku. Bjó á Sauðárkróki og var vert og klénsmiður þar en fluttist til Vesturheims 1905.

            S05727 · Person · 05.08.1924 - 10.01.1995

            Var á Lýtingsstöðum, Mælifellssókn, Skag. 1930. Búsettur á Hofi í Varmahlíð. Síðar iðnverkamaður á Akureyri.

            Árni Magnússon (1854-1924)
            S07404 · Person · 15.09.1854 - 29.02.1924

            Var á Brúnastöðum, Holtssókn, Skag. 1870. Var á Illugastöðum, Stórholtssókn, Skag. 1880. Bóndi á Syðra-Mallandi á Skaga, Skag.

            S07475 · Person · 19.07.1951 - 05.08.2021

            Búfræðingur og bóndi í Glaumbæ, síðar þjónustufulltrúi í Varmahlíð. Gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Seyluhrepp og síðar Sveitarfélagið Skagafjörð.

            Arnór Karlsson (1931-2000)
            S07152 · Person · 07.05.1931 - 10.10.2000

            Vélstjóri á Sauðárkróki. Síðast bús. þar.

            S05941 · Person · 09.04.1940 -

            Fædd á Sauðárkróki, alin upp í Kúskerpi í Blönduhlíð. Handavinnukennari og listakona.

            S07608 · Person · 25.04.1947 - 16.03.2023

            Frá Reykjavík. Kennari og áfangastjóri við Fjölbrautarskólann á Sauðárkróki.
            „Ásbjörn starfaði alla sína starfsævi við kennslu. Hann hóf kennsluferil sinn í Menntaskólanum við Sund árið 1981 en ári seinna flutti fjölskyldan til Sauðárkróks þar sem Ásbjörn fór að kenna við Fjölbrautaskólann. Við skólann starfaði Ásbjörn það sem eftir var starfsævinnar eða til ársins 2018. Frá 1986 gegndi hann störfum áfangastjóra samhliða kennslu í raungreinum.
            Ásbjörn var alla tíð mikill áhugamaður um frjálsíþróttir og kom víða við á þeim vettvangi. Á unglingsaldri var hann keppnismaður fyrir ÍR. Hann sat í stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) á árunum 1997-2000 og í laganefnd sambandsins frá 2006-2017, lengst af sem formaður. Ásbjörn vann einnig mikið við dómgæslu á frjálsíþróttamótum um allt land. Ásbjörn hlaut gullmerki FRÍ fyrir störf sín árið 2016.
            Ásbjörn var félagi í Oddfellowreglunni frá 1996 og einn af stofnendum stúkunnar Sifjar á Sauðárkróki árið 1997.“ Morgunblaðið

            S07264 · Person · 09.01.1956 - 17.07.2020

            Fædd í Reykjavík, ólst upp á Seltjarnarnesi. Réði sig sem kaupakonu að Tungu, Skag, árið 1976, og kynntist þar eiginmanni sínum, Andrési Helga Helgasyni. Starfaði hjá Kaupfélagi Skagfirðinga um hríð en lengst af hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands við umönnun.

            S04948 · Person · 17.06.1872 - 03.07.1967

            Bóndi á Fossi á Skaga, síðar í Reykjavík. Bóndi á Fossi, Hvammssókn, Skag. 1910 og 1930.

            S07405 · Person · 22.06.1932 - 18.04.2019

            Bóndi og sjómaður á Mallandi á Skaga. Síðar bús. á Sauðárkróki. Gegndi ýmsum félagsstörfum.