Harðspjalda, handskrifuð Gjörðabók í nokkuð góðu ástandi en kjölur nokkuð laus. Bókin er frá 7. mai. 1927 er er merkt eins ohg hún sé no 2 í röðinni og byrjar á skuldbindingar endurnýjun, " Vér undirritaðir stofnendur sparisjóðs Hólahrepps tökumst á hendur einn fyrir alla og allir fyrir einn, eitt þúsund króna ábyrgð sem tryggingu fyrir því að sjóðurinn standi í skilum". 12 fundarmenn skrifa undir, dagsett 6. maí.1928. Lög fyrir Sparisjóð Hólahrepps voru samþykkt á aðalfundi 26. mars. 1918. Þar segir í 2.gr. Frá fyrsta degi janúarmánaðar 1915 er stofnaður Sparisjóður í Hólahreppi í Skagafjarðarsýslu.
Rit sem hefur verið ljósritað upp úr fyrstu fundagerðabók sem er ekki í þessu safni, ritið er heftað saman og hefti eru tekin. Þetta eru fyrstu upplýsingar félagsins um stofnun og lög félagsins.
Harðspjalda Gjörðabók 1889. Bók vel með farin en blaðsíður nokkuð blettóttar en bókin er heilleg. Fundargerðir , Eignaskrá, Leiguskrá, Reikningar. Skýrsla um jarðabætur og skuldir. Vel læsileg og handskrifuð.
Harðspjalda handskrifuð Gjörðabók segir frá stofnfundi félagsins og þeirri starfsemi er var í félaginu. Í bókina er lítið skrifað og hún er í góðu ásigkomulagi.
Þrjú handskrifuð pappírsgögn um barnabækur afhentar Varmahlíðarskóla samkvæmt ákvörðun stjórnar Lestrarfélagsins 25/2 1997 samþykkt af Sveitastjórn. Svo koma númerarunur um málið og síðan afhent 9. apríl 1997.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi en bókin er með 192 tölusettar blaðsíður. Nokkuð ryð í heftum í bók og blaðsíður blettóttar en vel læsilegar. Bókin inniheldur fundagerðir, bókhald og meðlimaskrá og aftast bókalisi yfir keyptar bækur 1939 - 1940.
Innbundnar handskrifaðar og vel læsilegar bækur. Bækurnar hafa varðveist ágætlega, bindingar og blöð eru að mestu heilleg. Elsta fundargerðarbókin (frá 1903-1912) hefur varðveist illa.
Gögn vegna fyrirhleðslna á Héraðsvötnum. Í þeim má finna samþykkt fyrir félagið Hjeraðsvatnafyrirhleðslan, lista yfir kostnað, gjaldskrár, reikninga, innleggsnótur, Viðskiptabók og bréf,
Bókhaldsgögn er fylgja lestrarfélaginu eru pappírsgögn prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það.
Fundargerðabók er heilleg, harðspjalda A5 bók þar sem stofnun félagsins er skráð ásamt lögum félagsins, meðlimum og aðrir fundir. Blöð um fundargerð nokkuð heilleg.
Fundargerðir bókaskrár og Lög fyrir lestrarfélag Seyluhrepps. Meðlimaskrá. Aðalreikningar og minnismiðar. Pappírsgögn í viðkvæmu ástandi en vel læsileg. Umslag sem gögn komu í fylgir hér með og segir í horni Jónas Haraldsson, Völlum 1982. Spurning er hvort hann hafi skilað inn þessum gögnum en það er ekki staðfest.
Tvær ljósmyndir/pappírskópíur sem hafa varðveist mjög vel, önnur er svart hvít og er tekin á tímabilinu 1965-1970 af körfuboltaliði karla, hin ljósmyndin er í lit og er tekin um 1988-1990 af stúlknaliði Tindastóls.
Bækur með fundargerðir U.M.F Höfðstrendinga eru sex og í misjöfnu ástandi og misstórar. Þær eru frá árunum 1917 - 1984. Blöðin nokkuð trosnuð og rifin eða blöð hafa losnað. Allar handskrifðar og í þessum bókum eru fundirnir útlistaði og greinilegt er að miklu er áorkað til samfélagsins og mikið og gott ungmennastarf unnið. Inniheldur skráða Félaga í U.M.F.H. Félagatal er skráð á blöð einnig nokkur ódagsettar skráningar og ein heilleg rúðustrikuð bók með félagatali 1939 til 1943. Fundagerðir annarra eru sex litil óinnbundin rit frá ÍSÍ.
Harðspjalda handskrifuð bók í nokkuð góðu ástand en eitthvað ryð inn við kjöl og blettóttar blaðsíður. Bókin segir frá fundagerðum og efnahag félagsins.
Harðspjalda handskrifuð fundargjörðabók í góðu ástandi. Hún virðist vera nýlega skrifuð ( gæti verið Árni Bjarnasson sem skrifar ) upp úr gögnum gjörðabóka en í upphafi bókar sem hefur titil Úrdráttur úr fundargjörðum búnaðarfélags Akrahrepps og störf þess til 1892. eru skrifaðar upplýsingar er koma fram í eldri gögnum safnsins. Lítur út eins og verið sé að hreinskrifa upplýsingar.
Fundargerðabók Lestrarfélags Óslandshlíðar frá 20 nóvember 1930 til 1957 Fundargerðabókin fjallar um áframhaldandi fundagjörð um Lestrarfélag Óslandshlíðar þar til tillaga um að bókasafnið skuli metið af bókafullrúa og sínum manni frá hvoru félagi og rennt inn í Lf. Hofshrepp. Tillaga þessi var samþykkt með 11 samhljóðandi athvæðum föstudaginn 31. maí 1957 í Hlíðarhúsi. Ástand bóka misgott, nokkur rifin og trosnuð blöð, en bækur eru handskrifðar, önnur skjöl í heillegu ástandi.
Fundagjörðabækur Málfundarfélagsins og Ungmennafélagsins Vonar í Stíflu 1918-1945. Fundir félagsins enduðu með ýmsu móti eins og segir í Gjörðabók 1931 - 1939, í fundargerð frá 10.febrúar 1937. " Eftir fundinn settust allir að Chókólaðidrykkju og kaffi að þvi loknu, dansað, spilað, hoppað og hlegið, farið í reiptog og hressskonar gleðskapur um hönd hafður. Þar til dagsins fagra drottning reis úr rúmi Títusar og roðaði fjöll og minnti menn á hin daglegu störfin. Þannig endaði þessi aðalfundur ungmennafélags Von. Húrra. "
4 innbundnar og handskrifaðar bækur með fundargerðum knattspyrnudeildar Tindastóls frá árunum 1963-1990. Bækurnar hafa allar varðveist ágætlega og eru í góðu ásigkomulagi. Einnig eru handskrifuð pappírsgögn, rúðustrikuð A4 og A5 blöð með fundagerðum deildarinnar frá árunum 1990-1991 sem höfðu verið stungið inn í eina fundagerðabókina en ákveðið var að flokka blöðin eftir ártali og dagsetningum til að hægt sé að hafa betra aðgengi að þeim.