- IS HSk N00221-A-C
- Skjalaflokkar
- 1908-1943
Part of Holtshreppur: Skjalasafn
2 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum
Part of Holtshreppur: Skjalasafn
Part of Jón Nikódemusson: Skjalasafn
Part of Kvenfélag Staðarhrepps
Part of Lestrarfélag Miklabæjarsóknar
Þrjár innbundnar og handskrifaðar bækur og pappírsgögn. Bækurnar eru vel læsilegar og eru í mig góðu ásigkomulagi, ein bókin er illa farin og með rifnar blaðsíður. Pappírsgögnin eru vel læsileg og í mis góðu ástandi.
Lestrarfélag Miklabæjarsóknar
Part of Kvenfélag Skefilsstaðahrepps
Kvenfélag Skefilsstaðahrepps (1908 - 1983)
Part of Ungmennafélagið Tindastóll
Vélritað pappírsgögn með erindi til Sýslunefndar Skagafjarðarsýslu er varðar tímaritið "Tindastóll", einnig er samskonar blað sem fylgir og er með tillögu og greinargerð um sama blað. Gögnin hafa varðveist vel og voru innan um bókhaldsgögn U.M.F.T. Ákveðið var að setja þau með öðrum gögnum óskyldum bókhaldi félagsins.
Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )
Part of Fellshreppur: Skjalasafn
Part of Lestrarfélag Goðdalasóknar
Harðspjalda handskrifuð bókaskrá félagsins í góðu ástandi. Hér hefur verið ritað að nýju allar þær bækur frá upphafi félagsins, Skráð er höfundar, þýðandi, staður og ár. Blaðsíður eru tölusettar og ritað er í 173 blaðsíður af 192.
Lestrarfélag Goðdalasóknar
Part of Klemens Guðmundsson: Skjalasafn
Part of Sauðárkrókur: Skjalasafn
Laus skjöl úr Reikninga- og viðskiptamálabók Unglingaskólans á Sauðárkróki (D-A-3), á tímabilinu 1911-1946.
Fundagerða - reikninga- og skýrslubók
Part of Lestrarfélag Goðdalasóknar
Harðspjalda handskrifuð félagsbók í nokkuð góðu ástandi, gulnaðar blaðsíður en vel læsilegar.
Lestrarfélag Goðdalasóknar
Part of Stefán Jónsson: Skjalasafn
Ýmsar gamlar skólabækur og vasakver
Skýrslur Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal
Ársskýrslur um rekstur Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal árin 1910 og 1912.
Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Guðjón Ingimundarson (1915-2004)
Part of Kristján C. Magnússon og Sigrún M. Jónsdóttir: Skjalasafn
Söngtextar, ljóð og lausavísur. Sumt merkt höfundum, annað ekki. Það sem merkt er höfundum var skrifað upp og skráð á vísnavefinn.
Kristján C. Magnússon (1900-1973)
Part of Stefán Jónsson: Skjalasafn
Part of Fellshreppur: Skjalasafn
Part of Valdemar Guðmundsson: Skjalasafn
Part of Bruno Schweizer: Skjalasafn
Ýmsar bækur og ritlingar sem tengjast Íslandi og eða sögu Schweizer fjölskyldunnar.
Bruno Scweizer (1897-1958)
Part of Stefán Jónsson: Skjalasafn
Part of Akraskólahverfi (Afhending 1996)
Part of Búnaðarfélag Lýtingsstaðahrepps
Innbundin bók. Blöðin eru forprentuð til skýrsluhalds fyrir jarðbætur á bújörðum. Á blöðum eru handskrifaðar upplýsingar um heiti bújarða og framkvæmdir sem gerðar voru á þeim, þ.e. túnsléttur, túngræðsla, sáning og girðingavinna. Einnig vinnsla við vatnsveituskurði, stíflu- og flóðgarða og fl.
Búnaðarfélag Lýtingsstaðahrepps
Part of Ungmennafélagið Fram
Part of Lestrarfélag Hvammsprestakalls
Handskrifuð og prentuð erindi er koma til félagsins frá ýmsum aðilum s.s. Fræðslumálaskrifstofu,Bókaútgáfu Guðjóns Ó Guðjónssonar, Skrár yfir bækur og handskrifuð erindi.
Part of Ungmennafélagið Tindastóll
Innbundnar og handskrifaðar bókhaldsbækur. Bækurnar eru allar í góðu ásigkomulagi og hafa varðveist ágætlega. Pappírsgögnin eru vélritaðar skýrslur með efnahagsreikningi U.M.F.T. fyrir árin 1961-1964.
Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )
Part of Búnaðarfélag Rípurhrepps
Harðspjalda handskrifuð bók en upprunaleg gjörðabók hefur verið límd inn í kápuna og bók í góðu ástandi.
Part of Búnaðarfélag Fellshrepps
Bók harðspjalda og handskrifuð í nokkuð góðu ástandi en límmiði á kili. Í bókina eru skrifaðar 18 skýrslur.
Aftast í bók stendur: Bók þessi er hefur 29 tölusettar skýrslur er hér með staðfest sem jarðabótamælinga - skýrslubók fyrir Búnaðarfélag Fellshrepps í Skagafjarðasýslu. Akureyri. 20.anúar 1920. Stimpill frá Ræktunarfélag Norðulands.
Búnaðarfélag Fellshrepps
Mikið safn af hand- og vélrituðum bréfum, formlegum og óformlegum. Í safninu eru einnig forprentaðir bæklingar, auglýsingar, kvittanir og blaðaúrklippur. Safnið var forflokkað og allt mjög skipulagt, vel merkt og auðunnið, því var flokkað eftir sendanda, í stafrófsröð og varðveitt í pappírsörk. Bréfasafnið er í misgóðu ástandi en allt læsilegt og vel varðveitt. Ákveðið var að halda upphaflegri röðun safnsins - með örfáum undantekninum þar sem nokkur bréf voru færð til þar sem það þótti passa betur við vegna samhengi gagna. Nöfn bréfritara og sendenda voru skráð á lista sem var prentaður út og látinn fylgja hverju safni fyrir sig til aðgreiningar.
Meginhluti safnsins byggist á sendibréfum frá vinum og kunningjum Gísla sem hann skrifaðist á í um áratuga skeið - og jafnvel lengur. Safnið inniheldur mikið af kveðskapi, hugleiðingum um stjórnmál, ættfræði, mannalýsingar, búskap, sauðfjárrækt og viðskiptalegs eðlis. Í safninu einnig eru þakkar-og boðskort, fundarboð og fundargerðir.
Í safninu eru fjölmörg erindi sem tengjast stöðu Gísla innan Framsóknarflokksins, hann starfaði líka í Búnaðarfélagi Íslands, í Sýslunefnd Skagafjarðar og var lengi vel í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga. Hann var einnig oddviti hreppsnefndar Rípurhrepps, starfaði í yfirkattanefnd Skagafjarðarsýslu, kenndi í barnaskóla Rípurhrepps og spilaði á orgel í Rípurkirkju.
Skemmtilegt er að sjá hvernig sendibréfin til Gísla byrja, sem dæmi er "Kæri Gísli", "Kæri vinur" og jafnvel "Elskan mín" og má greina að þarna var góður og einlægur vinskapur á milli þessara einstaklinga. Mörg bréfin eru mjög persónuleg, önnur skemmtileg og áhugaverð til lestrar. Það sama má segja um kveðskapinn sem er í safninu sem er fjölbreyttur en áhugaverður. Upplýsingar um hvern bréfritara skráðar á lista og haldið nánast óbreyttu skipulagi. Safnið var einnig hreinsað af heftum og bréfaklemmum.
Gísli Magnússon (1893-1981)
Afrit af hinum fjölmörgu handskrifuðu og prentuðu bréfum er Gísli ritaði til ýmisra aðilla. Bréfin eru í misgóðu ástandi en öll þokkalega vel læsileg, vert er að geta að bréfsefnið er oft á tíðum eldri prentuð blöð sem Gísli nýtir til að prenta á afritin. Gísli undiritar oft bréfin sín með nafnastimpli sem hann lét útbúa eftir sinni rithönd því hann var orðin skjálfhentur. Bréfin eru flokkuð eftir stafrófsröð og sett þannig saman í arkir, eins og þau lágu í uppruna, en örk sem var utan um bréfin fyrir er hreinsuð. Safnið er hreinsað af bréfaklemmum.
Gísli Magnússon (1893-1981)
Part of Búnaðarfélag Staðarhrepps
Ein lítil bók, viðskiptabók við sparisjóð á Sauðárkrók. Bókin er laus frá kápu, plastmiði á kili heldur henni ekki saman. Bók þessi er 12 blöð að stærð no 7814 við Sparisjóð á Sauðárkrók 23. mars. 1912, Aðalbók no 5, handskrifuð, um það sem er innlagt og úttekið.
Búnaðarfélag Staðarhrepps
Part of Sigurður Þórðarson: Skjalasafn
Bréf til ýmissa aðila.
Part of Kolkuós: Skjalasafn
Part of Hofshreppur: Skjalasafn
Part of Lestrarfélag Óslandshlíðar
Fundargerðabók Lestrarfélags Óslandshlíðar frá 20 nóvember 1930 til 1957
Fundargerðabókin fjallar um áframhaldandi fundagjörð um Lestrarfélag Óslandshlíðar þar til tillaga um að bókasafnið skuli metið af bókafullrúa og sínum manni frá hvoru félagi og rennt inn í Lf. Hofshrepp. Tillaga þessi var samþykkt með 11 samhljóðandi athvæðum föstudaginn 31. maí 1957 í Hlíðarhúsi.
Ástand bóka misgott, nokkur rifin og trosnuð blöð, en bækur eru handskrifðar, önnur skjöl í heillegu ástandi.
Lestrarfélag Óslandshlíðar
Part of Búnaðarfélag Hofshrepps
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók með lögum og fyrstu bókhaldsreikningum búnaðarfélagsins. Bókin er í góðu ásigkomulagi með límborða á kili. Þetta er eina fundagerðabókin sem var í safninu.
Búnaðarfélag Hofshrepps
Part of Lestrarfélag Óslandshlíðar
Reikningabók Lestrarfélags Óslandshlíðar frá 1930-1954. Inniheldur rekstrarreikninga Lestrarfélags Óslandshlíðar. Heillegar stílabækur með láréttum og lóðréttum línum og blaðsíður gulnaðar og í misgóðu ástandi. Yfirlit yfir tekjur og gjöld Lestrarfélag Óslandslíðar,ásamt lista yfir bókaeign félagsins.
Lestrarfélag Óslandshlíðar
Part of Kolkuós: Skjalasafn
Part of Lestrarfélag Hvammsprestakalls
Handskrifuð pappírsgögn og litlar óinnbundnar bækur um þau samskipti sem eru í lestrarfélagi , félagatal, fylgigögn, bókaeign og leigu bóka. Gögnin eru í misgóðu ástandi og hreinsuð af heftum og bréfaklemmum.
Part of Lestrarfélag Hólahrepps
Lítil harðspjalda handskrifuð ljóða og minnisbók Sigríðar Traustadóttur. Hún ritar sín ljóð og annarra í þessa litlu bók á meðan hún er á ferðalagi sínu. Hún er einnig að þýða í bókinni ljóð eftir Colly Monrad Rósir lífs og dauða og Kvöldvísa eftir Göethe, ásamt því að yrkja ljóð á norsku, hér er einnig ljóð um Jón Magnússon Ósmann.
Lestrarfélag Hólahrepps
Part of Magnús Gunnarsson: Skjalasafn
Part of Kristján C. Magnússon og Sigrún M. Jónsdóttir: Skjalasafn
Ýmis tækifæriskort og skeyti úr búi Krisjáns C. Magnússonar og Sigrúnar M. Jónsdóttur
Kristján C. Magnússon (1900-1973)
Part of Klemens Guðmundsson: Skjalasafn
Part of Akrahreppur: Skjalasafn
Ýmis gögn úr fórum Akrahrepps, frá árunum 1914-1980.
Akrahreppur (1000-)
Part of Rögnvaldur Jónsson: Skjalasafn
Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)
Part of Búnaðarfélag Staðarhrepps
Gjörðabók félagsins um hin ýmsu störf sem félagið vinnur að. Lagðir fram reikningar og flutt erindi. Bókin er í góðu áskigkomulagi
Part of Búnaðarfélag Akrahrepps
Harðspjalda handskrifuð bók í nokkuð góðu ástand en eitthvað ryð inn við kjöl og blettóttar blaðsíður. Bókin segir frá fundagerðum og efnahag félagsins.
Búnaðarfélag Akrahrepps
Part of Árni G. Eylands: Skjalasafn
Árni G. Eylands (1895-1980)
Part of Jón Jónsson. Skjalasafn
Part of Verkamannafélagið Fram
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. í bók liggur kvittun fyrir afhendingu bókar til skjalasafns. Bókin er handskrifuð af Jóni Gíslasyni Guðmann, bónda á Skarði við Akureyri og afhendist hér með Héraðsskjalasafni Skagfirðinga 16. sept. 1993. Undirritun Ísak Guðmann.
Bókin er uppskrift Jóns G Guðmanns á blaðinu "Mas og þras" frá árinu 1916 - 1917, II. árgangur, tölublöð 1 -11. Vantar allan fyrsta árgang.
Part of Magnús Gunnarsson: Skjalasafn
Part of Fellshreppur: Skjalasafn
Part of Ungmennafélag Höfðstrendinga
Öll bókhaldsgögn sem tilheyra félaginu frá hinum ýmsu aðillum í formi handskrifaða eða vélritaðra upplýsinga. Gögnin eru í mjög misjöfnu ástandi, bækur, laus blöð, heilleg, rifin eða vökvi hefur komist í gögnin, en þau þó alveg læsileg.
Ungmennafélag Höfðstrendinga*
Part of Samtíningur I
Part of Guðmundur Davíðsson: Skjalasafn
Part of Búnaðarfélag Fellshrepps
Stórar Jarðabótaskýrslur Búnaðarfélagsins þær eru í nokkuð góðu lagi en blettóttar og bæði handskrifaðar og prentaðar. Þær segja frá Nafn og heimili jarðabótamanns, jarðrækt, túnasléttur, girðingar um tún og garða o.s.fr.
Part of Ungmennafélag Höfðstrendinga
Bækur með fundargerðir U.M.F Höfðstrendinga eru sex og í misjöfnu ástandi og misstórar. Þær eru frá árunum 1917 - 1984. Blöðin nokkuð trosnuð og rifin eða blöð hafa losnað. Allar handskrifðar og í þessum bókum eru fundirnir útlistaði og greinilegt er að miklu er áorkað til samfélagsins og mikið og gott ungmennastarf unnið. Inniheldur skráða Félaga í U.M.F.H. Félagatal er skráð á blöð einnig nokkur ódagsettar skráningar og ein heilleg rúðustrikuð bók með félagatali 1939 til 1943. Fundagerðir annarra eru sex litil óinnbundin rit frá ÍSÍ.
Ungmennafélag Höfðstrendinga*
Part of Ungmennafélag Höfðstrendinga
Gögnin hafa að geyma handskrifaðar heimildir, bækur og prentuð blöð. Þetta eru ýmsir samningar, lög og skýrslur sem tilheyrðu U.M.F.H.
Gögnin eru í misgóðu ástandi, en vel lesanleg.
Dagbók og pappírsgögn úr dagbók
Part of Dýraverndunarfélag Skagafjarðar
Innbundin og handskrifuð dagbók og pappírsgögn úr dagbókinni. Ákveðið var að taka skjölin sem voru laus inni í bókinni og skrá þau sérstaklega. Gögnin hafa öll varðveist vel.
Dýraverndunarfélag Skagafjarðar
Ýmsar frásagnir og fróðleikur frá Kemp ásamt nokkrum tímaritum.
Lúðvík Kemp (1889-1971)
Útfararræður og minningargreinar 1918-1977
Afrit af hinum fjölmörgu handskrifuðu og prentuðu minningagreinum, greínum og ræðum af samferðamönnum og konum Gísla og hann ritaði minningar um. Gögnin eru í misgóðu ástandi en öll þokkalega vel læsileg, Gögnin eru flokkuð eftir ártalaröð eins og þau koma fram í safni og eftir meðfylgjandi skrá sem liggur í safni. Þau eru sett saman eftir áratugum og haldið er eins mikið í uppruna og hægt er, en hreinsun á sér stað á heftum og bréfaklemmum. Elstu gögnin eru handskrifuð. og meðfylgjandi umslög fylgja. En prentuðu gögnin eru oft á tíðum prentuð aftan á öllur gögn í eigu Gísla, nýttur pappír.
Gísli Magnússon (1893-1981)
Part of Dýraverndunarfélag Skagafjarðar
Innbundnar og handskrifaðar bækur í A3 stærð. Bækurnar eru vel læsilegar og hafa varðveist ágætlega.
Dýraverndunarfélag Skagafjarðar
Part of Iðnfélag Viðvíkurhrepps
Fundagjörðabækur Málfundarfélagsins og Ungmennafélagsins Vonar í Stíflu 1918-1945.
Fundir félagsins enduðu með ýmsu móti eins og segir í Gjörðabók 1931 - 1939, í fundargerð frá 10.febrúar 1937.
" Eftir fundinn settust allir að Chókólaðidrykkju og kaffi að þvi loknu, dansað, spilað, hoppað og hlegið, farið í reiptog og hressskonar gleðskapur um hönd hafður. Þar til dagsins fagra drottning reis úr rúmi Títusar og roðaði fjöll og minnti menn á hin daglegu störfin. Þannig endaði þessi aðalfundur ungmennafélags Von. Húrra. "
Málfundafélagið Von í Stíflu
Part of Lestrarfélag Fellshrepps
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi en bókin er með 192 tölusettar blaðsíður. Nokkuð ryð í heftum í bók og blaðsíður blettóttar en vel læsilegar.
Bókin inniheldur fundagerðir, bókhald og meðlimaskrá og aftast bókalisi yfir keyptar bækur 1939 - 1940.
Lestrarfélag Fellshrepps
Ýmiskonar efni úr fórum Kemp. Ættargrúsk, bókhald, minningargreinar og umsagnir.
Lúðvík Kemp (1889-1971)
Fundagerða - reikninga - og skýrslubók
Part of Lestrarfélag Hólahrepps
Harðspjalda handskrifuð bók í viðkvæmu ástandi, gulnuð blöð og trosnuð en heilleg og vel læsileg. Bókin hefur verið sett í nýja kápu.
Lestrarfélag Hólahrepps
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)
Part of Ungmennafélag Holtshrepps
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu lagi en blettótt. Í bók eru skráningar yfir stofnsjóðsreigendur, aðalreikningar, listi yfir iðngjöld og fl.
Gjörðabók Kvenfélags Akrahrepps
Part of Kvenfélag Akrahrepps
Harðspjalda, línustrikuð bók í góðu ástandi.