Vísur eftir Dr. Jón Helgason. Virðist vera teknar saman af "K.S.B.". Á heftið er skrifað: "Þessi kvæði Dr. J. H. hafa ekki komið mikið fyrir augu almennings."
Haukur úr Holti skrifar um áramót 1926-1927 um uppeldismál. Grein er nefnist; Sorgarstaðurinn eftir Gest. Síðasta blaðsíðan hefur lausavísur eftir Hærukoll.
Í fyrir bók stendur: Í þessu blaði stendur; "Gaman og Alvara kemur út á hálfsmánaðar fresti um 6. blöð í senn. Blaðið flytur sögur, kver, stöku, ritgerðir, skrítlur, spurningar og svör, vísuparta og botna o.m.m. fl. sem allt er vandað bæði að efni og búningi. Ekkert blað á landinu fjallar um eins mörg málefni og þetta blað þrátt fyrir hina mörgu erfiðleika sem það á við að stríða áður en það getur komið fyrir almenningssjónir. Undir þetta skrifar "ritstjóri".
Sveitablaðið Gaman og alvara, gefið út í Akrahreppi 1916-1919. Gefið út af tilhlutan nokkra ungra manna. Ritstjóri Hannes Magnússon og á seinni tölublöðum Jón Eiríksson.
Í þessu blaði stendur; "Gaman og Alvara keur út á hálfsmánaðar fresti um 6. blöð í senn. Blaðið flytur sögur, kver, stöku, ritgerðir, skrítlur, spurningar og svör, vísuparta og botna o.m.m. fl. sem allt er vandað bæði að efni og búningi. Ekkert blað á landinu fjallar um eins mörg málefni og þetta blað þrátt fyrir hina mörgu erfið leika sem það á við að stríða áður en það getur komið fyrir almenningssjónir. Undir þetta skrifar ritstjóri.
Viðar, sveitablað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi á árunum 1914-1916. Þetta blað fjallar m.a. um verslun á Íslandi, Um lestarfélagsskemmtun, grein um Böð eða sund, sögur, ævintýri og kveðskapur ýmis konar. Þá er kafli um tóbak. Inn í þann kafla hefur verið sett skjal eitt með undirskrift þeirra sem ætla að sniðganga slík efni. Þetta er undirritað 3. mars 1911 og hefur líklega verið bundið inn í þessa bók.
Viðar blað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi 1916. Meðal efnis er grein um ferðalög, um nautgriparækt, um kosningar, um draum, þegnskylduvinnu og ýmislegt fleira.
Slitrur af því sem Sigurður var að gera árið 1913-1915, dagsetningar, laun og kostnaður. Einnig eru tvær vísur eftir Pál Ólafsson sem þekktar eru: Vonin styrkir... og Vonin mér í brjósti.... Og tvær vísur eftir Mikel Gillisson , Hálsi http://bragi.info/skag/visur.php?VID=15917 Einnig er vísa sem er illskyljanleg eftir Mikel.
Bók sem safnað hafa verið vísur og ýmsar setningar. Sumum stöðum skrifað á dönsku. Einnig má finna bókhald eða kosnað vegna ferðalags. Vísur sem ekki eru höfundar af.
Handskrifaðar vísur, eftir Guðmund Inga, Mig langar uppí sveit. Vísa þar sem ekki er getið höfundar sem byrjar svona Jólasveinar fara um fjöll. Blað þar sem Sigurjón Jónasson er tilgreindur höfundur á 3 blaðinu en þar eru 2 vísur: Haustvísur og Spóinn