Fonds E00080 - Hestamannafélagið Stormur/Svaði

Identity area

Reference code

IS HSk E00080

Title

Hestamannafélagið Stormur/Svaði

Date(s)

  • 1974 - 1988 (Creation)

Level of description

Fonds

Extent and medium

1 innbundin bók
1 örk, 1 askja 0,03 hm.

Context area

Name of creator

(31.10.1974 - 16.02.2016)

Biographical history

Undirbúningsfundur að stofnun hestamannafélags var haldinn í Félagsheimilinu Höfðaborg þann 02.10.1974 samkvæmt fundarboði sem hestamenn í Hofsóshreppi fengu frá Gísla Kristjánssyni oddvita hreppsins. Á fundinn mættu 8 hrossaeigendur.
Oddviti skýrði frá vandamáli sem skapast hefði í þorpinu vegna lausagöngu hrossa og þörf væri á að gera nauðsynlegar úrbætur vegna þessa ástands. Lagði oddviti til að stofnað yrði hestamannafélag til að taka á máli sem þessu ásamt því að mál sem þessi yrðu leyst og skipulögð á félagslegum grundvelli.
Á fundinum var lagður fram uppdráttur af fyrirhuguðu gripahúsahverfi í landi hreppsins hjá Hofsgerði.
Kosið var í fyrstu stjórn félagsins og hlutu Sigursteinn Guðlaugsson, Friðbjörn Þórhallsson og Margrét Kristjánsdóttir kosningu.

Hestamannafélagið Stormur var síðan formlega stofnað á fundi sem var haldinn í Félagsheimilinu Höfðaborg þann 31.10.1974. Á fundinn mættu 24 manns. Ný stjórn var kosin, í henni voru; Friðbjörn Þórhallsson, Margrét Kristjánsdóttir og Eysteinn Jónsson. Meðstjórnendur Sigursteinn Guðlaugsson og Þorleifur Jónsson. Varamenn; Pétur Ólafsson og Þorsteinn Kristjánsson.
Í fundagerð 14.02.1984 sem var framhaldsfundur frá 13.02.1984 voru kynnt drög af lögum félasins og þar kom tillaga
um að breyta nafni félagsins í Hestamannafélagið Svaði vegna væntanlegrar inngöngu félagsins í L.H. og var tillagan samþykkt.
(Fundagjörðabók 28.12.2023 LVJ).
Hestamannafélagið Svaði fékk aðild að Landsambandi Hestamannafélaga þann 24. september 1984.
Þann 16. febrúar 2016 sameinuðust Hestamannafélagið Svaði hestamannafélögunum Léttfeta og Stíganda og mynda þess þrjú félög öfluga heild í Hestamannafélaginu Skagfirðingi, félagssvæðið er Skagafjörður.

Archival history

Stefán Gestsson Arnastöðum afhendir 02.02. 1994. (LVJ 28.12.2023).

Immediate source of acquisition or transfer

Content and structure area

Scope and content

Handskrifuð harðaspjalda fundarbók í góðu ástandi.

Appraisal, destruction and scheduling

Accruals

System of arrangement

Conditions of access and use area

Conditions governing access

Conditions governing reproduction

Language of material

    Script of material

      Language and script notes

      Physical characteristics and technical requirements

      Finding aids

      Allied materials area

      Existence and location of originals

      Existence and location of copies

      Related units of description

      Related descriptions

      Notes area

      Alternative identifier(s)

      Access points

      Name access points

      Genre access points

      Description control area

      Description identifier

      IS-HSk

      Institution identifier

      IS-HSk

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Partial

      Dates of creation revision deletion

      SUP yfirfærði úr Einkaskjalaskrá í atom - 26.5.2023.
      LVJ uppfærði 28.12.2023.
      JKS viðbótarskráning 17.02.2025.

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        Accession area