Hér er á ferðinni eitt forvitnilegasta handritið í þessu safni sem þarfnast nánari skoðunar. En þetta er handrit að bók Sölva um kristilega siðfræði. Í umfjöllun sinni vitnar Sölvi til Biblíunnar jafnt sem til ýmissa heimspekinga. Hegel, Fichte og Kant nefnir hann alla til sögunar . En Sölvi telur siðfræði kristinna mótmælenda skera sig nokkuð frá öðrum trúahreyfingum þar sem hún er ekki eins bundin af kenningum ritningarinnar Bókin skiptist upp í nokkra hluta. Sá fyrsti heitir Hugmynd siðfræðinnar. Síðan kemur: Annar partur: Hið góða, sem kærleikans lögmál, eða hið algjöra siðferðislega fyrirmynd. Því næst kemur kafli sem er merktur með þessum hætti: III: Hin siðferðislega fulkomnun mannsins: 59.grein: Sálarinnar velferð og dyggð. Það er nokkuð ósamræmi því þar næst kemur: Þriðji partur: Hið góða sem siðferðislegt ríki. Að lokum kemur kafli sem ekki er númeraður en ber heitið: Líf safnaðarins. Samtals 5 hlutar en álitamáli getur talist hvort bókin skiptist í fimm hluta eða hvort þeir séu þrír og hinir tveir einhvers konar millifyrirsagnir. Ljóst er að handritið er nokkuð yfirgripsmikið og að sama skapi heilsteypt en þetta virðist vera hreinskrift því á öðrum stað má sjá hluta þess sem er ekki fullgerður. Kaflar handritsins skiptast í mismunandi greinar sem eru tölusettar upp í 85 auk viðbóta við nokkrar greinar. Ekkert virðsit vanta í handritið þó mögulega aftan við það en ekkert sérstakt niðurlag fylgir því virðist vera. Því ætti að vera hægt að fá góða mynd af umfjöllunarefni þess og einkar áhugavert að kanna það frekar, t.d. hvort það eigi sér einhverja hliðstæðu sem Sölvi gæti hafa stuðst við eða hvort um sé að ræða sjálfstæðar ályktanir Sölva um trú og siðfræði sem hann dregur af bæði ritningunni og hugmyndum heimspekinga.
Handskrifuð og prentuð pappírsgögn, yfirlitsskýrslur í ártölum og skrá um breytinga á bókaeign í ártölumum, aftast eru svo handskrifðuð pappírsgögn um keyptar bækur.
Handskrifaðir listar, á pappírsörkum í ýmsum stærðum, alls 23 blöð. Ýmis listar yfir bókakaup viðkomandi árs eða bækur í mismunandi deildum. Ástand skjalanna er gott.
Bókalisti og reikningsbók Lestrarfélags Óslandshlíðar 1913- 1929. Skráður er bókalisti eftir starfrófsröð og númeraröð og einnig skráðir reikningar. Stílabók með langsum línum, nokkuð heilleg en blöðin gulnuð og smá krumpuð.
Styrkur til Héraðsskjalasafns (1948 og 1950), fjárveiting til Bóka- og Héraðsskjalasafns, bréf frá Ríkisútvarpi um efni úr héraði, bréf frá Menntamálaráðuneyti og reglugerð fyrir Bóka- og Skjalasafn, uppkast að stofnskrá fyrir Bókasafn Skagfirðinga, stofnskrá fyrir Bóka- og Héraðsskjalasafn Skagafjarðar 1951
Pappírsgögnin eru prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það á blöðum.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 broti skrifað er í örfáar blaðsíður. Í bókinni er blað með upplýsingum með nöfnum nokkurra manna sem skulda (ekki kemur nákvæmlega fram hverjum þeir skulda eða hversu mikið), bréfið er ódagsett og án ártals. Bókin er vel varðveitt og í góðu ásigkomulagi.
Að mestu viðskipti við Kaupfélag Skagfirðinga. Einnig reikningur Mjólkursamlags Skagfirðinga 1950 (5 blaðsíður) og lán frá Ræktunarsjóði Íslands. Einnig skattreikningar.
Bókhaldsgögn vegna sundlaugarinnar í Varmahlíð frá árunum 1966-1967. Alls 125 stk ásamt umslagi sem stílað er á Halldór Benediktsson. Ástand gagnanna er gott.
Hér eru 3 handskrifaðar bókhaldsbækur um reikninga byggingar Barnaskólans á hólum frá 1974 - 1983. Bækurnar eru í góðu ástandi Settar neðst í öskju B - 1/3.
Tveir handskrifaðir aðalreikningar 1930 - 1931 reikningar um tekjur og gjöld. Tvö bréfsefni frá Jóni Sigurðssyni. Staðgreiðslunóta Kaupfélags.Fimm minnismiðar.Prentað blað um Lánsfélag Staðarhrepps persónugreinanleg nöfn og lán.
Forprentaðar, vélritaðar og handskrifaðar kvittanir og önnur bókhaldsgögn, Gögnin eru í sæmilegu ásigkomulagi, þau eru röðuð upp í ártalsröð, blöðin hafa gulnað og eru orðin snjáð, sum blöðin eru rifin.