Afrit af bréfum Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu til ýmissa aðila. 18 handskrifuð bréf frá árunum 1977-1979 sem undirrituð eru af Heiðmari Jónssyni. 55 vélrituð bréf frá árunum 1979-1981 sem undirrituð eru af Knúti Ólafssyni og Ófeigi Gestssyni. Ófeigur virðist hafa verið formaður skólanefndar skólans. Ástand skjalanna er gott.
Frumvarpið er vélritað á 3 pappírsarkir í foliostærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar samþykkt um sýsluvegasjóð Skagafjarðarsýslu. Ástand skjalsins er gott.
Fundargerðin er handskrifuð á pappírsörk í folio broti, alls tvær skrifaðar síður. Varðar sameiginlegan fund hreppanna þriggja þar sem rætt var um ágreining um notkum vegar í landi Grænhóls. Einnig tillögur um að taka ferðaleiðir til Sauðárkróks í tölu hreppavega.
Skjalið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar lausamennskubréf fyrir Stefán Guðlaug Sigmundsson til heimilis á Enni í Viðvíkursveit. Ástand skjalsins er gott.
Símskeytið er handskrifað á þar til gert eyðublað, gert með kalkipappír. Það varðar efniskaup. Með liggur fylgibréf frá Páli S. Dalmar og co. Ástand skjalsins er gott.
Símskeytið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð, afrit gert með kalkipappír. það varðar mótmæli á rýmkun heimildar til dragnótaveiða og er stílað á Jóns Sigurðsson alþingismann. Ástanda skjalsins er gott.
Símskeytið er handskrifað á tvær pappírsarkir í A5 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar ályktanir sýslunefndar vegna hafnargerðar á Sauðárkróki. Ástand skjalsins er gott.
Útboðsauglýsingin er vélrituð að pappírsörk í A5 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar flutning á snyddu og malarburð. Ástand skjalsins er gott.
Skjalið er vélritað á pappírsörk í foliostærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar útboð Hegranesbrautar. Á því er innisgli Skagafjarðarsýslu. Ástand skjalsins er gott.
Björn Egilssonar, oddviti sveitarstjórnar Lýtingsstaðahrepps, afsalar kauprétti á jörðinni Brenniborg til Helga Jóhannessonar bónda á Syðstu-Grund í Akrahreppi. Þetta gerir hann fyrir hönd sveitarstjórnar Lýtingsstaðahrepps. Bréf ritað á Steinsstöðum, 1. apríl 1963 og undirskrift Björns handskrifuð.
Afsal þar sem Páll Jónsson trésmiður á Sauðárkróki lýsir því yfir að Nikódemus Jónsson hefur tekið að sér yfirtaka skuld sína við Sparisjóð Sauðárkróks sem hvílir á húseign hans Theobaldshúsi / Lindargötu 7 / Fyrstabóli og borgi umsamið kaupverð nefndrar húseignar. Bréfið er dagsett 20. október 1919 og er undirritað og og stimplað á manntalsþingi á Sauðárkróki 1920.
Afsal þar sem Nikodemus Jónsson á Fyrstabóli selur og afsalar húseign sinni Fyrstabóli / Lindargötu 7 til Jóns sonar síns. Afsalið nær til húseignarinnar ásamt lóðinni Hjaltastað á Sauðárkróki og var umsamið kaupverð 3000 kr. Í afsalinu var skilyrði fyrir því að Nikodemus fengi afnotarétt af norðurstofu í húsinu á meðan hann lifði. Bréfið er dagsett 7. janúar 1930, undirritað og stimplað til þinglýsingar af Sýslumanninum í Skagafjarðarsýslu.
Afsal Arngríms Sigurðssonar til Þóris og Guðlaugar. Með þessu bréfi afsalar hann til Þóris 1/3 hluta úr eignarjörð Litlu-Gröf í Staðarhreppi og 1/3 hluta úr eignarjörðinni Litlu-Gröf í Staðarhreppi til Guðlaugar. Undir skjalið skrifa tveir vottar og sýslumaðurinn sem er Stefán Sigurðsson.
Bréf þar sem Jón S Nikódemusson afsalar Magnúsi Jónssyni, Brekkugötu 3 Sauðárkróki lóð er honum var mæld út vegna byggingar ofan við íbúðarhúsið Lindargötu 7, Sauðárkróki. Engin dagetning er á bréfinu.
Afsalið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar afsal erfingja Guðlaugs Bergsson (föður Tryggva Guðlaugssonar) á húseigninni Grunargötu 11 (Pólstjörnunni) á Dalvík. Skjalið er nokkuð upplitað af óhreinindum og krumpað.
Innbundið hefti þar sem fjallað er um ágreining innan bæjarstjórnar Sauðárkróks um bæjarreikningana 1959-1960. Fyrir útgáfu heftisins stóðu frambjóðendur I-listans þeir Skafti Magnússon og Erlendur Hansen.