Ekki vitað hver afhendir safnið eða hvenær.
Pappírsgögn úr fórum Þorsteins Jóhannssonar sem stýrði sjúkrasamlagi Staðarhrepps. Safnið samanstendur af reikningum og kvittunum frá lyfsölum, Tryggingastofnun ríkisins og vegna lyfjakaupa og sjúkraflutninga. Mikið af gögnunum eru með nöfnum sjúklinga og kvittanirnar eru af öllum stærðum og gerðum. Í safninu eru einnig lyfseðlar og reikningar frá Torfa Bjarnasyni héraðslækni til sjúkasamlagsins og er því mikið af persónugreinanlegum gögnum í safninu. Safnið samanstendur af gögnum frá 1946-1952 en aðeins einn reikningur frá 1949 var í safninu.
Í safninu eru einnig erindi sem Sjúkrasamlaginu barst frá Tryggingarstofnun, Félagsmálaráðuneytinu og Ríkisspítölunum. Einnig eru samningar sem gerðir voru á milli Sjúkrasamlagsins og Ole Bang lyfsala á Sauðárkróki.
Í safninu eru pappírsgögn sem tengjast búrekstri Þorsteins í Stórugröf sem eru kvittanir fyrir innlögn mjólkur í Mjólkursamlag K.S og láni sem hann veitti Birni Gíslasyni smiði fyrir byggingu Fagrahvols í Varmahlíð. Í þeim gögnum eru handskrifað uppkast að skuldabréfi, vélritað skuldabréf fyrir láni með viðeigandi þinglýsingarstimplum og staðfesting hreppstjóra Seyluhrepps um byggingu hússins. Einnig voru Jarðbótaskýrslur Búnaðarfélags Staðarhrepps í safninu, þær voru grisjaðar úr því og skráðar sérstaklega í atóm undir Búnaðarfélagi Staðahrepps.
Safnið var að miklu leyti grófflokkað. Lyfseðlar voru í bréfapokum eða vafðir með teygjum, fylgigögn bókhalds voru að mestu varðveitt í umslögum og flokkuð eftir ártölum. Mestur hluti af skjölunum voru samanbrotin og var mesta vinnan við safnið fólgin í að taka þau úr brotunum.
Úr safninu voru umslögin og bréfapokarnir voru grisjaðir úr, teygjurnar sem voru utan um lyfseðlana voru orðnar morknaðar, hefti og bréfaklemmur voru orðnar mjög ryðgaðar og var allt fjarlægt úr skjölunum eftir fremsta megni.
Skjöl og pappírar í B og C lið eru PERSÓNUGREINANLEG TRÚNAÐARGÖGN