Ýmis gögn Ungmennafélagsins Höfðstrendinga eru í þessu safni s.s bókhald, bréfasafn, fundagerðabækur, sveitablaðið Félaginn 2 árg, ( D-A-c ). Harðspjaldabók um leikritið Henrik og Pernille eftir Ludvig Holberg, Baron of Holberg (3 December 1684 – 28 January 1754) skrifað 1724, en þýðandi Lárus Sigurbjörnsson ( D-A-a ) ásamt fleiri áhugaverðum gögnum. Gögnin eru flokkuð í hverju skipulagi eftir ártali, elstu gögn neðst en þau yngstu efst.
Gögn Ungmennafélags Holtshrepps, Fljótum í Skagafirði, frá 1919 til 1971. Í safninu eru alls sex bækur, fjórar fundagerðabækur, frá 1919 - 1964, ein bók með efnahagsreikningum félagsins, fyrir tímabilið 1935-1948 og bók með félagatali og lögum félagsins, dags.1919 - 1949.
Askjan inniheldur fjórar innbundnar og handskrifaðar fundargerðarbækur, sú elsta er frá 1905, innihald þeirra eru fundargerðir, reikningshald, lög og félagatal. Bækurnar hafa allar varðveist mjög vel og eru í góðu ástandi.
Handskrifuð bók í nokkuð góðu ástandi segir frá bókhaldi félagsins og svo lausar blaðsíður um fundarsköp, en ártal á öftustu síðu er skráð hér. Laus blöð, ein opna um lög ungmennafélagsins en þau eru ekki með ártali, blöðin blettótt og með ryðblettum.
Gögn Ungmennafélags Geisli / Bindindisfélagið Tilreyndin, er ein askja sem inniheldur fimm bækur um fundargerðir, lög, og bókhaldsgögn, og ein örk með ýmsum skjölum frá félaginu.
Gögn úr fórum Ungmennafélagsins Glóðafeyki í Akrahreppi sem voru varðveitt á Stóru-Ökrum, Svanhildur Pálsdóttir afhenti. Afhendingin inniheldur 1 innbundna fundargerðarbók, fylgigögn bókhalds, efnahags- og rekstrarreikninga, ársskýrslur, félagatal, bréf og erindi sem tengjast starfsemi og rekstri á Umf. Glóðafeyki. Skjölin voru grófflokkuð en farið var í að aðskilja og flokka þau betur eftir ártölum og hvers kyns þau voru. Úr safninu voru grisjaðir 4 plastvasar og brún pappírsumslög í A5 og A4 stærð. Hefti og bréfaklemmur voru hreinsuð úr safninu, þar sem mikið af því var orðið mjög ryðgað og byrjað að skemma út frá sér.
Bækur frá Ungmennafélagi Hegra eru í misgóðu ástandi. Þær lýsa því félagstarfi sem átti sér stað í félaginu, en það var stofnað 30.05. 1908 af 12 félagsmönnum.Í fyrstu fundargjörðabók eru lög félagsins, skuldbindingaskrá og reglugjörð samin fyrir glímuverðlaunapening U.M.F " Hegri".
12 ársskýrslur U.M.F. Tindastóls, elsta skýrslan er frá 1966. Ekki er um samfellt safn að ræða. 1 eintak af Sparkmann - leikskrá KnattspyrnudeildarTindastóls er einnig í safninu.
Handskrifaðar innnbundnar og óbundnar bækur og pappírsgögn frá U.M.F.T. Bækurnar eru flestar vel varðveittar og í góðu ásigkomulagi, sú elsta er frá stofnun ungmennafélagsins árið 1907. Í safninu er að finna fundagerðir, félagatal, bókhaldsgögn, vísur/stökur og formleg erindi. Þrjár bækur sem innihalda lög og fundareglur ungmennafélagins eru áhugaverðar og eru í sér öskju. Ákveðið var að flokka fundargerðir U.M.F.T. sérstaklega þar sem þær fylla tvær öskjur, mikið af bókhaldsgögnum eru líka í safninu. Talsvert var af stökum bókum og pappírsgögnum um ýmsa starfsemi innan félagsins sem fylla eina öskju. Gögn er tengjast knattspyrnu- og körfuboltadeildina eru flokkuð og varðveitt í sér öskjum.
Gjörðabók ungmennafélagsins Vaka í Viðvíkurhreppi byrjar á stofnfundi mánudag 10. mars 1930, til að ræða um stofnun ungmennafélags í Viðvíkurhreppi. Lesin voru uppköst af lögum og borin undir atkvæði og samþykkt í heild. í bókinni eru síðan lögin rituð ásamt fundargerðum. Aðalreikningabók er um tekjur og gjöld félagsins Vöku og inn í bók eru 6 laus blöð um ýmsar greiðslur t.d. greiðsluábyrgð til Björns Gíslasonar vegna harmonikkukaupa sem U.M.F Vaka á fyrsta veðrétt í. Björn Gíslason skuldbindur sig að spila á dansskemmtunum sem félagið kann að stuðla til í sínu umdæmi, umrætt tímabil frá 10. okt. 1940 - 10. okt. 1942. Einnig er listi um Ungmennafélagatal 1942.
Ein harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi, los á blaðsíðum og blaðasíður lausar. Aftari kápa er laus frá kili en bókin hangir saman að framan. Þetta er ekki stofnfundarbók og kemur ekki fram stofnun félagsins.
Kaupsamningur Upprekstrarfélags Staðarfjalla á Reynistaðarafrétt árið 1898. Bréfið er líklega eftirrit af upprunalega kaupsamningnum en samningurinn er dagsettur 28.03.1898 á Hafsteinsstöðum. Í samningnum segir "Afréttarfélagið er: allur Staðarhreppur, allir Rípurhreppur að undanteknu Eyhildarholti, af Seyluhreppi Langholtið fram að Litlu-Seylu að henni meðtaldri, Geldingarholt, holtskot, Fjall, Vatnskarð og Elvogar innan sama hrepps, af Sauðárhreppi allir bæir í Borgarsveit." Einnig fylgir frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir.
Í safninu er póstkort með mynd af sundkonu stinga sér til sunds (líklega í tengslum við vígslu sundlaugarinnar í Varmahlíð) og happdrættismiði fyrir sundlaug Skagfirðinga í Varmahlíð. Ekki er vitað hver afhendir eða hvenær.
Skjölin eru í mismunandi ástandi sum rifin, blöð gulnuð og ryð eftir hefti. Skjölin eru ýmist prentuð, vélrituð eða handskrifuð afrit, á fínum flugpappír og þegar safnið yngist verða gögnin að mestu útprentuð og með stimplum (logo) þeirra stofnanna sem þau koma frá. Allt safnið segir sögu félagsins, skjölin eru að mestu leyti vel læsileg. Safnið var látið halda sér eins og það birtist í safni í ártalsröð og nánast í upprunalegum örkum en skráning leiðrétt. Trúnaðargögn sett sér í örk, með sínum gögnum og taka á þau úr safni áður en safn er skoðað og persónugreinanleg trúnaðargögn liggja í safni. Mygla fannst í gögnum og voru þau ryksuguð og hreinsuð, ásamt því að hefti, bréfaklemmur og plast voru fjarlægð.
Í safninu eru 2 eintök (frumrit og ljósrit) af greinagerð sem Hjalti Pálsson vann um Vesturfarasetrið í Hamar í Noregi í tengslum við að slíkt safn yrði opnað í Skagafirði. Hjalti heimsótti safnið og vann greinagerðina út frá heimsókninni í safnið og kom með gögn frá þeim. Þar á meðal eru 2 einblöðungar á ensku frá vesturfarasetrinu (Norsk Utvandrermuseum) og forprentuð og innbundin ársskýrsla á ensku og 2 úttekt um starfsemi safnsins og sögu þess. Úr safninu var grisjað 1 ljósritað eintak af greinargerð Hjalta, sömuleiðis úttekt um starfsemi safnsins og sögu, 1 kynningarbæklingur og innbundna ársskýrslan.
Bókin er harðspjalda og handskrifuð en kápan er orðin mjög léleg, rifinn og trosnuð og er bókin með límborða á kili sem heldur kili saman, en bókin er laus frá. Blaðsíðurnar eru fínar og vel læsilegar. í bók er laus lítil bók, viðskiptabók frá Sparisjóð á Sauðárkrók nr.278 um bókhald Vinagjöf frá 1904 - 1941. Ein undirrituð kvittun um úthlutun úr sjóðnum. 1939.