Handskrifað sendibréf á þrjú línustrikuð blöð til Sigurjóns, dags. 13.október 1947 um stofnun Ungmennafélagsins Fram. Bréfið er vel varðveitt og læsilegt.
Safn með 13 sendibréfum, 7 jólakortum, 4 nafnspjöldum og einu skeyti sem Stefán Guðmundssyni (Íslandi) frændi Stefönu sendi henni á tímabilinu 1930-1965.
Ein innbundin bók um bókhald einstaklinga persónugreinanleg gögn nöfn og heimili. Bókin er í góði lagi, Miði er fremst í bók þar stendur Afhent af Birni Egilssyni Sveinsstöðum, 21.03.1974. K.B. Miði látin halda sér.
Í safninu eru skipulagsteikningar fyrir tjaldsvæðið á Hólum og líklega hluta af íbúðabyggðinni á Hólum og skipulag trjáræktar eftir reitum. Ekki var hægt að aldursgreina allt safnið, en það var látið halda sér óbreytt, hefti voru fjarlægð úr skjölunum.
Pappírsgögn sem tengjast búrekstri Þorsteins í Stórugröf sem eru kvittanir fyrir innlögn mjólkur í Mjólkursamlag K.S og láni sem hann veitti Birni Gíslasyni smiði fyrir byggingu Fagrahvols í Varmahlíð.