Skjöl sem tilheyra Halli Jónassyni frá Hátúni. Steinunn móðir Halls hélt gögnunum til haga. Í skjölunum er að finna einkunnablöð, bréf, reikninga og nótur, ásamt einni innbundinni vasabók.
Ýmsar skrár og skýrslur sem varða Sauðárkrókshrepp. M.a. kjörskrár, skrá um niðurjöfnun sveitaútsvars, fjallskilaskýrslur, skrá um reikningsskil Skarðshrepps, skýrslur um atvinnuleysi og atvinnubótavinnu.
Ljósmyndir, 75 stk. Teknar í Kanada. Eiríkur Haukur Stefánsson, eiginmaður Minnýjar, dvaldi hálft annað ár í Kanada snemma á sjötta áratugnum og því ljóst að myndirnar eru úr hans fórum.
Skrá yfir veðlán og veð Lánsfélags Staðarhrepps bókin er persónugreinanleg. Bókin er líka yfirlit yfir tekjur og gjöld félagsins. Bókin er harðspjalda. handskrifuð í góðu ástandi.
1 handskrifuð og læsileg bók með ársreikningum búnaðarfélagsins, tímabilið 1959-1982. Bundin í þykkum pappa, bókin er í góðu ástandi. Kjölurinn er límdur. Pappírsgögn eru handskrifuð, að mestu í góðu ástandi og hafa varðveist ágætlega en nokkuð er um að skjölin séu rifin.
Forprentaðar skýrslur, bók og hefti með upplýsingum um jarðarbætur í Seyluhreppi, gögnin eru handskrifuð og í ágætu ástandi, bindingin í vinnubókinni við saurblaðið aftast er laus. Heftin sem bundu skýrslurnar voru ryðguð, þau voru fjarlægð þar sem þau voru farin að skemma pappírinn. Gögnin eru heilleg og vel læsileg en pappírinn er blettóttur, elstu gögnin frá 1884 eru orðin rifin og viðkvæm.
Pappírsgögn, formleg og óformleg erindi, vélrituð, prentuð og handskrifuð. Vel læsileg og heilleg gögn sem hafa varðveist ágætlega. Hefti hreinsuð úr og bréfaklemmur fjarlægðar.
Stórar Jarðabótaskýrslur Búnaðarfélagsins þær eru í nokkuð góðu lagi en blettóttar og bæði handskrifaðar og prentaðar. Þær segja frá Nafn og heimili jarðabótamanns, jarðrækt, túnasléttur, girðingar um tún og garða o.s.fr.
Í þessu safni er mikið af handskrifuðum og vélrituðum, formlegum og óformlegum bréfum, erindum, skýrslum og fundagerðum. Skjölin eru vel varðveitt og sum hafa rifnað. Gögn eru röðuð í ártalsröð til einföldunar, þau voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum.
Bókin er harðspjalda, handskrifuð í góðu lagi en hreinsuð. Persónugreinanleg gögn, nöfn og heimili, greiðslur fyrir búfénað ásamt fundagerðum félagsins. Þar er tíðrætt um síldarmjöl sem skepnufóður gæði þess miðað við flokkun þess og það sem lakara er að notað það sem áburð.
Fylgiskjöl handskrifuð og prentuð innihalda aðalreikninga félagsinss, erindi, reikninga, skuldalista og önnur gögn s.s lög félagsins og samþykki. Gögnin eru hreinsuð af heftum og eru í misgóðu ástandi sum heilleg en önnur blettótt og rifinn.
Stór harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Lög félagsins, fundagerðir og skýrslur eru vel læsilegar og segja sögu félagsins.Bókin er nokkuð viðkvæm, los á blaðsíðum og gulnuð blöð en ein blaðsíða er laus. Nöfn, heimili og búpeningu er hér nefndur. Félagsmenn eru skráðir. Útigöngu og vinnuhross skráð svo og ær, lömb, kálfar, veturungar og naut.
Félagsbréf Tónlistarfélags Skagafjarðarsýslu ásamt félagatali frá 1983, fréttabréf MENOR Menningarsamtaka Norðlendinga frá 1990 (7. tbl. og 8. tbl), júní 1993 og júní 1994.
Bréfasafn félagssins sem barst á umræddum tímabili, gögnin eru í misjöfnu ástandi, sum léleg og er reynt að slétta úr blöðum á meðan önnur eru í betra ástandi. Hreinsað hefur verið úr gögnum bréfaklemmur og hefti og nokkuð er um ryð eftir það.