Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árin 1960-1961. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Bók í stærðinni 22,2x28,8 cm. Heftuð með kalkeruð síðum með handskrifuðum innfærslum. Inn í bókina eru færðar útborganir á póstávísunum í póstafgreiðslunni í Haganesvík árin 1959-1960. Bókin er fremur óhrein og fremstu síðurnar krumpaðar.
Útboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur samhljóða afrit, ásamt fjórum pappírsörkum í A4 stærð sem innihalda tilboð. Varðar grjótflutning vegna Vesturósbrúar. Ástand skjalsins er gott.
Útboðið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar malarkeyrslu í sýsluveginn í Blönduhlíð. Ástand skjalsins er gott.
Útvarpsþáttur í umsjón Agnars Guðnasonar sem heitir Út um hvippinn og hvappinn, viðtöl við Guðjón Hallgrímsson b. Norðurmýri í Vatnsdal og Magnús Guðmundsson í Dalbæ Hrunamannahreppi.
Yfirlit yfir keppendur og úrslit í Grettissundi 1940-1996 og þar með yfirlit yfir handhafa Grettisbikarsins þessi ár. Forsaga þessarar keppni er sú að þegar sundlaugin í Varmahlíð var vígð árið 1939 gaf Skagfirðingafélagið í Reykjavík lauginni bikar, svokallaðan Grettisbikar, til þess að keppa um í sundlauginni í 500 m. sundi og öðlast þar með titilinn "sundkappi Skagfirðinga".
Úrskurðurinn er fjölritaður á tvær pappírsarkir í folio stærð. Hann varðar reikninga bæjarins. Með liggur umsögn bæjarstjóra um úrskurðinn, einnig tvær pappírsarkir í folio stærð. Ástand skjalsins er gott.
15 pappírsarkir í ýmsum stærðum ásamt einni heftaðri bókhaldsbók. Úrlausnir verkefna frá bréfaskóla SÍS. Sum hafa verið yfirfarin, önnur eru uppköst. Ástand skjalanna er gott.
Útdráttur úr gjörðabók byggingarnefndar 1958. Undir fundargerðina rita Jósef Stefánsson, Magnús H. Sigurðsson, Guðjón Ingimundarson og Rögnvaldur Finnbogason.
Afrit úr gjörðabók bæjarstjórnar Sauðárkróks í ágúst 1960. Undir fundargerðina rita Guðjón Sigurðsson, Guðjón Ingimundarson, Kári Jónsson, Sigurður P. Jónsson, Skafti Magnússon og Árni Þorbjörnsson.
Ljóð sem virðist vera ein samhangandi frásögn á bæði framhlið og bakhlið. Erfitt að greina einhver skil á milli erinda og formið virðist ekki vera mjög fast í reipunum en ljóðlínurnar eru mislangar. Fyrst eru óvildarmenn á Sölva í Ærlækjarseli tilgreindir en síðan beinist athyglin að píslum Sölva og sambandi hans við Guð.
Handskrifuð pappírsörk í foliobroti, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar bréf til sýlunefndarmanna í Hofshreppi og alþingismanna Skagafjarðarsýslu, vegna frumvarps um hringnótaveiði á síld.
Pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar bréf til stjórnarráðsins 06.03.1913. Varðar umsóknir um verðlaun úr sjóði Kristjáns konungs IX.
Pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar bréf til Atvinnumálaráðuneytis vegna sýslufundargjörðar. Með liggur skeyti frá ráðuneytinu þar sem óskað er eftir að fá fundargjörðina senda. Ástand skjalsins er gott.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar bréf til Atvinnumálaráðuneytis vegna laga um laxveiði. Bútur er rifin úr skjalinu, ástanda að öðru leyti gott.
Pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Það varðar reglur um niðurjöfnun útsvars. Skjalið er aðeins skemmt þar sem það er brotið, annars í góðu ásigkomulagi.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar.Varðar bréf til landlæknis vegna yfirsetukonu í Fellshreppi. Eitt horn hefur rifnað af blaðinu, annars er ástand þess gott.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Það varðar bréf til Sigurðar Sigurðssonar vegna verslunarleyfis. Ástand skjalsins er gott.
Handskrifuð pappírsörk í folio stærð, úr bréfabók sýslunefndar. Varðar bréf til Páls Sigurðssonar læknis vegna lánsheimildar til Hofshrepps. Ástand skjalanna er gott.