Stundaskrá með yfirliti yfir afnot ákveðinna hópa af sundlaug Sauðárkróks árið 2002 og samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar.
Ég lít í anda liðna tíð, Sigvaldi Kaldalóns. Betlikerling SIgvaldi Kaldalóns, Una Gunnar Sigurgeirsson, Bikarinn Markús Kristjánsson og Ave María, Loftur Guðmundsson. Hvar eru fuglar þínir, Sv. Sveinbjörnsson. Óþekkt.
Pappírsgögn er lágu í safni og eru látin halda sér eins og þau komu fyrir í safni og eru í ártalaröð. Gögnin eru um jarðabótastyrk, fundagerðir handskrifuð gögn, reikningaeyðublöð, verfærakaupasjóður o.fl. Gögnin eru prentuð og handskrifuð og í misgóðu ástandi sum rifin en önnur góð.
Ýmis einkaskjöl úr fórum Jóns Sigurðssonar, m.a. samantekt hans á manntölum og framteljendum í Sauðárhreppi hinum forna 1801-1898, rit Árna G. Eylands - Heim að Hólum, uppkast að kaupsamningi, fréttabréf Hólafélagsins og Virkjunarmat Rafveitu Sauðárkróks á Reykjafossi í Svartá í Skagafirði.
Bréf til sýslumanns, ritað í Syðri-Brekkum 1861 þar sem kvartað er yfir því að sumir bændur í Akrahreppi standi ekki við sínar skyldur varðandi göngur, fyrirstöðu og gagnaskil. -Samþykkt um öræfaleit á svæðinu milli Skjálfandafljóts að austan og Jökulsár eystri í Skagafirði að vestan. Ódagsett.
Skrá yfir nýupptekin mörk í Akrahreppi, haustið 1924 -Reikningur fyrir viðgerð á girðingu á Öxnadalsheiði og fleira, dagsett 24.10.1923. -Skrá yfir verðlag til skattaframtals 1941. -Athugasemdir Stefáns Jónssonar á Höskuldsstöðum við hreppsreikning Akrahrepps árið 1932. -Samþykkt um öræfaleit á svæðinu milli Skjálfandafljóts að austan og Jökulsár eystri í Skagafirði að vestan. Dagsett: 17.04.1923. Merkt sem afrit.
Drög að bréfi Stefáns Jónssonar á Höskuldsstöðum til sýslunefndar varðandi fjallskilastjóra. Dagsett 12.03.1929.
Reikningur yfir kostnað við fyrirstöðu á stóðhrossum á Silfrastaðaafrétt sumarið 1930. -Listi yfir niðurjöfnum tryppagjalds og gangnaskila haustið 1924. -Listi yfir framtalda sauðfjáreign í Akrahreppi eftir skattskýrslum í febrúar 1927. -Reikningur um sveitaútsvör í Akrahreppi fardaga árið 1876-77 (að öllum líkendum afrit Stefáns Jónssonar). -Útdráttur úr ærbókum á Höskuldsstöðum í Blönduhlíð 1905-1932 -Skýrsla um búnaðarástand í Akrahreppi í fardögum árið 1864 (að öllum líkendum afrit eða skrif Stefáns Jónssonar). og fleira ...
í þessu safni eru pappírsgögn, vélrituð, forprentuð og handskrifuð gögn á mismunandi gerð pappíra. Einnig er talsvert af prentuðum blöðum með merki og logo Bandalags íslenskra skáta (BIS). Misjafnt var hvort gögnin voru röðuð upp eftir ártali eða ekki, ákveðið var að raða þeim í ártalsröð til að koma einhverju skipulagi á það og til að auðvelda aðgengi að þeim. Mest er um fréttabréf og erindi frá BIS. Í safni B-J eru skýrslur og inntökubeiðnir skátafélagið og eru þetta persónugreinanleg gögn, þau voru sett efst til að hægt sé að taka þau frá þegar safn er fengið til lestrar. Hefti og bréfaklemmur voru hreinsaðar úr safninu, blöðin eru í mismunandi ástandi, sum rifin og gulnuð og á sumum er sýnilegir ryðblettir eftir hefti. Tvö umslög voru tekin úr safninu, búið var að klippa frímerkin úr, Inntökubeiðnir voru í plastmöppu, þau voru tekin úr möppunni og sett saman við aðrar samskonar skýrslur.
1) Samningur og dómur milli Stafns og Eyvindarstaða 1853 og bréf um tolla af Eyvindarstaðaheiði s.á. ásamt fundargjörð fundar, sem leiða skyldi deiluna til lykta. 2) "Æfiágrip Sigríðar Halldórsdóttur Vídalín, eftir J. Halldórsson ( þ.e. sr. Jón Halldórsson) á Húsabakka 1841; def. vantar 3) Bann hreppsstjóra Lýtingsstaðahrepps við heimsóknum að Skíðastöðum vegna veikinda þar, 1887. 4) Skýrsla um fjárfelli í Skagafjarðarsýslu veturinn 1886-1887. 5) Uppskrift á búi Guðmundar Bjarnasonar í Gilkoti, Lýtingsstaðahreppi 1889. vantar 6) Byggingarbréf fyrir Litladal 1890. 7) Uppskrift á dánarbúi sveitarómagans Kristínar Jónatansdóttur, Héraðsdal, 1891. vantar 8) Landamerkjaskrá fyrir Úlfsstaði. 9) Skrá um útsvör í Lýtingsstaðahreppi 1876-1888. vantar 10) Ýmis gögn bindindis- og lestrarfélagsins Neista, Lýtingsstaðahreppi, 1879-1899.
Í safninu er skjalaskrá Jóns Þorlákssonar og Ingibjargar Claessen Þorláksson sem afhent voru Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Göngukort í nágrenni við Hraunsvatn í Öxnadal límt við þakkarbréf frá Hrauni í Öxnadal ehf.
Prentuð blöð og skrifuð, kvittanabækur, ýmsar kvittanir, persónuleg bréf. Greinagerð atvinnumálanefnadar Hólahrepps um tjaldsvæði innan skógræktargirðingar á Hólum, Pétur Bjarnason 1985 og því fylgja önnur bréf. Handskrifuð mappa um hin ýmsu mál hreppsins. Bréfaskriftir um tillögu um rekstur á plóg sem sameign. Aðrar upplýsinga um plóg eru að finna í N00478 E -A. Búnaðarfélag Viðvíkurhrepps.
Handskrifuð og prentuð gögn er varða byggingu Grunnskóla Hólahrepps. Sendibréf, upplýsingar um nemendur sem sótt hafa skóla, sjálfboðavinna og önnur gögn í góðu ástandi.
Þórarinn Jónsson; Heiðbláa fjólan mín fríða og Ave María. Fjallið eina; Björn Franzon við kvæði Jóhannesar úr Kötlum. Miðnætti; Ljóð Steingríms Thorsteinson, lag Árna Thorsteinsson. Sofðu unga ástin mín; Sv.Sv. Kvöldklukkan; Árni Thorssteinsson, 2 eintök. Lokuð sund; Einar Kvaran, lag Jón Blöndal. Jeg vil elska mitt land; B. Þorsteinsson, 2 eintök. Bí bí og blaka; útsetning Markús Kristjánsson. Tunglið tunglið taktu mig; útsetning Markús Kristjánsson. La Gitana; S. Heiðar. Kong Sverre; af Grímur Thomsen. Pietro maseagni, Cavalleria rustieana; Maríubæn. Driknt to my only; texti sem heitir Fornt ástarljóð enskt. Byrjar svona; Helgum frá döggvum himnabrunns.... Gígjan; Sigfús Einarsson. Til skýsins; Jón Thoroddsen- Emil Thoroddsen. 28.10.1945 Nótnaskrift óþekkt, lag og texti óþekkt.
Ýmis kveðskapur, að mestu eftir Magnús. Einnig kvæði undirritað af Bjarna Gíslasyni og vísur undirritaðar af St. St, Stefáni Stefánssyni frá Móskógum á Bökkum, Skagafirði. Með er úrklippa úr blaði, minningagrein eftir Magnús í bundnu máli um Gísla Sigurðsson hreppstjóra á Víðivöllum, 1948. Sum kvæði Magnúsar birtust seinna í bókinni Ég kem norðan kjöl (1954).
V/ lagning hitaveitu í Seylu-; Staðar- og Skarðshrepp; bréf; fundagerðir; gjaldskrár; ársreikningar; efniskostnaður; lánsumsóknir; rekstrarreikningar; reglugerðir; skýrslur o.fl. Meðfylgjandi er gamalt brunabótamat bæja í hreppnum og ljósrit úr fundagerðabókum og samningur um lóðarleigu og hitavatnsréttindi í Varmahlíðarlandi 1957.
Samningur - Menningarsetur Skagfirðinga og sýslunefnd - yfirtaka Seyluhrepps á hitaveitu Varmahlíðar. Samningur - Hitaveita Seyluhrepps og Miðgarður - heitt vatn. Samningur - Hitaveita Seyluhrepps og Jóhann Gunnlaugsson Víðimýri - leiga á geymsluhúsnæði.
Ýmis gögn varðandi fjarskiptabúnað. M.a. leyfisbréf 1971, 1991-1994 og 2004, umsóknir, ábyrgðaskírteini, skráningarspjöld, bæklingar og handbækur. Einnig afsal fyrir bifreiðinni E-648 (1968). 1 ljósmynd.
Í safninu er félagatal Kvenfélags Sauðárkróks, skýrsla S.S.K. og nafnalisti formanna kvenfélaganna í Skagafirði. Þakkarbréf frá Öldrunarnefnd Skagafjarðar vegna greiðslna á fé sem Samband Skagfirskra Kvenna gaf til byggingar Hjúkurnar- og dvalarheimilisins á Sauðárkróki. Skýrsla vegna vinnuvöku, nafnalisti formanna kvenfélaga í Skagafirði og bréf til formanna. Erindi frá Friðarhópi Kvenna í Reykjavík og K.Í. Bréfasamskipti Guðrúnar L. Ásgeirsdóttur við Svend Hamborg vegna heimsóknar hans til Íslands.
Skjöl frá árinu 1981 í safninu eru skýrslur S.S.K., nafnalisti yfir formenn kenfélaga í Skagafirði. Formleg og óformleg erindi og bréf frá formanni S.S.K. til kvenfélaganna í Skagafirði. Í safninu eru aðallega bréfasamskipti er varða dvalarheimili aldraða í Skagafirði þar sem árið 1981 var alþjóðaár aldraðra. Fundardagskrá formannafundar S.S.K. ódags. og án ártals.
Ljósrituð, handskrifuð og forprentuð pappírsgögn, í safninu er skýrsla kvenfélags Sauðárkróks, erindi frá Sigríði Sigurðardóttur hjá Byggðasafni Skagafjarðar, lög K.Í., viðurkenning veitt K.Í. frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Erindi frá Kaupfélagi Skagfirðinga vegna "Byggðahóps Skagafjarðar". Þakkarbréf frá Grunnskólanum á Hofsósi og Alþýðulist. Einnig teikning, afmæliskort, boðskort, beiðni um styrk til útgáfu bókar um Skagfirska rósavettlinga ásamt kostnaðaráætlun. Allt safnið var mjög vel varðveitt.
Forprentuð og tölvuprentuð skjöl, í safninu eru þakkarbréf frá Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, Könnun á hlutverkum kvenfélaganna árið 1999, spurningalisti frá Byggðasafni Skagfirðinga og bæklingurinn Kvenfélög við aldahvörf,höf. Sigríður Sigurðardóttir. Bréf með niðurstöðu rannsóknar á stöðu og viðhorfum kvenna í dreifbýli á Norðurl. vestra.
Forprentuð og ljósrituð pappírsgögn, í safninu er veifa merkt Slysavarafélagi Íslands 7 ára, forprentað eyðublað fyrir ársskýrslur kvenfélaganna. Einnig formleg erindi og bréf frá stórn Sambands Borgfirskra Kvenna, K.Í, Landspítalanum, Sameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði. Ódagsett og án ártals lög Kvenfélagssambands Íslands. Einnig eru lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, minnisblað er varða Lífeyrisréttindi hjóna, og lög um orlof húsmæðra nr.53/1972.
Vélrituð, forprentuð, tölvuprentuð og ljósrituð pappírsgögn. Í safninu eru fundarboð vegna aðalfundar SSK, ársreikningur sambandsins og orlofssjóðs. Þakkarbréf frá ýmsum aðilum innan Skagafjarðar vegna gjafa frá SSK. Formlegt erindi frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Einnig fundarboð á stofnfund Beinverndar, einnig bæklingur í tengslum við það og lög félagsins. Bréf og erindi frá K.Í. meðal annars um framtíð kvenfélaganna í landinu.
Formleg erindi til SSK frá Sigrúnu Ingibjörgu Arnardóttur á Akureyri vegna styrks til að læra þjóðbúningasaum, Húsmæðraskólanum á Hallormsstað og samtökum austfirskra kvenna. Bæklingur frá Kvenasögusafni Íslands. Önnur formleg erindi eru frá K.Í. auk annara skjala.
Í safninu eru handskrifuð, vélrituð og tölvuprentuð og ljósrituð gögn. Meðal annars er ársskýrsla og fundargerð frá formannafundi SSK. Þakkarbréf frá Kvenfélagi Sauðárkróks, Sjúkrahúsi Skagfirðinga, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks og Grunnskólanum á Hólum. Önnur erindi, bréf og jólakort.
Í safninu er ársskýrsla Kvenfélags Staðarhrepps ásamt umsóknar S.S.K. um styrk til Stéttarsambands bænda og bæklingur vegna 80 ára afmælis Sambands Norðlenskra Kvenna og auglýsing um dagskrá opnunarhátíðarinnar Árs fjölskyldunnar.
Í safninu eru þrjú símskeyti og nokkur jólakort í tilefni af 50 ára afmælisárs S.S.K. Einnig póstkort stílað á Pálínu Skarphéðinsdóttur frá Sigríði Ingimarsdóttur. Bæklingur sem kallast Hugmyndaskrá Landbúnaðarins, lög Sambands Norðlenskra Kvenna og erindi frá K.Í. til formanna héraðssambandanna.
Tölvuútprentuð pappírsgögn með formlegum og óformlegum erindum. Í safninu eru greinagerð um að auka minjagripa- og nytjalisframleiðslu í Skagafirði og Húnavatnssýslunum, einnig eru gögn um reglur um smáverkefnasjóð landbúnaðarins og fundarræða sem tengist samstarfi Jafnréttisráðs og K.Í. sem er ódagsett og án ártals en var með þessum gögnum og þess vegna leyft að vera þar áfram það er það sama með bækling frá Stígamótum og fleiri gögn.
Í safninu eru vélrituð og tölvuútprentuð einnig ljósrituð pappírsgögn. Meðal annars er áskorun sem lögð var fram á formannafund S.S.K. um náttúrugripasafn sem er í Varmahlíðaskóla. Einnig er mikið af skjölum frá Kvenfélagsambandi Íslands, dagskrá formannafundar, skýrsla stjórnar, tillaga að nýju fræðsluriti og endurskoðaður ársreikningur fyrir árið 1989. Einnig er reglugerð og söguágrip fyrir Kvennaheimilið Hallveigarstaði og skýrsla framkvæmdarstjórnar