Í safni þessu eru fjölmörg sendibréf og meðylgjandi umslög er bárust til Sigurbjargar á þessu tímabili. Bréfin eru frá hinum ýmsu samferðamönnum Sigurbjargar, frá Akranesi, Siglufirði, Vífilstöðum, Máná, Wiad og Sauðárkróki. Þau eru öll vel læsileg og í góðu ástandi. Í safni þessu liggja líka 3 myndir er fylgdu bréfsefni og eru látnar halda sér hjá því sendibréfi vegna uppruna.
Sendibréf og umslög er bárust til Magnúsar, bróður Sigurbjargar, frá hinum ýmsu samferðamönnum Magnúsar frá ýmsum stöðum s.s Reykjavík, Siglufirði og Viborg. Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi.
Bókhaldsgögn Sigurbjargar um hennar samskipti við Kaupfélag Skagfirðinga og Sláturfélag Skagfirðinga. Gögnin eru vel læsileg. Efst í safninu er óopnað umslag frá Kaupfélagi Skagfirðinga merkt Stefánía M Pétursdóttir, Garði Hegranesi, það er látið halda sér þannig.
Þrjú handskrifuð pappírsgögn um barnabækur afhentar Varmahlíðarskóla samkvæmt ákvörðun stjórnar Lestrarfélagsins 25/2 1997 samþykkt af Sveitastjórn. Svo koma númerarunur um málið og síðan afhent 9. apríl 1997.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi, en blöðin lítillega gulnuð, trosnuð og blettótt. Bókin gefur upplýsingar um bókaeignir félagsins en engin dagsenting er gefin upp en miðað við uppruna félagsins og þetta er fyrsta bókaskráningabók þá er gert ráð fyrir að hún sé frá 1924. Hér koma fram upplysingar um höfund, nafn bókar, útgáfudagur og staður.
Handskrifuð stílabók í lélegu ástandi en kápan er rifin í tvennt án kjalar og laus frá bók og blaðsíður blettóttar en bókin er persóungreinanleg og vel læsileg
Bók harðspjalda og handskrifuð í nokkuð góðu ástandi en límmiði á kili. Í bókina eru skrifaðar 18 skýrslur. Aftast í bók stendur: Bók þessi er hefur 29 tölusettar skýrslur er hér með staðfest sem jarðabótamælinga - skýrslubók fyrir Búnaðarfélag Fellshrepps í Skagafjarðasýslu. Akureyri. 20.anúar 1920. Stimpill frá Ræktunarfélag Norðulands.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók með lögum og fyrstu bókhaldsreikningum búnaðarfélagsins. Bókin er í góðu ásigkomulagi með límborða á kili. Þetta er eina fundagerðabókin sem var í safninu.
Ein handskrifuð harðspjaldabók í góðu ástandi en blaðsíður blettóttar og nokkuð um ryðguð hefti við kjöl. Bókin fjallar um aðalfundi félagsins, tekjur og gjöld, allt vel læsilegt.
Magnús Sigurðsson á Storð: Landnám Skagafjarðar "Landnám Skagafjarðar. eftir Magnús Sigurðsson á Storð", Arborg, Manitoba, Kanada. - "Ritað í Júlí 1937".
Fylgiskjöl við rekstur Grunnskólans á Hólum. Gögnin eru sett saman eftir mánuðum og ártali og eru látin halda sér að mestu þannig, einhver hreinsun á sér stað á fjölprentuðu efni og bréfaklemmum, hefti ekki tekin. Gögnin eru í góðu ástandi.
Fundargerðabók er heilleg, harðspjalda A5 bók þar sem stofnun félagsins er skráð ásamt lögum félagsins, meðlimum og aðrir fundir. Blöð um fundargerð nokkuð heilleg.
"Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki hóf útgáfu handskrifaðs blaðs er nefndist Árgeislinn árið 1907. Blaðið varð þegar í upphafi vettvangur deilna milli félagsmanna þar sem tókust á sjónarmið íhaldsstefnu og frjálslyndis á ýmsum sviðum. Einkum voru átökin um bindindisheit félagsmanna og um hvort félagið ætti að hafa kristileg gildi í hávegum. Helstu baráttumenn hvors hóps voru annars vegar Jón Þ. Björnsson og Brynleifur Tobíasson kennari, sem fulltrúar kristinna gilda og bindindis, og hins vegar Jón Pálmi Jónsson ljósmyndari og Árni Daníelsson kaupmaður."
Byrjað var að stunda körfuknattleik á Sauðárkróki árið 1963. Sérstök Körfuknattleiksdeild var stofnuð 14.desember 1969. Körfuknattleikur er fyrst tekinn upp á Sauðárkróki 1963 þegar Helgi Rafn Traustason fluttist hingað. Hann hafði áður leikið með KFR. Fyrir hendi var þá íþróttarsalur Barnaskólans. Fékk Helgi því til leiðar að komið að gólfið var merkt fyrir körfuknattleik og körfum komið fyrir. Bogi Þorsteinsson gaf fyrstu tvo boltana og byrjaði þá nokkur hópur ungra drengja æfingar á vegum UMF Tindastóls og hefur körfuknattleikur verið iðkaður að staðaldri síðan.
Handskrifaðar innbundnar og óinnbundnar bækur, vel læsilegar og í ágætu ásigkomulagi. Bækurnar innihalda fundareglur, einnig lög og reglur U.M.F.T. og lagabreytingar sem gerðar voru á fundum til ársins 1959.
4 innbundnar og handskrifaðar bækur með fundargerðum knattspyrnudeildar Tindastóls frá árunum 1963-1990. Bækurnar hafa allar varðveist ágætlega og eru í góðu ásigkomulagi. Einnig eru handskrifuð pappírsgögn, rúðustrikuð A4 og A5 blöð með fundagerðum deildarinnar frá árunum 1990-1991 sem höfðu verið stungið inn í eina fundagerðabókina en ákveðið var að flokka blöðin eftir ártali og dagsetningum til að hægt sé að hafa betra aðgengi að þeim.
Harðspjalda handskrifuð bókaskrá félagsins í góðu ástandi. Hér hefur verið ritað að nýju allar þær bækur frá upphafi félagsins, Skráð er höfundar, þýðandi, staður og ár. Blaðsíður eru tölusettar og ritað er í 173 blaðsíður af 192.
Ýmis konar pappírsgögn lestrarfélagsins, flokkuð hér eins og þau voru afhent, eftir ártölum umslaga sem þau lágu í og uppruninn látinn halda sér. Gögnin eru hreinsuð af heftum, bréfaklemmum og umslögum sem þau lágu í. Í gögnum eru m. a. kvittanir, reikningar, skrár og skýrslur í ártalaröð.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Fyrsta stofnfundarbók með lögum félagsins og aðalfundum. Handskrifuð lög félagsins á pappír og lítil viktabók
Bókhaldsgögn félagsins, reikningar og kvittanir og skrár. Gögnin eru í misgóðu ástandi en voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, þau eru látin helda sér í ártalaröð.
Harðspjalda, handskrifuð Gjörðabók í nokkuð góðu ástandi en kjölur nokkuð laus. Bókin er frá 7. mai. 1927 er er merkt eins ohg hún sé no 2 í röðinni og byrjar á skuldbindingar endurnýjun, " Vér undirritaðir stofnendur sparisjóðs Hólahrepps tökumst á hendur einn fyrir alla og allir fyrir einn, eitt þúsund króna ábyrgð sem tryggingu fyrir því að sjóðurinn standi í skilum". 12 fundarmenn skrifa undir, dagsett 6. maí.1928. Lög fyrir Sparisjóð Hólahrepps voru samþykkt á aðalfundi 26. mars. 1918. Þar segir í 2.gr. Frá fyrsta degi janúarmánaðar 1915 er stofnaður Sparisjóður í Hólahreppi í Skagafjarðarsýslu.
Færslubók. Fundargerðabók Búnaðarfélagsins. Fylgigögn. Skrár yfir hrúta 1992 - 1993. Markaskrá. Lítil harðaspjalda bók um Landsmót hesta á Hólum 1966. Rit um landbúnað í framför. Þrjár félagsgjaldabækur 1992 - 2002 Bækur í misjöfnu ástandi en hreinsaðar og kápur heillegar og gögn vel læsileg. Pappírsgögn í misjöfnu ástandi handskrifuð og prentuð og einstaka ritað á pappa.