Uppboðsskrá ásamt upplýsingum um kaupendur og uppboðsverð. Nafngreindur kaupendur koma úr Seylu- og Staðarhreppi. Af nöfnunum má marka að uppboðið hafi átt sér stað á tímabilinu 1857-1875. Mögulega er þetta uppboðið á dánarbúi Guðmundar Þorvaldssonar (sjá uppboðsskilmála í sama safni).
"Skilmálar. Eptir hverjum seldir verða í Auðnum nokkrir fjemunir tilheyrandi að nokkruleiti danarbúi Guðmundar sál. Þorvaldssonar, en að nokkru fátækraeigum hjer í hrepp". Undir plaggið ritar Jón Stefánsson "innheimtumaður" en skjalið er ritað í Holtsmúla, 19. október 1875.
Kaupsamningur Upprekstrarfélags Staðarfjalla á Reynistaðarafrétt árið 1898. Bréfið er líklega eftirrit af upprunalega kaupsamningnum en samningurinn er dagsettur 28.03.1898 á Hafsteinsstöðum. Í samningnum segir "Afréttarfélagið er: allur Staðarhreppur, allir Rípurhreppur að undanteknu Eyhildarholti, af Seyluhreppi Langholtið fram að Litlu-Seylu að henni meðtaldri, Geldingarholt, holtskot, Fjall, Vatnskarð og Elvogar innan sama hrepps, af Sauðárhreppi allir bæir í Borgarsveit." Einnig fylgir frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir.
Askjan inniheldur fjórar innbundnar og handskrifaðar fundargerðarbækur, sú elsta er frá 1905, innihald þeirra eru fundargerðir, reikningshald, lög og félagatal. Bækurnar hafa allar varðveist mjög vel og eru í góðu ástandi.
Innbundin og handskrifuð bók sem hefur varðveist mjög vel og er mjög heilleg.í bókinni auk fundargerða, eru reikningar félagsins og skýrsla um þátttöku félagsmanna í keppnum.
Tvær fundargerðarbækur, innbundnar og handskrifaðar og hafa varðveist mjög vel, sú elsta er síðan 1908. Tölvuútprentað söguágrip í þremur heftum í A4 stærð, gert 2008.
Bréfritari er Guðmundur Erlendsson oddviti Bólstaðarhlíðarhrepps, ritað í Mjóadal 28. ágúst 1910. Bréf til Alberts Kristjánssonar, Páfastöðum, oddvita í Staðarhreppi. Í bréfi kemur meðal annars fram að greiddar séu 32.50 kr til Staðarhrepps vegna barns. Ritað um dilk-byggingarkostnað
Athugasemdirnar eru ritaðar á pappírsörk í folio broti, fjórar skrifaðar síður, undirritaðar af Ólafi Briem. Svör eru rituð aftan við, undirrituð afAlbert Kristjánssyni. Tillögur þar aftan við, undirritaðar af nefndarmönnum.
Reikningurinn er ritaður á pappírsörk í folio stærð. Með liggur seðill sem á eru ritaðar athugasemdir vegna reikningsins. Hvort tveggja er undirritað af Jóni Sigurðssyni á Reynistað. Skjölin eru nokkuð skemmd af myglu.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi, en blöðin lítillega gulnuð, trosnuð og blettótt. Bókin gefur upplýsingar um bókaeignir félagsins en engin dagsenting er gefin upp en miðað við uppruna félagsins og þetta er fyrsta bókaskráningabók þá er gert ráð fyrir að hún sé frá 1924. Hér koma fram upplysingar um höfund, nafn bókar, útgáfudagur og staður.
Skjalasafn Jóns Sigurðssonar frá Reynistað. Safnið innheldur bæði hans eigin einkaskjöl og einnig nokkur opinber skjöl frá tíð hans sem hreppstjóri í Staðarhreppi í Skagafjarðarsýslu.
Skjöl sem urðu til tíð Jóns Sigurðssonar á Reynistað sem hreppstjóra í Staðarhreppi. Aðallega skjöl sem tengjast fasteignamati og virðingum ásamt nokkrum blöðum um búfénað í hreppnum.
Undanþága sem veitt er Mjólkurflutningafélagi Staðarhrepps, Skagafirði. Undanþága frá sérleyfisskyldu til aksturs með bifreið sem er vörubifreið, er flytur að staðaldri framleiðsluvörur bænda og má taka allt að 6 farþega. Undanþága gildir frá 3. maí 1939 til 1. mars 1940 og nær til farþegaflutnings á leiðinni: Sauðárkrókur - Halldórsstaðir.
Innbundin og handskrifuð bók sem hefur varðveist vel og er í góðu ástandi. Líklega hefur bókin blotnað en blekið er heillegt og skiljanlegt. Fyrstu blaðsíðurnar eru orðnar nokkuð snjáðar og aðeins farnar að losna frá bindingunni. Í bókinni eru lög og reglur ungmennafélagsins, einnig eru undirskriftir 70 félagsmanna. Auk fundargerða eru líka ferðasögur.
Fjórar innbundnar bækur í ýmsum stærðum sem innihalda bókhaldsskráningu fyrir félagið. Einnig önnur bókhaldsgögn, kvittanir, útfyllt eyðublöð og fundarboð.
Ein harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi, los á blaðsíðum og blaðasíður lausar. Aftari kápa er laus frá kili en bókin hangir saman að framan. Þetta er ekki stofnfundarbók og kemur ekki fram stofnun félagsins.
Innbundin bók með línustrikuðum blaðsíðum með handskrifuðum fundargerðum. Bókin er læsileg og varðveist sæmilega. Bókakjölurinn og kápan hafa verið límd sama með límbandi. Límborði er á kjöl bókarinnar og bindingin er orðin léleg.
Innbundin bók með bókhaldsfærslum. Færslurnar eru handskrifaðar og vel læsilegar. Bókin er vel varðveitt, kjölurinn er aðeins laus í sér en hann er heill. Kjölurinn er límdur aðallega til að merkja bókina.
Innbundin og handskrifuð bók, í bókinni eru endurbætt lög og reglur félagsins dags. 13.3.1960. Listi yfir heiðursfélaga og félagatal. Bókin er í góðu ásigkomulagi en blaðabindingin er aðeins farin að losna frá.
Þunn stílabók með bókhaldsfærslum, bundin með tveimur heftum. Færslurnar eru handskrifaðar og vel læsilegar. Kjölur bókarinnar er límdur með rauðu límbandi (örugglega upprunalegt) sem er farið að losna frá neðst. Ath. opnan í miðjunni hefur losnað frá heftunum.
Innbundin og handskrifaðar fundargerðir. Í bóknni eru þrjú laus blöð, handskrifuð með fundargerð sem er dagsett 16.04.1990. Á fyrstu tveimur síðum bókarinnar er samningur sem Ungmennafélagið Æskan og Ungmennafélagið Fram gera með sér um eignarhlut í félagsheimilisbyggingunni í Varmahlíð, dags.14.4.1967.
Forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum upplýsingum um hrútadóma, skrár yfir ásett hrútlömb, yfirlitsskýrslur yfir fjölda áa ofl. Talsvert af skýrslunum voru í tvíriti eða ljósrituð, afrit voru fjarlægð úr safninu - þar sem því var við komið en annað fékk að vera áfram. Öll gögnin eru vel læsileg og vel með farin.
Þykk innbundin bók í A4 stærð með bókhaldsfærslum. Færslurnar eru handskrifaðar og vel læsilegar. Bókin er vel varðveitt, kjölurinn er heill en hann er límdur aðallega til að merkja bókina.
Í færslubók dags, 1987-1989 voru eftirfarandi gögn: óútfyllt eyðublöð og formlegt bréf frá Ríkisendurskoðun vegna minningarsjóð Jóhanns Ellertssonar, dags.20.01.1991. Útfyllt afrit af efnahagsreikningi vegna minningarsjóðs Jóhanns Ellertssonar, dags. 20.3.1989. Færslukvittanir frá Búnaðarbanka Íslands frá árinu 1990, Ljósrit af bókhaldsfærslum frá ÍSÍ og UMFÍ til Ungmennafélags Æskunnar fyrir árið 1990, Tvö afrit af rekstrarreikningi vegna 1989-1990. Þrjú fundarboð frá UMSS og eitt kjörbréf á ársþing, dagsett 2.3.1990, 6.4.1990 og 5.2.1991.Tvö blöð með nafnalistum, líklega vegna kosninga í stjórn, blöðin eru ódagsett.
Úr Staðarrétt. F. v. Gísli Jónsson (frá Miðhúsum m bláa húfu) - Þórarinn Guðvarðarson (með sólgleraugu og Friðrik Guðmundsson (í dökkri vatt úlpu lengst t.h.)
Pistill og söguágrip unnin upp úr fundargerðum í tilefnis 100 ára afmælis Kvenfélags Staðarhrepps. Fluttur á aðalfundi Sambands Skagfirskra Kvenna (SSK), dags. 27.04.2008.