Einkaskjöl og opinber skjöl.
Arngrímur Sigurðsson (1890-1968)Skjalasafn Bjarna Sigurðssonar frá Glæsibæ
Bjarni Sigurðsson (1875-1965)*8 forprentaðar og handskrifaðar jarðbótaskýrslur búnaðarfélags Staðarhrepps. Skýrslurnar voru á meðal gagna frá Sjúkrasamlagi Staðarhrepps og voru aðskildar úr því safni.
Búnaðarfélag StaðarhreppsGögn er varða Félagsheimilið Melsgil, Staðarhreppi frá 1961-2000. Ekki er vitað hver skjalamyndari var. Í safninu er afsöl og lóðarleigusamningur frá óðalsbændum á Reynistað um lóðina undir félagsheimilið. Einnig eru skuldabréf og veðbandslausnir fyrir umrædda lóð. Ýmis skjöl, bréf, teikningar og erindi er varða rekstur og eignarhluta í félagsheimilinu auk fylgigögnum bókhalds og skoðanakönnun á meðal hreppsbúa um viðbyggingu við húsið.
Félagsheimilið MelsgilÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Staðarhrepps. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti og voru afritin tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð og hélst það skipulag nánast óbreytt.
Fjárræktarfélag StaðarhreppsLítið safn sem inniheldur leyfisbréf frá Menntamálaráðuneytinu, skýrslur, reglugerðir og skólakladdar.
Hróðmar Margeirsson (1925-2012)Skjalasafn úr dánarbúi Guðlaugar Arngrímsdóttur. Inniheldur m.a ljósmyndir, bréf, jólakort, skeyti, afmæliskort, minningarkort, myndbandsspólur, skjöl tengd félagsmálum, námsgögn, skjöl tengd Litlu-Gröf, landakort, bækur, vottorð, ljóð
Guðlaug Arngrímsdóttir (1929-2017)Magnús, Sveinn Þórarinn, Þorbergur og Guðrún Jónsbörn frá Hóli í Sæmundarhlíð. Sendibréfasafn.
Magnús Jónsson Fjalli (1851-1942)Gögn, opinber og einkagögn, úr fórum Jóns Jónssonar (1850-1939) á Hafsteinsstöðum og föður hans Jóns Jónssonar (1820-1904) á Hóli í Sæmundarhlíð. Um er að ræða bréf, reikninga, leiðbeiningar, skjöl, erindi og tilkynningar.
Jón Jónsson (1820-1904)Skjalasafn Jóns Sigurðssonar frá Reynistað. Safnið innheldur bæði hans eigin einkaskjöl og einnig nokkur opinber skjöl frá tíð hans sem hreppstjóri í Staðarhreppi í Skagafjarðarsýslu.
Jón Sigurðsson (1888-1972)Tvær fundargerðarbækur, innbundnar og handskrifaðar og hafa varðveist mjög ágætlega, sú elsta er síðan 1908. Tölvuútprentað söguágrip í A4 stærð, gert 2008.
Kvenfélag Staðarhrepps (1908-)Skjalasafn sem samanstendur af fundargerðum, ályktunum, bréfum og erindum, kynningarefni ofl. Hluti af skjölunum voru flokkuð og varðveitt í plastvösum.
Sameiningarnefnd sveitarfélaga í Skagafirði (1996-1998)Fundagerðabók sáttanefndar Reynistaðar- og Stóru-Seylu sáttaumdæmis frá 1903-1936. Í nefndinni hafa yfirleitt setið prestur og hreppstjóri af svæðinu.
Sáttanefnd Reynistaðar- og Stóru-Seylu - sáttaumdæmisBréfasafn þeirra hjóna ásamt ýmsum einkaskjölum.
Sigurður Jónsson (1848-1921)Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók skógræktarfélagsins, lög félagsins og vinnuskýrslur.
Skógræktarfélag StaðarhreppsStaðarhreppur
Um er að ræða nokkrar afhendingar sem hafa verið skráðar í eitt safn og samanstendur af fundagerða-, bréfa- og reikningabókum. Einnig sveitabækur, virðingabækur, búnaðarskýrslur, uppskrifta- og uppboðsbækur. Skattskýrslur, tryggingabækur og fylgiskjöl bókhalds. Fundagerðir hrepps-, skóla- og búnaðarnefnda svo einhver dæmi séu nefnd. Í safninu eru skjöl er varða lagningu hitaveitu, áveitufélag, félagsheimilið Melsgil og aðkoma hreppsins að gæsluvelli fyrir börn, grunnskólanum í Varmahlíð auk kaup- og afsalssamningum á jörðum. Elstu gögn sem fundust í safninu er bréfabók Staðarhrepps frá 1797.
Um er að ræða nokkrar afhendingar sem búið var að skrá að hluta til, en talsvert af gögnum sem voru enn óskráð. Byrjað á að fara yfir allt safnið og það flokkað eins og kostur var og grisjað úr því allt lauslegt plast. Tvítökur, gögn sem voru í safninu í fleiri en einu eintaki var grisjað úr, þar á meðal voru ársreikningar (1981, 1983, 1989, 1990 og 1994 - sundurliðun ársreiknings 1995).
Ljósrit af tímaritsgreinum sem eru aðgengilegar á vefnum (Reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra), fundagerðum og "hreppspóstinum" sem til voru í fleiri en einu eintaki var grisjað úr.
Mikið var af pappír og umslögum sem notað var til sundurgreina gögn sem var grisjað úr safninu. Plastvasar, millispjöld bæði úr plasti og pappír og þunnar plastmöppur voru grisjaðar úr. Ryðguð hefti og allar bréfaklemmur voru fjarlægðar.
Elstu skjölin voru sett hvert og eitt í sýrufríar arkir til frekari varðveislu. Mikið af elstu bókunum sem eru mjög viðkvæmar fyrir allri meðhöndlun voru myndaðar til að varðveita þær betur og auðvelda aðgengi að þeim.
Ljósrit af blaðagreinum var grisjað úr þar sem þær eru aðgengilegar á vefnum. Lög og reglugerðir frá Alþingi, dreifibréf, tvítekningar, útfyllingaform vegna kosninga (að undanskyldu 1 eintaki var haldið eftir sem sýnishorn), öll umslög grisjuð úr. Röðun innan flokka er í tímaröð en sumstaðar eru eyður þar sem gögn hafa glatast m.a. í bókhaldinu.
Staðarhreppur (1700-1998)Ein hreppsbók frá árunum 1836-1870. Innbundin og nokkuð heilleg, en skítug af sót.
Staðarhreppur (1700-1998)Safnið inniheldur sjö innbundnar og handskrifaðar bækur, sú elsta er frá 1905 Einnig eru lausagögn sem tengjast reikningsskil félagsins og boðun á ársþing U.M.S.S. ásamt kjörbréfi og kosningu innan ungmennafélagsins.
Gögnin hafa öll varðveist mjög vel og eru í góðu ásigkomulagi.
Funda- og reikningabók fjallskilanefndar Staðarhrepps. Einnig fundagerðir fjallskilastjóra í Skagafirði og A-Húnavatnssýslu (Engihlíðar- og Bólstaðarhlíðarhrepps).
Upprekstrarfélag StaðarafréttarKaupsamningur Upprekstrarfélags Staðarfjalla á Reynistaðarafrétt árið 1898. Bréfið er líklega eftirrit af upprunalega kaupsamningnum en samningurinn er dagsettur 28.03.1898 á Hafsteinsstöðum.
Í samningnum segir "Afréttarfélagið er: allur Staðarhreppur, allir Rípurhreppur að undanteknu Eyhildarholti, af Seyluhreppi Langholtið fram að Litlu-Seylu að henni meðtaldri, Geldingarholt, holtskot, Fjall, Vatnskarð og Elvogar innan sama hrepps, af Sauðárhreppi allir bæir í Borgarsveit."
Einnig fylgir frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir.