Bréfið er vélritað á bréfsefni Varmahlíðarskóla. Það er undirritað af framkævmdanefnd og oddvitum Akrahrepps og Seyluhrepps. Bréfið er ein vélrituð bls og með liggur afrit af vinnusamningi, afrit af bréfi til Menntamálaráðuneytis og útdráttur úr fundargerðum bygginarnefndar. Öll eru þessi skjöl frá árinu 1979.
Fundagerðin er rituð á pappírsörk í folio broti. Á fundinum voru lögð drög að stofnun félagsins og stofnuð þriggja manna nefnd. Með liggja drög að bréfi til formanns héraðsfundar í Skagafjarðarsýslu.
Listinn er handskrifaður á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Listinn nær yfir nemendur Barnaskóla Akrahrepps og Varmahlíðarskóla í skólaakstri skólaárið 1976-1977.
Skrifstofa Fræðslumálastjóra sendir Jóni Þ. Björnssonar bréf, dagsettu 21. nóvember 1934, og kallar eftir upplýsingum (reikninga) varðandi seinni hluta árs 1931.
Stutt saga sem Gunnlaugur hefur skrifað um tófuna og snigilinn. Sagan né stílabókin er dagsett og því óljóst hvenær hún er skrifuð, en mjög líklega tilheyrir þetta grunnskólagöngu Gunnlaugs.
Vélritað hefti í A5 broti, alls 16 síður. Með liggur annað hefti sem virðist að flestu eins, nema hvað höfundar er þar getið. Ástand skjalanna er gott.
Skólablað, 10 fjölrituð blöð í A4 stærð, alls 18 síður auk forsíðu. Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Hjörleif Kristinsson á Gilsbakka og pistill úr skólastarfinu. Ástand skjalsins er gott.
Bréf í A4 stærð sem inniheldur ályktum um byggingu héraðsskóla. Bréfið er stílað á formenn skólanefndar í Skagafirði og stuðlað fulltrúum stjórnar Varmahlíðar.
Skjalið er handskrifað með blýanti á eina örk í stærðinni 33,7x21 cm. Blaðið virðist rifið úr bók og er nokkuð af brotum og rifum í því. Fundargerðin er undirrituð en hefur ef til vill verið hreinrituð síðar. Um frumrit er að ræða.
Laus blöð sem heftuð hafa verið saman og stílabókarkápu brugðið utan um. Fundargerðir fundarhalda hjá nemendum í Ungmennaskóla Sauðárkróks 1936-1944. Ástand skjalanna er gott.
Bókin er heftuð saman og límt yfir kjölinn. Stærð hennar er 17,4 x 11,7 cm. Á titilsíðu er handskrifað "Uppdráttardæmi." Í bókinni eru skrifuð reikningsdæmi. Með liggur ljósritað blað með upplýsingum um ættir Egils ásamt minnismiða frá starfsmanni sem veitti bókinni viðtöku.
Blöðungur í A5 broti, alls 16 bls. Um er að ræða sérprentun úr Lög og reglur um skóla- og menningarmál á Íslandi." Búið er að skrifa ýmsar athugasemdir í blöðunginn.
Skýrslan er 14 fjölritaðar bls. í A4 stærð, auk forsíðu og baksíðu. Ársskýrsla ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu á vegum fræðsluskrifstofanna á Norðurlandi.
Skólablaðið 3. árgangur 1. tölublað. 2 eintök. 1 blað er ein örk. Myndskreytingu blaðsins sá Jóhannes Geir Jónsson um þá 11 ára. Þeir sem skrifa í blaðið eru: Guðlaug Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Þóra Jónsdóttir, Hulda Ívarsdóttir, Áslaug Sigfúsdóttir.
Greinargerðin er rituð á pappírsörk í foliostærð, alls tvær skrifaðar síður. Höfundur gerir greið fyrir mikilvægi unglingafræðslu sem hluta af alþýðufræðslu.
Bréfið er afrit af bréfi sem sent er til þingmanna Norðurlands vestra og aðila innan Menntamálaráðuneytisins. Með liggur greinargerð um Skólaheimilið. Hvort tveggja ljósrit í A4 stærð.
Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Magnúsi Gíslasyni á Vöglum. Aftan á það eru ritaðar með blýanti tölulegar upplýsingar um búfénað.
Svörin eru handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Farið hefur verið yfir verkefnið og gefin einkunn fyrir það. Þau varða verkefni bréfaskólans, 1. kennslubréf. Ástand er gott.
Bréf Vigfúsar Friðrikssonar ljósmyndara, dagsett 11. maí 1938, til Jóns Þ. Björnssonar, varðandi ljósmyndun skólabarna (unglingaskólans) við skólann á Sauðárkróki og skólaspjald. Guðmundur Trjámannsson hefur tekið ljósmyndina en hefur þá líklega starfað fyrir ljósmyndastofuna "Jón og Vigfús" á þessum tíma. Vigfús er að biðja Jón Þ. Björnsson um upplýsingar varðandi nemendur og kennara.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður. Með liggur reikningur fyrir fæði Guðmundar Jónssonar farkennara í Rípurhreppi veturinn 1920-1921.
Grein send Degi á Akureyri þar sem Guðjón fjallar ítarlega um Sauðárkrók, bæjarstjórnina, kirkjuna, íbúana, heilbrigðismál, skólamál, verslun, félags- og skemmtanalíf og atvinnumál.
Barnafræðsluskýrslur árin 1920-1966. Ritið er 81 bls auk kápu og er heftað og kjallímt, A4 stærð. Það er gefið út af Hagstofu Íslands og er hluti af hagskýrslum, aukaflokki nr 1.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru guðrún Hulda Pálmadóttir (t.v.) og Kristín S. Björnsdóttir (t.h.). Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v. Björg Línberg Runólfsdóttir, Guðrún Hulda Pálmadóttir, Sigurlaug Einarsdóttir, Kristín S. Björnsdóttir og Steinar Sörensson. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Reikningurinn er ritaður á pappírsörk í folio stærð. Með liggur seðill sem á eru ritaðar athugasemdir vegna reikningsins. Hvort tveggja er undirritað af Jóni Sigurðssyni á Reynistað. Skjölin eru nokkuð skemmd af myglu.
Bæklingur í stærðinni 19 x 11, 6 cm. Skólaminni. Sungið á Blönduósi 12. maí 1902 á 25 ára hátíð kvennaskólans. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Fjórbrotinn bæklingur. Skjalið er nokkuð skemmt af óhreindingum og sliti.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru Björg Línberg Runólfsdóttir (t.v.) og Guðrún Hulda Pálmadóttir (t.h.). Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Skýrsla í stærðinni 23,5 x 14, 5 cm. Skýrsla um Gagnfræðaskólann á Akureyri skólaárið 1922-1923. Akureyri. Prentsmiðja Odds Björnssonar 1923. Ritið er 68 bls, auk kápu og titilblaðs. Ástand þess er nokkuð gott.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni er Guðni Sigurður Óskarsson, þáverandi skólastjóri á Hofsósi. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Kenslubók í esperantó : bygð á Th. Cart: L'Esperanto en dix leçons : ásamt orðasafni með íslenskum þýðingum / eftir Þorstein Þorsteinsson. Reykjavík : Bókaverslun Guðm. Gamalíelssonar, 1909. viii, 104 bls. ; 20 sm.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v.: Steinar Sörensson, Þórunn Snorradóttir, Kristín S. Björnsdóttiro g Guðrún Hulda Pálmadóttir. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.