women's association

Taxonomy

Code

Scope note(s)

    Source note(s)

      Display note(s)

        Hierarchical terms

        women's association

          Equivalent terms

          women's association

            Associated terms

            women's association

              12 Authority record results for women's association

              12 results directly related Exclude narrower terms
              S03772 · Person · 1940-

              Guðrún L. Ásgeirsdóttir var fædd 14.11.1940, maki hennar var sr. Ágúst Sigurðsson (1938-2010), hann þjónaði við Mælifellsprestakall í Skagafirði frá 1972-1983. Guðrún var formaður Kvenfélags Lýtingsstaðahrepps um árabil og gengdi meðal annars formennsku í Sambandi Skagfirskra kvenna frá 1980-1984.

              S03733 · Organization · 1895 - 1953

              Árið 1895. 25. ágúst var fundur haldinn á Sauðárkrók samkvæmt fundaraboði frá nokkrum konum þar er komið höfðu sér saman um að stofna félag meðal skagfirska kvenna. Á fundinn mættu 15 konur. Fundinn setti Margrét Guðmundsdóttir og skýrði tilgang hans og var hún síðan kosin til að stýra fundinum. Lagði hún fram frumvarp til laga í 13 greinum, sem var samþykkt eftir nokkra umræðu. Tilgangur félagsins segir í 2. gr laga þess, hann er að styðja að því að réttindi og menning kvenna aukist, einnig vill það styrkja allt það sem að þess áliti horfir til samra framfara. Félagið lætur halda fyrirlestur um það efni er því þykir best henta þá er það getur því viðkomið. Stjórn var kosin og Margét Guðmundsdóttir forseti, Ólöf Hallgímsdóttir gjaldkeri, Líney Sigurjónsdóttir skrifari. Á fundinum var ákveðið að kaupa gjörðabók til fundarhalds, næsti fundur var haldin 1. des. 1895 í barnaskólanum á Sauðárkróki. Allar bækurnar sem eru hér í þessu safni segja þá miklu sögu til líkna og mannúðarmála sem þessar konur skópu og gáfu af sér til samfélagsins. Í síðustu bókinn 1942 kemur fram að félagskonur eru nú 42 og á síðasta skráða fund í þessu safni er skráður 3. feb. 1953, og e haldinn á efri hæð bakarísins þar mættu 28 konur og þar var meðal annars kosning fulltrúa í stjórn h/f félagsheimilisins Bifröst, kosin Jórunn Hannesdóttir og til vara Sigríður Auðuns og tveggja fulltrúa til að sitja aðalfundi þess, kosnar Sigríður Auðuns og Jóhanna Þorsteinsdóttir. Ýmislegt annað koma fram á þessum fundi en eftir fundinn skemmtu konur sér með sameiginlegri kaffidrykkju, söng og hljóðfæraslætti. Að því loknu var sest við spil og spilað til miðnættis. Hver framvinda félagsins er eftir þetta kemur ekki fram í þessum gögnum. (Heimild: fundagerðabækur félagsins).

              S04613 · Person · 6. 02.1934-05.04.2018.

              Ingibjörg Sigurðardóttir (Ebba) fæddist á Geirmundarstöðum í Sæmundarhlíð. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki Foreldrar hennar voru Anna Sveinsdóttir (1904-1977) og Sigurður Konráðsson (1902-1986), búendur á Varmalandi í Sæmundarhlíð frá 1935. Systkini Ingibjargar eru: Sveinn og Sigurbjörg.
              Hinn 3. nóvember 1959 giftist Ingibjörg Þorsteini E. Ásgrímssyni, f. 23.9. 1936 á Ási í Vatnsdal, d. 8.5. 1999. Foreldrar Þorsteins voru Ólöf Kristbjörg Sigurbjörnsdóttir (1910-1946) og Ásgrímur Kristinsson (1911-1988), búendur á Ásbrekku í Vatnsdal.
              Ingibjörg og Þorsteinn hófu búskap í félagi við foreldra hennar árið 1958 og bjuggu á Varmalandi til vorsins 1998, er þau fluttust á Sauðárkrók. Börn þeirra eru: Ásgrímur Guðni, f. 8.3. 1958 og Ólöf, f. 8.4. 1959.
              Ingibjörg var bóndi á Varmalandi megnið af sinni starfsævi, en fyrstu tíu árin meðfram búskap stundaði hún kennslu, fyrst í Vatnsdal síðar Lýtingsstaðahreppi og að lokum í Skefilsstaðahreppi. Hún helgaði sig svo að fullu bústörfum eftir það. Ingibjörg var virk í Kvenfélagi Staðarhrepps og sóknarnefnd Reynistaðarkirkju. Eftir að hafa brugðið búi 1998 starfaði Ingibjörg í fimm ár á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki.

              Kvenfélag Akrahrepps (1919-
              S03653 · Association · 1919 - 1996

              Hinn 20 des. 1919 var á Víðivöllum haldin stofnfundur í Kvenfélagi Akrahrepps. Fyrstu verkefni sem konurnar í Kvenfélagi Akrahrepps beittu sér fyrir aðkallandi.
              Fyrsta stjórn félagsins skipuðu, Ingibjörg Jóhannsdóttir Uppsölum (formaður), Kristín Sigtryggsdóttir Framnesi (ritari) og Lilja Sigurðardóttir Víðivöllum (gjaldkeri).

              Tilgangur félagsins var meðal annars að efla framtakssemi, menningu og réttindi kvenna. Félagið vill styðja heimilisiðnað heimamenningu, garðrækt og blómarækt. Það vill gleðja aðra, einkum börn.
              Á stofnfundinum var ákveðið að kaupa bæði spuna- og prjónavél.
              Kvenfélagskonurnar voru stórhuga og vildu létta líf hreppsbúa. Þær vildu fegra mannlífið og gæða það gleði. Þær vildu efla heimilisiðnaðinn og héldu til þess námskeið og fegruðu umhverfið með jurta- og trjárækt. Á þeirri öld sem er liðinn frá stofnun Kvenfélags Akrahrepps hafa þjóðhættir breyst verulega sem og almennur hagur fólks. Lagst hefur af að fátæk heimili séu styrkt af kvenfélagskonum.

              Kvenfélag Akrahrepps hefur styrkt líknar- og menningarstarf innan hrepps sem og utan. Kvenfélagið hefur í þrígang gefið út bækur, öll skiptin á afmælisári þess. Í tilefni 85 ára afmæli félagsins árið 2004 birtist bókin Burknar: afmælisrit Kvenfélags Akrahrepps sem inniheldur frumsamið eftir kvenfélagskonurnar. Fimm árum síðar kom út matreiðslubókin Næring og nautnir: uppskriftir, frásagnir og fróðleikur frá konum í Kvenfélagi Akrahrepps. Á 100 ára afmæli Kvenfélags Akrahrepps 2019 var gefin út bókin Blómarósir í Blönduhlíð: saga Kvenfélags Akrahrepps í máli og myndum.

              S03720 · Association · 19.11.1950-

              Kvenfélag Hólahrepps var stofnað í kjölfar fundar sem Rannveig Líndal hélt á vegum Sambands Norðlenskra kvenna (S.N.K) á Hólum þann 19. september 1950, sex konur úr hreppnum mættu á þann fund og stofnuðu í kjölfarið Kvenfélag Hólahrepps. Þær sem mættu á fundinn hjá Rannveigu voru Helga Helgadóttir, Elísabet Júlíusdóttir, Konkordía Rósmundsdóttir, Hólmfríður Jónsdóttir, Una Árnadóttir og Svava Antonsdóttir. Þrjár konur sem ekki gátu mætt á fundinn skráðu sig engu að síður í félagið, það voru Anna Jónsdóttir, Svanhildur Steinsdóttir og Guðrún Gunnlaugsdóttir.
              Bráðabirgðastjórn var kosin, það voru Una Árnadóttir formaður, Svava Antonsdóttir gjaldkeri og Konkordía Rósmundsdóttir ritari.
              Fyrsti aðalfundur Kvenfélags Hólahrepps var haldinn að Kálfsstöðum 12. nóvember 1950 og voru lög félagsins samþykkt og kosin ný stjórn, kosnar voru; Una Árnadóttir formaður, Día Rósmundsdóttir gjaldkeri og Svava Antonsdóttir ritari.
              Samkvæmt lögum féalgsins er tilgangur þess að efla samvinnu og félagslund meðal kvenna á félagssvæðinu og styðja að hvers konar mannúðar og menningarstarfsemi.

              S03667 · Organization · 1932 -

              Kvenfélag Seyluhrepps var stofnað á fundi sem haldinn var í Geldingarholti sunnudaginn 22. maí. 1932. Á fundinn höfðu nokkrar konur í Seyluhreppi mælt sér mót að þvi tilefni af stofna kvenfélag, á fundinn mættu 12 konur. Félagið fékk nafnið Kvenfélag Seyluhrepps

              Í stjórn félagsins voru kosnar Sigurlaug Sigurðardóttir Fjalli, formaður. Guðrún Guðmundsdóttir Reykjarhóli, gjaldkeri og Ingibjörg Jóhannsdóttir Löngumýri, ritari. Á dagskrá fundarins voru lesin upp og samþykkt fyrstu lög félagsins.
              Tilgangur félagsins var að efla framtaksemi, menningu og réttindi kvenna. Það vill styðja heimilisiðnað og heima menningu, garðrækt, blómarækt og gleðja aðra sérstaklega börn.

              S03656 · Association · 21.06.1908

              Kvenfélag Staðarhrepps var stofnað 21. júní 1908 af húsfrú Sigríði Jónsdóttur á Reynistað. Eins og segir í fundargerðinni „Aðalverkefni þessa fundar var að stofna kvenfélag hér í Staðarhreppi“, og var fundurinn haldinn á Reynistað og voru 22 konur úr hreppnum stofnfélagar. Um 1928 lagðist félagið í dvala og 8. júní 1951 hóf Kvenfélag Staðarhrepps aftur starfsemi sína og voru þá fyrstu lög félagsins samþykkt.
              Tilgangur Kvenfélags Staðarhrepps var að „aðstoða hreppsbúum sem örðugt hafa átt uppdráttar“ með bæði fatnað og mat. Félagið hélt barnaskemmtanir, safnaði fé fyrir nýju sjúkarhúsi á Sauðárkróki, félagið kom að byggingu félagsheimilisins Melgsil bæði með fjármagni og vinnu og konurnar lögðu til fjármagn í Reynistaðarkirkju og hugsuðu um kirkjugarðinn. Kvenfélagið,ásamt Ungmennafélaginu Æskunni og Hreppsfélagi Staðarhrepps kom að byggingu Félagsheimilisins Melsgils , eins og það var kallað í fundargerðabók (23.11.1960).
              Kvenfélagskonurnar héldu hannyrðanámskeið, voru með saumafundi, fjáraflanir, veitingasölu í réttum og héldu skemmtanir og dansleiki í félagsheimilinu Melsgili svo eitthvað sé nefnt. Félagið er enn starfandi árið 2023.

              S03697 · Organization · 1941-

              Fimmtudaginn 2. janúar 1941 var fundur haldinn að Hlíðarhúsi Óslandshlíðarhreppi í þeim ákveðna tilgangi að stofna kvenfélag. Á fundinn mættu 11 konur og var félaginu gefið nafnið Ósk. Sigurbjörg Halldórsdóttir var kosin fyrsti formaður félagsins, Nanna Ingjaldsdóttir gjaldkeri og Guðrún Jónsdóttir ritari.

              Fyrsti aðalfundur Kvenfélagsins Ósk var svo haldinn 19. janúar 1941, sömu konur voru kosnar í stjórn. Aðalviðfangsefni fyrstu funda félagins var að leigja spunavél, en svo var ákveðið að félagið keypti eigin spunavél. Ári síðar keypti kvenfélagið spunavél sem Stefán Jónsson frá Núpi við Djúpavog smíðaði sérstaklega fyrir þær.

              Konur í Kvenfélaginu Ósk voru duglegar að leggja sitt til samfélagsins þó að félagið væri ekki fjölmennt. Á fyrstu starfsárum félagsins gáfu þær fé til sjúkrastofu á Hofsósi og barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þær héldu meðal annars saumanámskeið og fóru í skemmtiferð, lögðu til fé til orgelkaupa fyrir barnaskólann, þær keyptu fermingarkyrtla og sáu sjálfar um þvott og viðhald á þeim og keyptu 2 fána og fánastengur fyrir Viðvíkurkirkju. Kvenfélagið Ósk gekk í Samband Skagfirskra kvenna (SSK) árið 1953.
              Síðasta fundagerð kvenfélagsins er skráð 22. janúar 1994, ekki er kunnugt hver framvinda félagsins verður eftir það, talið er að dregið hafi verulega úr starfsemi þess en ekki víst hvort það var lagt alveg niður.

              Kvennasmiðjan (1990-1991)
              S09612 · Association · 1990-1991

              Kvennasmiðjan var stofnuð 19. júní 1990, á stofnfundinn mættu 120 konur og þar af skráðu 86 konur sig sem stofnfélaga. Í aðalstjórn Kvennasmiðjunnar voru kosnar 5 konur; Sigríður J. Friðjónsdóttir formaður, Sigríður A. Pálmadóttir gjaldkeri og Herdís Sæmundsdóttir gjaldkeri. Markmið félagsins var að skapa aðstöðu fyrir konur til að vinna að sínum hugðarefnum í samvinnu við aðrar konur í þeim tilgangi m.a. að auka samheldni og sjálftraust kvenna og stuðla þannig að virkri þátttöku þeirra á hinum ýmsum sviðum samfélagsins.

              S03771 · Person · 18.12.1944 -

              Pálína er fædd að Skuggabjörgum í Deildardal í Skagafirði en ólst upp á Gili (í Borgarsveit) Skarðshreppi. Hún giftist Jens Berg Guðmundssyni 4.12.1944, þau hófu búskap árið 1966 á Sauðárkróki en keyptu jörðina Gil í Skarðshreppi af foreldrum Pálínar, þeim Þórleifu Elísabetu Stefánsdóttur (1918-2016) og Skarphéðni Pálssyni (1906-1978). Pálína kom að ýmsum félagsstörfum og var meðal annars í Kvenfélagi Skarðshrepps og formaður Sambands Skagfirskra kvenna um árabil.

              S00318 · Organization · 1943 -

              Samband Skagfiskra kvenna S.S.K. var stofnað 9. aprí. 1943 á Hótel Tindastóli á Sauðárkróki í því skyni að stofna samband fyrir kvenfélög í Skagafjarðarsýslu. Rannveig Hansdóttir Líndal hafði framgöngu fyrir stofnun sambandsins og boðaði til fundarins eftir að hún hafði kynnt sér að konur víðsvegar í héraðinu höfðu mikinn áhuga fyrir að þetta næði fyrir fram að ganga. Rannveig hafði einnig séð svo um að nokkur félaganna sendu fulltrúa á fund þennan eða sendu skriflegar beiðnir um upptöku í sambandið ef það yrði stofnað og voru sex kvenfélög sem komu að stofnun sambandsins.
              Tilgangur sambandsins var meðal annars að efla samvinnu, samúð og félagsanda meðal kvenna á félagssvæðinu. Tilgangi sínum vildi sambandið ná með því að halda fundi þar sem fulltrúar hinna eintöku félaga á félagssvæðinu séu mættir einu sinni til tvisvar á ári og einnig með því að styðja við stofnun kvenfélaga í þeim sveitum þar sem enginn kvenfélög eru og með því að vinna að áhugamálum kvenna.
              Á stofnfundinum talaði Rannveig um tilgang hins væntanlega sambands, hún lagði áherslu á að félögin öll myndu hafa bæði hagsmuni og ánægju af þessum samtökum ef þau myndu takast og sagðist vita að konur sem voru búnar að fá reynslu í þessum efnum voru þessu mjög fylgjandi. Til að létta undir byrjunarörðugleika sambandsins ákvað hún að gefa því sparisjóðsbók með innistæðu, alls kr.100.- sem fyrstu eign S.S.K. Rannveig gerði uppkast að lögum S.S.K., voru þau samþykkt einróma á fundinum og eru þau fyrstu lög félagsins. Fyrsta stjórn S.S.K var kosin Rannveig Líndal formaður, Stefanía Arnórsdóttir gjaldkeri og Jórunn Hannesdóttir ritari.
              Fyrsti aðalfundur Sambands Skagfirskra kvenna var haldinn í Bifröst 14. júní 1943, það sama ár gerðist Samband Skagfirskra kvenna aðili að Sambandi Norðlenskra kvenna. Konur innan S.S.K. létu sig varða allt mannlegt og mörg þörf mál vor rædd, sem dæmi íslenski búningurinn, línrækt á Íslandi, raforkumál, garðrækt, matreiðsla, orlof, sjúkramál, bindindismál, mál aldraðra og uppeldismál svo einhver dæmi séu nefnd.

              Sigrún Aadnegard (1944-)
              S01229 · Person · 26.06.1944

              Sigrún Aadnegard húsfreyja á Bergsstöðum í Skagafirði fæddist 26. júní 1944. Hún giftist Andrési Viðar Ágústssyni 29.12.1968 og bjuggu þau á Bergsstöðum frá 1975. Foreldrar Sigrúnar voru Ole Aadnegard, fyrrv. lögregluþjónn og verkamaður (1910-1981) og (Ragnheiður) María Ragnarsdóttir, verkakona (1921-2009).
              Sigrún stóð að stofnun Kvenfélagsins Framfarar í Skarðhreppi og var fyrsti formaður þess, hún var um tíma formaður Sambands skagfirskra kvenna og forstöðumaður Félagsheimilisins Ljósheima. au hjónin sinntu veðurathugunum á Bergsstöðum í um 40 ár.

              Maður hennar er: Andrés Viðar Ágústsson (1942-).