Print preview Close

Showing 1192 results

Archival descriptions
Series
Print preview Hierarchy View:

2 results with digital objects Show results with digital objects

Útmælingar Ólafs Briem

Lóðaútmælingar og gjöld þeim tengdar úr landi Sauðár.

Lóðin er seld í erfafestu gegn árgjaldi, sem ákveðið er 25 aurar fyrir hverja 40 fermetra, að upphæð 1 kr. 25 aura. Lóðargjaldið rennur í landsjóð og greiðist í peningum til umboðsmanns Reynisstaðar og klausturjarða fyrir 31. desember á hvert, fyrsta sinn árið 1915.

Ólafur Briem (1852-1930)

Útlánsbók

Handskrifuð stílabók um útlán bóka. Bókin er í góðu ástandi en ódagsett.
Aftast í bók kemur fram listi yfir bókagjöf Jóhanns og Maríu á Ljósalandi . Útgáfudagur bóka kemur þar fram og er sett hér fram sem dagsetning.

Lestrarfélag Goðdalasóknar

Útlánabók II

Stílabók með görmum á kili, mynd af kisu á bókakápu. Bókin er handskrifuð línustrikuð í góðu ástandi. Útektir eru skráðar á bæjarheiti, ártal og bókaheiti.

Lestrarfélag Hólahrepps

Útlánabók I

Stílabók með límmiða á kili. Bókin er handskrifuð línustrikuð í nokkuð góðu ástandi en aðeins byrjað ryð í heftumog fremsta blaðsíða laus.

Lestrarfélag Hólahrepps

Útlánabók

Stílabók handskrifuð með upplýsingum um útlán til heimila og þau nefnd, ásamt dagsetningum. Bókin er í góðu lagi, en hún er skráning um síðustu ár félagsins og ekki mikið skráð í bók.

Útlánabók

Stílabók handskrifuð með upplýsingum um útlán til heimila og þau nefnd, ásamt dagsetningum. Bókin er í góðu lagi.

Útfararræður og minningargreinar 1918-1977

Afrit af hinum fjölmörgu handskrifuðu og prentuðu minningagreinum, greínum og ræðum af samferðamönnum og konum Gísla og hann ritaði minningar um. Gögnin eru í misgóðu ástandi en öll þokkalega vel læsileg, Gögnin eru flokkuð eftir ártalaröð eins og þau koma fram í safni og eftir meðfylgjandi skrá sem liggur í safni. Þau eru sett saman eftir áratugum og haldið er eins mikið í uppruna og hægt er, en hreinsun á sér stað á heftum og bréfaklemmum. Elstu gögnin eru handskrifuð. og meðfylgjandi umslög fylgja. En prentuðu gögnin eru oft á tíðum prentuð aftan á öllur gögn í eigu Gísla, nýttur pappír.

Gísli Magnússon (1893-1981)

Umsóknir og útborganir 1970-1996

Í safni sem var D1 eru innbundnar bækur og pappírsgögn, sum í tvíriti, önnur eru afrit af skjölum. Gögnin tengjast úthlutunum á atvinnuleysisbótum, úr sjúkarsjóði einnig örorku og ellilífeyri. Um er að ræða persónugreinanleg gögn og trúnðaðarmál. Safnið er vel varðveitt.

Verkakvennafélagið Aldan (1930-2001)

Trúnaðargögn

Askja 1/2, A. Handskrifuð viðskiptablöð sem eru laus og með hafa verið losuð frá bók. Gögnin eru persónugreinanleg trúnaðargögn og reynt var að láta þau halda sér í uppruna, en sett nokkurn vegin í ártalaröð. Gögnin í þokkalegu standi.
Askja 2/2, B- C- D. Gögn um stofnfjáreigendur og ábyrgðarðilla. Gögn um óverðtrygð skuldabréf, persónugreinanleg. Handskrifuð yfirlit yfir sparisjóðsbækur og reikninga 1988 - 1999. Frumrit skuldabréfa persónugreinanleg með innborgunum handskrifuðum á baksíðu skuldabréfa 1992 - 1997. Víxileyðublöð útfyllt og persónugreinanleg, þar sem óskað er eftir að Sparisjóður kaupi víxil 1981 - 2000.
Tvær stílabækur um verðtryggða sparireikninga persónugreinanlegir 1998 - 1999. Ein mappa álagningaskrá og stílabók um afsagðir vixlar frá 1946 - 1971. Bókin er handskrifuð og í góðu ásigkomulegi en persónugreinanleg.

Sparisjóður Hólahrepps

Tímarit

Glóðafeykir er félagstíðindarit Kaupfélags Skagfiðinga. Ritið var fyrst gefið út árið 1957 og bar fyrstu árin nafnið Félagstíðindi Samvinnufélaganna í Skagafirði.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Teikningar og stenslar

Hér eru stenslar og teikningar sem koma líklega úr fórum Kristjáns Þórs Kristjánssonar Hansen, syni hjónanna Maríu og Kristjáns.
Þessir stenslar hafa verið notaðir við endurgerð kirkna, líklega á Sauðárkróki og Hólum í Hjaltadal, en Kristján Þór starfaði sem málari.

Teikningar fyrir skipulag trjáræktar 1990

Skjölin voru upprúlluð þegar farið var að vinna við að flokka og greina safnið. Í safninu voru nokkur eintök af sama eintakinu, það var grisjað og eitt eintak af hvoru var haldið eftir og reynt að laga til og sett í örk.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Sveitarblaðið Árgeisli

"Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki hóf útgáfu handskrifaðs blaðs er nefndist Árgeislinn árið 1907. Blaðið varð þegar í upphafi vettvangur deilna milli félagsmanna þar sem tókust á sjónarmið íhaldsstefnu og frjálslyndis á ýmsum sviðum. Einkum voru átökin um bindindisheit félagsmanna og um hvort félagið ætti að hafa kristileg gildi í hávegum. Helstu baráttumenn hvors hóps voru annars vegar Jón Þ. Björnsson og Brynleifur Tobíasson kennari, sem fulltrúar kristinna gilda og bindindis, og hins vegar Jón Pálmi Jónsson ljósmyndari og Árni Daníelsson kaupmaður."

Sveitablöð

"Hjarandi" III-IV. ár 1897-1898. Sveitarblað, trúlega haldið úti af Gísla Halldórssyni á Hjaltastöðum og ritað af honum.

Gísli Halldórsson (1854-1899)

Results 86 to 170 of 1192