Gögn Sigurðar Jónassonar sem móðir hans Steinunn hafði safnað saman og haldið til haga eftir að Sigurður flutti að heiman. Í safninu eru bréf, námsgögn, bókhaldsgögn og minnisblöð.
Fjórar innbundnar bækur í ýmsum stærðum sem innihalda bókhaldsskráningu fyrir félagið. Einnig önnur bókhaldsgögn, kvittanir, útfyllt eyðublöð og fundarboð.
Harðspjalda handskrifuð Gjörðabók segir frá stofnfundi félagsins og þeirri starfsemi er var í félaginu. Í bókina er lítið skrifað og hún er í góðu ásigkomulagi.
Pappírsgögn er varða félagsstarf Lestrafélagsins, gögnin í misjöfnu ástandi sum rifin en gögnin voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum. Reiknisgögn og erindi ásamt tveim litlum viðskiptabókum frá Sparisjóð Sauðárkróks.
Prentuð og handskrifuð gögn um sauðfé, yfirlitskýrslur, skrár um ásett hrútslömb og einkunn hrúta, einnig persónugreinanleg gögn og.fl. Sett hér í arkir eins og gögn koma frá möppu eftir ártali og látin halda sér að öðru leiti í uppruna.
Vélrituð Bréf frá Fræðslumálastjóra vegna styrkja, handskrifað sendibréf frá Kvennfélagi Óslandshlíðar og handskrifað sendibréf til Bókafulltrúa. Öll gögn nokkuð heilleg en gulnuð og ýmist vélrituð eða handskrifuð.
Hinir ýmsu reikningar um tekjur og gjöld Lestrarfélag Óslandshlíðar, lagðir fram eftir ártölum frá 1920-1955. Gögnin nokkuð heilleg en blöð gulnuð og þvæld, og í hinum ýmsum stærðum og gerðum.
Í safni þessu eru fjölmörg sendibréf og meðylgjandi umslög er bárust til Sigurbjargar á þessu tímabili. Bréfin eru frá hinum ýmsu samferðamönnum Sigurbjargar, frá Akranesi, Siglufirði, Vífilstöðum, Máná, Wiad og Sauðárkróki. Þau eru öll vel læsileg og í góðu ástandi. Í safni þessu liggja líka 3 myndir er fylgdu bréfsefni og eru látnar halda sér hjá því sendibréfi vegna uppruna.
Sendibréf og umslög er bárust til Magnúsar, bróður Sigurbjargar, frá hinum ýmsu samferðamönnum Magnúsar frá ýmsum stöðum s.s Reykjavík, Siglufirði og Viborg. Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi.
Bókhaldsgögn Sigurbjargar um hennar samskipti við Kaupfélag Skagfirðinga og Sláturfélag Skagfirðinga. Gögnin eru vel læsileg. Efst í safninu er óopnað umslag frá Kaupfélagi Skagfirðinga merkt Stefánía M Pétursdóttir, Garði Hegranesi, það er látið halda sér þannig.