Gögn Sigurðar Jónassonar sem móðir hans Steinunn hafði safnað saman og haldið til haga eftir að Sigurður flutti að heiman. Í safninu eru bréf, námsgögn, bókhaldsgögn og minnisblöð.
Fjórar innbundnar bækur í ýmsum stærðum sem innihalda bókhaldsskráningu fyrir félagið. Einnig önnur bókhaldsgögn, kvittanir, útfyllt eyðublöð og fundarboð.
Harðspjalda handskrifuð Gjörðabók segir frá stofnfundi félagsins og þeirri starfsemi er var í félaginu. Í bókina er lítið skrifað og hún er í góðu ásigkomulagi.
Pappírsgögn er varða félagsstarf Lestrafélagsins, gögnin í misjöfnu ástandi sum rifin en gögnin voru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum. Reiknisgögn og erindi ásamt tveim litlum viðskiptabókum frá Sparisjóð Sauðárkróks.
Prentuð og handskrifuð gögn um sauðfé, yfirlitskýrslur, skrár um ásett hrútslömb og einkunn hrúta, einnig persónugreinanleg gögn og.fl. Sett hér í arkir eins og gögn koma frá möppu eftir ártali og látin halda sér að öðru leiti í uppruna.
Vélrituð Bréf frá Fræðslumálastjóra vegna styrkja, handskrifað sendibréf frá Kvennfélagi Óslandshlíðar og handskrifað sendibréf til Bókafulltrúa. Öll gögn nokkuð heilleg en gulnuð og ýmist vélrituð eða handskrifuð.
Hinir ýmsu reikningar um tekjur og gjöld Lestrarfélag Óslandshlíðar, lagðir fram eftir ártölum frá 1920-1955. Gögnin nokkuð heilleg en blöð gulnuð og þvæld, og í hinum ýmsum stærðum og gerðum.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. í bók liggur kvittun fyrir afhendingu bókar til skjalasafns. Bókin er handskrifuð af Jóni Gíslasyni Guðmann, bónda á Skarði við Akureyri og afhendist hér með Héraðsskjalasafni Skagfirðinga 16. sept. 1993. Undirritun Ísak Guðmann. Bókin er uppskrift Jóns G Guðmanns á blaðinu "Mas og þras" frá árinu 1916 - 1917, II. árgangur, tölublöð 1 -11. Vantar allan fyrsta árgang.
Harðspjalda handskrifuð fundargjörðabók í góðu ástandi. Hún virðist vera nýlega skrifuð ( gæti verið Árni Bjarnasson sem skrifar ) upp úr gögnum gjörðabóka en í upphafi bókar sem hefur titil Úrdráttur úr fundargjörðum búnaðarfélags Akrahrepps og störf þess til 1892. eru skrifaðar upplýsingar er koma fram í eldri gögnum safnsins. Lítur út eins og verið sé að hreinskrifa upplýsingar.
Harðspjalda handskrifuð bók í nokkuð góðu ástand en eitthvað ryð inn við kjöl og blettóttar blaðsíður. Bókin segir frá fundagerðum og efnahag félagsins.
Pappírsgögn um fyrstu ár félagsins handskrifuð lög og fundagerðir. Gögnin látin halda sér eins og þau komu í safnið en reynt að rétta úr blöðum og hreinsa af ljósritum, heftum og bréfaklemmum.
Gögnin innihalda þá starfsemi er var í kringum dráttavél félagsins, traktors vinnustundir, viðgerðir og reikningar. Listi yfir kaupendur Freyr, erindi og bréf o.fr. Gögnin eru í misgóðu ástandi bæði ryðblettir og blöð trosnuð og annað heillegt en gögnin eru vel læsileg.
Í safninu eru bækur bæði stílabækur og innbundnar bækur, þær eru allar með línu- eða rúðustrikuðum blaðsíðum. Bækurnar eru ýmsum stærðum og gerðum. Í bækurnar eru skráðar fundagerðir, ársskýrslur, félagaskrá einnig ferðasögur skátaflokkanna. Bækurnar eru allar vel varðveittar og læsilegar og er lítið skrifað í þær flestar. Pappírsgögn sem voru í fundagerðabók (A-E) voru tekin úr bókinni og sett í sér örk (A-G). Í gögnum A-F og A-G eru persónugreinanleg gögn, arkirnar voru settar efst í öskjuna til að hægt sé að taka þau úr safninu. Í einni fundagerðabók, í örk A-F fannst mygla, bókin var hreinsuð (ryksuguð og burstuð eins og kostur var) og er hún að öðru leyti í góðu ásigkomulagi.