Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Veðramóti, 25.03.1905. Í ritnefnd voru: Jón Þ. Björnsson, Sigurður Á. Björnsson, Haraldur Björnsson.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Veðramóti, 04.11.1905. Í ritnefnd voru: Björg Björnsdóttir, Sigurður Björnsson, Björn Jónsson.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd) 1903-1904. Þetta tiltekna blað var gefið út á Ingveldarstöðum,16.12.1905. Í ritnefnd voru: Kristinn B. Erlendsson og Guðmundur Jónsson.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Ingveldarstöðum, 06.01.1906. Í ritnefnd voru: Kristinn Erlendsson, Einar Gíslason, Guðmundur Jónsson.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Ingveldarstöðum, 27.01.1906. Í ritnefnd voru: Björn Guðmundsson, B. Sölvason, Sigurður Lárusson.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Ingveldarstöðum, 24.02.1906. Í ritnefnd voru: Benedikt Sölvason, Sigurður Lárusson, Björn Guðmundsson.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Hólakoti, 10.03.1906. Ekki kemur fram hver var í ritnefnd.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Hólakoti, 31.03.1906. Ekki kemur fram hver var í ritnefnd.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Steini, 03.12.1906. Sigurður Á. Björnsson, Sigurjón Jónasson, Einar Gíslason.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Hólakoti, 29.12.1906. Ritnefnd: Sigurður Á. Björnsson, Sigurjón Jónasson, Einar Gíslason.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.
Fundagjörðabók málfundafélagsins / ungmennafélagsins Vonar í Stíflu 1918-1931. Harðspjalda bók, búið að líma á kjölin. Bókin er blettótt og með lausa blaðsíðu en læsilegum texta. Bókin er í viðkvæmu ástandi.
Gjörðabók Ungmennafélags Vaka í Viðvíkurhreppi byrjar á stofnfundi mánudaginn 10. mars 1930, til að ræða um stofnun ungmennafélags í Viðvíkurhreppi. Lesin voru uppköst af lögum og borin undir atkvæði og samþykkt í heild. í bókinni eru síðan lögin rituð ásamt fundargerðum.
Fundagjörðabækur Málfundarfélagsins og Ungmennafélagsins Vonar í Stíflu 1918-1945. Harðspjalda bók, búið að líma á kjölin. Bókin er blettótt en læsilegur texti.
Fundagjörðabók ungmennafélagsins Vonar 1939-1945 ásamt lögum og félagatali ungmennfélags Holtshrepps 1949-1958. Síðasta fundagjörð U.m.f.V. er frá 15.4.1945 en ekki kemur þar fram að félagið sé formlega lagt niður. Erfitt hefur þó verið að halda félagsskapnum gangandi því í fundargjörð frá 29.3.1945 kemur fram að félagsmenn ræddu hvort leggja ætti félagið niður, ekki síst þar sem "... svo fáir félagsmenn eru á félagssvæðinu og út lit fyrir að þeim muni fækka en þá meira af völdum Fljótarvyrkjunar, þar sem félagssvæðið Stíflan legðist að mestu undir vatn." Harðspjalda bók, búið að líma á kjölin. Bókin er í góðu ástandi.
Harðspjalda handskrifuð bók í viðkvæmu ástandi og með laus blöð. Kjölur er með límbandsborða og heldur bók saman. Bókin byrjar á framhald fundagerðar 1913. Tvö handskrifuð blöð frá aðalfundi 1908 26. jan til vor 1914. Þar sem gerð er grein fyrir hvenær fundir eru haldnir og hverjir ganga í og úr félaginu. í lok bréfs segir þá er ekki hægt að rekja útdrátt úr gjörðum fél lengra því findargjörðir eru ekki fyrir hendi um störf 14.09.1914 - 16.01.1929
Innbundin og handskrifuð fundargerðarbók, tímabilið 1912-1922. Þetta er stofnfundabók Sngmennafélags Tindastóls og í henni eru fyrstu lög þess. Nokkrar blaðsíður hafa verið klipptar eða skornar úr, ein blaðsíða er laus í bókinni. Binding bókarinnar er orðin mjög léleg.
Innbundin og handskrifuð bók og vel læsileg. Bindingin farin að gefa sig annars er bókin í góðu ásigkomulagi. Kjölurinn og kápan eru heilleg, límt er yfir kápuna.
Innbundin handskrifuð bók og vel læsileg. Bókin eru í góðu ásigkomulagi, nokkur blöð hafa verið klippt eða skorin úr. Tvö laus blöð eru í bókinni, eitt handskrifað bréf, dags 14.11.1937 um úrsögn úr U.M.F.T. Bréfið er undirritað af Jófinnu Maríusdóttur. Eitt vélritað bréf frá Sambandsstjórn U.M.F.Í. dags. 5. mars.1940 vegna skuldar ungmennafélagsins við U.M.F.Í.
Innbundin og handskrifuð og vel læsileg bók, fundagerðirnar eru frá stofnun Ungmannafélags Tindastóls. Blaðsíður eru heillegar en bókin hefur varðveist illa, bókin er án kjalar og bindingin er einnig illa farin. Nokkuð af blöðunum inni í bókinni eru laus úr bindingunni.
Stofnfundarbók, lög, félagatal og reglugjörð Ungmennafélagsins Hegra. Svört stílabók handskrifuð með kjöl lítillega rifin en blettótt og aðeins losaraleg aftast en vel læsileg.
Harðspjaldabók með ryðblettum á nokkrum stöðum inn við kjöl, blekklessum og blöð farin að losna, bók í þokkalegu ástandi og kjölur með límbandsborða, inn í bók eru 12 laus handskrifuð blö sem eru sett hjá bók. Þar er sendibréf Akureyri 13 oktober 1947, Minn kæri Sigurjón. Þar kemur fram að sunnudaginn 20 okt 1907 var stofnað Ungmennaféla Seyluhreppur.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17x20,5 cm. Bókin er 376 númeraðar síður, þar af 6 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni og bandið á innsiglinu hefur einnig losnað.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17,5x21 cm. Bókin er 221 númeraðar síður, þar af 3 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni að hluta. Bókin er innsigluð.
Talið er að Gísli Halldórsson er bjó um tíma á Hjaltastöðum hafi ritað þetta sveitablað rétt fyrir aldamót. Ýmis efni, t.d. kveðskapur, þýddar sögur og pistlar og söguþættir. Hér hefur þriðji og fjórði árgangur varðveist.
Talið er að Gísli Halldórsson er bjó um tíma á Hjaltastöðum hafi ritað þetta sveitablað rétt fyrir aldamót. Ýmis efni, t.d. kveðskapur, þýddar sögur og pistlar og söguþættir. Hér hefur þriðji og fjórði árgangur varðveist.