63 umslög, sem ekki tókst að para saman við bréf. Flest öll stíluð á Sigurð Sigurðsson. Á sum þeirra er búið að rita dagsetningar eða aðrar athugasemdir.
Umslög stíluð á Lestrarfélag Skefilsstaðahrepps (Hvammssóknar). Sum voru utan um bréf en önnur utan um bókhaldsgögn. Frímerki eru á flestum umslaganna.
Umslag merkt "On His Majesty's Service". Á umslagið er handskrifað: "Leigusamningur við Breta". Leigusamningurinn sjálfur er í safni E00004: Stúkan Gleym mér ei á Sauðárkróki
Umslag utan af bréfi til Þórarins Jónssonar frá Karlottu Jóhannsdóttur vegna umsóknar hennar um kennslustöðu við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Bréfið er stimplað í Kaupmannahöfn - Danmörku 4. ágúst 1937 og er með tveimur dönskum frímerkjum.
Pappírsumslag. Á umslagið er vélritað nafn og heimilsfang Hrefnu Hermannsdóttur. Á umslagið er handskrifað með blýanti og penna kostnaður við dúnhreinsun og sendingu. Búið er að klippa frímerki af umslaginu og gata það.
Umsagnir frá skóla Margrete Petersen í Odense en þar nam Karlotta nám við handavinnu, skermasaum og leðurvinnu. Umsagnirnar skrifa Margrete Petersen og Karen Petersen 01.04.1937. Þær gefa Karlottu sín bestu meðmæli. Bréfið er stimplað sem staðfest afrit af Sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn þann 27.07.1937.
Vélriðuð gögn frá U.M.F.Í og bæklingar þess efnis að gefa upplýsinga til ungmennafélaga um hugleiðngar um málefni ásamt eyðublöðum um árskýslur og dómaraspjöld og litlar bækur um leiðbeingar með starfsíþróttum s.s Traktorsakstur, Línstrok og Hestadómar.Gögn eru misjöfn nokkur blöð hafa blotnað og rifnað.
Ýmis bréfasamskipta gögn frá félagastarfi U.M.F.H og eyðublöð og auglýsingar. Gögnin eru í ýmsu ástandi, rifin blöð, gulnuð og blettótt ( vökvi og ryð) en læsileg.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar þátttöku í Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Neðst er nafnalist og er bréfinu ætlað að berast frá Ketu að Hrauni. Ástand skjalsins er gott.
Fjölritað dreifibréf í A4 stærð. Bréf frá Menntamálaráðuneytinu til skóla er varðar rekstrarreikning skóla 1974 og hlutdeild ríkis í rekstrarreikningi 1974.
Pappírsörk sem rifnað hefur af stærri örk. Öðru megin á hana er ritað "gömul hreppabréf og skýrslur." en hinum megin m.a. "tíundatyftar, fátækrareikningar." Skjalið hefur líklega tilheyrt einhvers konar forsíðu eða titilsíðu.
Umboð til P. Johannsson og H. Torfason til að gera kaupsamninga varðandi Nord Rollnes. Undirritað 26.7.1973 af Birni Þorgrímssyni, Þorsteini Hjálmarssyni og Birni Björnssyni.
"Jeg undirritaður fel hérmeð herra hreppstjóra Jóni Jónssyni á Hafsteinsstöðum í hendur, að meta fyrir mína hönd í uppboðinu að Hóli í Svartárdal laugardaginn þ. 3. marz n.k., til þess að gæta þar hagsmuna minna sem og að ákveða söluskilmála. Skal allt sem tilnefndur herra hreppstjóri Jón Jónsson gjörir fyrir mína hönd á léðu uppboði jafngilt vera og ég gjörði það sjálfur." Þetta er ritað Sauðárkróki 1. mars árið 1900. Vottar eru Ólafur Jónsson og Magnús Benediktsson. Undir plaggið ritar Popp sem hlýtur þá að vera Christian Popp kaupmaður í Skagafirði.
Bréf frá Lárusi Arnórssyni sóknarpresti varðandi skuld við Kaupfélag Skagfirðinga sem hann gefur Gunnari Valdimarssyni umboð til að semja um greiðslu fyrir sína hönd. Ritað í Miklabæ þann 4. júlí 1958.
„Þó verst við höfund þessarar bókar …“ þessi tilvitnun gefur til kynna að um sé að ræða brot úr einhverri bók eftir Sölva. Mögulega þeirri sem svo oft er nefnd sjö miljóna arka bókin. „Það er þó merkilegt, það þori að skamma Sölva ... fyrst það heldur að hann sé sjálfur djöfullinn.“ Hann talar almennt um stöðu sína gagnvart höfðingjunum og víkur að vist sinni á Breiðamýri. Fer með kunnulega rullu um yfirnáttúruleg afköst sem eru af almenningi eignuð djöflinum sjálfum.
Varðar sumarfundinn í St. Michels í Finnlandi 2005. Bréfið er frá Kristínu Guðmundsdóttur, Kvenfélagasambandi Íslands og inniheldur upplýsingar um ferðlagið og fundinn.
Hér lýsir Sölvi vistinni hjá Jóhanni Pálssyni (1821-1862) og Margréti konu hans í Keldunesi. Honum líkar vistinn greinilega ekki vel og þykir nóg um róginn, lygina og fyrirlytninguna. Hann líkir frúnni m.a. við Gróu á Leiti.